Fréttatíminn - 02.05.2014, Blaðsíða 4
Frítt söluverðmat án
allra skuldbindinga
Halldór Kristján
Sigurðsson
sölufulltrúi
695 4649
hks@remax.is
Sylvía Guðrún
Walthersdóttir
löggiltur fasteignasali
477 7777
sylvia@remax.is
Þrjú hundruð þúsund árlega í Árbæjarlaug
Þann 10.
júlí í fyrra
gáfu Sam-
skip út
yfirlýsingu
um að
fyrirtækið
hafi engin
áform um
að taka
að sér
flutninga
á hvalkjöti
í fram-
tíðinni.
A lma, skipið sem nú er á leið til Japans með um 2.000 tonn af frosnu langreyðarkjöti, er eitt þeirra skipa
sem norskt dótturfélag Samskipa, Silver
Green, hefur leigt út til ýmissa verkefna og
er talið með flota Silver Green á heimasíðu
félagsins.
Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa,
segir að Silver Green tengist þó á engan
hátt flutningum hvalkjötsins til Japans.
Hann segist hafa upplýsingar um að flutn-
ingarnir fyrir Hval hf. byggist á milliliða-
lausum samningum Hvals hf. við úkraínska
útgerðarfélagið sem er skráður eigandi
Alma en það heitir Armidia Shipping Co
Ltd.
Samskip eiga 25% hlut í Silver Green og
Ásbjörn situr í stjórn félagsins. Hann segir
að Alma er eitt þeirra skipa sem Silver
Green hafi notað til þess að flytja uppsjávar-
afurðir frá Íslandi. Það séu árstíðarbundin
verkefni og að öðru leyti séu verkefni Alma
Silver Green óviðkomandi og á vegum
úkraínska eigandans.
Þann 10. júlí í fyrra gáfu Samskip út yfir-
lýsingu um að fyrirtækið hafi engin áform
um að taka að sér flutninga á hvalkjöti í
framtíðinni. Sú yfirlýsing var gefin að kröfu
hafnaryfirvalda í Rotterdam vegna sex
gáma af hvalkjöti frá Hval hf, sem fluttir
höfðu verið með skipi Samskipa og á farm-
bréfum frá Samskipum til Rotterdam. Hafn-
aryfirvöld í Rotterdam brugðust harkalega
við og bönnuðu að kjötið yrði flutt áfram
á áfangastað í Japan enda er langreyður
á lista yfir dýr í útrýmingarhættu og við-
skipti með kjöt af dýrinu eru ólögleg, sam-
kvæmt alþjóðlegum sáttmála sem nefnist
CITES. Ísland hefur ekki staðfest þann
sáttmála en það hefur Holland gert og flest
ríki, önnur en Noregur og Japan, auk Ís-
lendinga. Gámarnir sex voru því fluttir á ný
til Íslands.
Ásbjörn sagði við Fréttatímann að
eftir þetta hafi verið ljóst að flutningum
á hvalkjöti væri sjálfhætt fyrir Samskip.
Flutninganet fyrirtækisins er þannig upp
byggt að Rotterdam og Hamborg eru um-
skipunarhafnir fyrir flutninga til fjarlægari
áfangastaða á borð við Japan.
Alma var á miðvikudaginn stödd við
Singapore-sund og virtist á leið austur
með norðurströnd Borneo áleiðis til Japans
þangað sem talið er að skipið komi um
eða fyrir miðjan mánuðinn. Eins og fram
er komið var skipinu neitað að koma inn
til hafnar í Durban í Suður-Afríku. Um
páskana lá skipið í nokkra daga við akkeri
utan við höfnina í Port Louis, sem er hafn-
arborg á stærð við Reykjavík, á eyríkinu
Máritíus í Indlandshafi.
Vefmiðillinn Trade Winds News hefur það
eftir embættismanni hjá hafnarstjórninni í
Port Louis að skipið hafi staldrað stutt við
og allan tímann haldið sig utan við lögsögu
hafnarinnar en áhöfnin hafi farið með létta-
báti í land. Ekki fékkst staðfest hvort skipið
tók olíu meðan það lá undan Máritíus en það
er talið ólíklegt þar sem alþjóðlegar siglinga-
reglur leyfa ekki að tekin sé olía úr tankskip-
um utan við lögsögu hafnar.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Tuttugu ár eru síðan Árbæjarlaug var tekin í notkun.
Mikil fjölgun á almenn-
um leigumarkaði
Heimilum í leiguhúsnæði á almennum
markaði hefur fjölgað umtalsvert síðan
2007. Það ár voru 15,4% heimila í leiguhús-
næði á almennum markaði en 24,9% árið
2013, að því er fram kemur hjá Hagstofu
Íslands. „Árið 2007 var hlutfall heimila í
leiguhúsnæði á almennum markaði svipað
og hlutfall heimila í leiguhúsnæði í gegnum
hverskyns búsetuúrræði á borð við félags-
legar leiguíbúðir sveitarfélaga og náms-
mannahúsnæði, eða 7,6% samanborið
við 7,8%. Fjölgunin var hinsvegar meiri
í fyrrnefnda hópnum og árið 2013 voru
14,2% heimila í leiguhúsnæði á almennum
markaði en 10,7% í búsetuúrræði.
Leigjendum á almennum markaði hefur
ekki aðeins fjölgað, heldur hefur sam-
setning hópsins breyst, bæði hvað varðar
aldur, heimilisgerðir og tekjur. Eftir 2007
óx hlutfall fólks á aldrinum 25-34 ára
á almennum leigumarkaði hraðar en í
eldri aldurshópum, úr 8,6% í 23,7%. Á
sama tíma hækkaði hlutfall leigjenda á
almennum markaði í lægsta tekjubilinu
hraðar en á hærri tekjubilum, úr 9,5%
í 28,9%. Þá hækkaði hlutfallið á meðal
heimila einhleypra með eitt eða fleiri börn
úr 9,7% í 27,7%, sem er meiri aukning en
mælist fyrir aðrar heimilisgerðir.“ - jh
veður FöstudAgur lAugArdAgur sunnudAgur
Heiðríkja oG HæGur vindur.
Hlýtt í sólinni yfir daGinn.
HöfuðborGarsvæðið: BjarTað
MEsTu og HægLÁTT.
dreGur fyrir sólu oG fer að riGna
syðra. Áfram bjart na-til.
HöfuðborGarsvæðið: skýjað og
sMÁrigning sÍðdEgis.
víða riGninG,
einkum framan af deGi.
HöfuðborGarsvæðið: VæTa uM Morgun-
inn, En sÍðan ÞurrT.
vorlegt veður
og væta þegar frá líður
reiknað er með björtu og fallegu veðri
um land allt í dag, en á morgun nálgast
veðraskil úr suðri. annað kvöld fer að
rigna sunnantil, en bjart og kólnar niður
fyrir frostmark n-til aðra nótt.
Skilunum er spáð norður yfir
landi snemma á sunnudag og
rigning með sa-strekkingi
um tíma um mest allt land.
styttir upp að mestu með
s-átt þegar líður á daginn.
Meira af mildu lofti er
spáð eftir helgina.
10
7 8
9
9
7
4 5 5
7
7
5 5 6
6
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
HvAlveiðAr skipið AlmA tengt dótturFélAgi sAmskipA
Áhöfn í land en Alma
utan hafnar á Máritíus
alma hefur mikið verið í verkefnum fyrir norskt skipafélag þar sem forstjóri samskipa situr í
stjórn og samskip eru 25% eigandi.
skipið alma er komið í gegnum singapore-sund og heldur áfram siglingu sinni með 2000 tonn af hvalkjöti til japans. skipinu er
hvarvetna bannað að koma til hafnar þar sem farmurinn er afurðir dýrs sem er á alþjóðlegum lista yfir tegundir í útrýmingarhættu.
Árbæjarsundlaug fagnaði
20 ára afmæli sínu
síðastliðinn miðvikudag,
30. apríl. „Laugin var og
er ein allra glæsilegasta
laug borgarinnar með
stórkostlegu útsýni yfir
Elliðaárdalinn,“ segir guð-
rún arna gylfadóttir for-
stöðukona. „Borgarbúar
tóku lauginni vel og gera
enn,“ segir guðrún arna.
Heildarfjöldi heimsókna á
ári er um 300 þúsund.
síðustu ár hefur verið
hlúð að Árbæjarlaug,
að því er fram kemur
í tilkynningu reykja-
víkurborgar. nýr nudd-
pottur var settur upp
fyrir tveimur árum með
tilheyrandi stýrikerfi.
Eimbaði var einnig komið
upp, auk þess sem ráðist
var í úrbætur vegna
ferlimála.
Árbæjarlaug stendur við
útivistarsvæði reykvík-
inga í Elliðaárdalnum með
aðkomu um Fylkisveg.
Bygging sundlaugarinnar
hófst árið 1991 og er
hvolfþak úr gleri yfir
innilaug og innigarði
einkennandi fyrir hana.
Útisundlaugin er 25
metrar og á útisvæði eru
iðulaugar, heitir pottar og
leiktæki. -jh
4 fréttir Helgin 2.-4. maí 2014