Fréttatíminn - 02.05.2014, Blaðsíða 12
Nýttu tækifærið til bjartari framtíðar
Kostir séreignarsparnaðar eru augljósir: Þú hefur hærri
ráðstöfunartekjur við starfslok, mótframlag vinnuveitanda
jafngildir í raun tveggja prósenta launahækkun og bráðum
getur þú valið að nýta iðgjöldin til að lækka höfuðstól
húsnæðislánsins.
Hafðu samband við ráðgjafa í síma 440 4900.
Þú finnur nánari upplýsingar um séreignasparnað
á islandsbanki.is
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook
Byrjaðu strax
í séreignarsparnaði
Sparnaður
Lífeyrissparnaður
Ísafjörður og Hrunið
Sjálfskaparviðleitni og sköpunarkraftur
Þ að er eitthvað töfrandi við þá breytingu sem átt hefur sér stað á Ísafirði frá því ég bjó þar í tvö ár á
menntaskólaárum mínum á níunda ára-
tug síðustu aldar. Þá flæddi þar allt í pen-
ingum (að minnsta kosti miðað við lág-
launaplássið Borgarnes þar sem ég ólst
upp) og nóga vinnu var að hafa fyrir alla.
Ungir menn reiknuðu út að það myndi
ekki borga sig að mennta sig því
verkamanna- eða sjómannslaun-
in í sjávarplássinu væru miklu
hærri en laun menntafólks – svo
ekki sé talað um þegar reiknað
er inn í launaleysi á námsárum.
Ég man eftir að hafa fengið að
koma í stuttan tíma á sumrin
sem unglingur og búa hjá
frænku minni og vinna í frysti-
húsinu. Það voru uppgrip fyrir
Borgnesinginn enda meiri laun í
viku í frystihúsinu en fyrir heilt
sumar í barnapíustörfum í Nes-
inu. Þau þrjú sumur á mennta-
skólaárunum á Ísafirði vann ég
þrjár vinnur auk þess sem ég
æfði sund. Ég vann í Útvegsbankanum/
Íslandsbanka á daginn og sjoppu um
helgar. Við vinkona mín skiptum síðan á
milli okkar einni næturvakt í rækjuverk-
smiðjunni enda þarf ungt fólk ekki að
sofa. Ég held ég hafi aldrei fyrr né síðar
haft eins mikla peninga milli handanna
og þá. En svona var lífið á Ísafirði.
Svo breyttist útgerðin. Nú er innan við
helmingur þess þorskkvóta sem áður var
á Ísafirði enn veiddur þar og frystihúsum
hefur fækkað úr sjö í eitt. Atvinnutæki-
færum fækkaði og fólkið fór að flytjast á
brott. Við tóku áratugir bölmóðs. Vest-
firðingar kvörtuðu undan „fólkinu fyrir
sunnan“ sem hirti alla peningana og
lifði í vellystingum á árunum fyrir hrun.
Fasteignabólan á höfuðborgarsvæðinu
blés út þannig að ekki var lengur hægt
að selja íbúðina fyrir vestan og kaupa sér
aðra fyrir sunnan. Byggðastefna varð
tískuorð og hnignandi sjávarplássum
úti á landi sendir bitlingar á borð við fá-
mennar, opinberar stofnanir, til að stinga
upp í hina kvartandi. En allt kom fyrir
ekki. Bölmóðurinn var alltumlykjandi.
Svo varð hrun og allt breyttist. Vest-
firðingar sáu allt í einu að hið uppblásna
íbúðaverð fyrir sunnan var íbúðaeigend-
um alls ekki blessun þar sem lánin marg-
földuðust og íbúðaverð hrundi. Sprenging
í atvinnuleysi bitnaði mest á höfuðborg-
arbúum sem þurftu nú að takast á við svip-
aðar breytingar á efnahagsumhverfi sínu
á einni nóttu og Vestfirðingar höfðu þurft
að glíma við um áratuga skeið.
Eins og allir muna varð hér gífurleg
viðhorfsbreyting á mánuðunum og
misserunum eftir hrun sem varð til þess
að sú gegndarlausa peningadýrkun sem
hér var í gangi vék fyrir sköpunarkrafti
og sjálfsbjargarviðleitni. Lítil fyrirtæki
spruttu upp á höfuðborgarsvæðinu sem á
landsbyggðinni sem gerði það að verkum
að viðhorfsbreyting varð meðal þjóðar-
innar. Ótrúleg fjölgun ferðamanna ýtti
undir þessa þróun því með tilkomu nýs
neytendahóps varð til markaður fyrir
afrakstur nýsköpunar.
Ísafjörður hefur ekki farið varhluta af
þessari þróun. Þar eru nú starfandi öflug
nýsköpunarfyrirtæki og lítil og áhuga-
verð fyrirtæki í ferðaþjónustu. Bærinn er
farinn að laða til sín áhugafólk um útivist
og menningu og hefur tekist að breyta
ímynd sinni í það að vera aðlaðandi og
áhugaverður staður heim að sækja, jafnt
á vetri sem sumri sem og gróskumikill
suðupottur fyrir skapandi íbúa.
Umræðan hefur einnig breyst. Nú
heyrist fólkinu „fyrir sunnan“ ekki
lengur blótað. Það er boðið velkomið
í dýrðina. Og margir þeirra ílengjast.
Enda ekkert skrýtið.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Ég held ég hafi aldrei fyrr né síðar haft eins mikla peninga milli handanna og þá.
En svona var lífið á Ísafirði.
12 viðhorf Helgin 2.-4. maí 2014