Fréttatíminn - 02.05.2014, Side 6
Veitir
stuðning þar
sem þú þarft
hann.
Leggur grunn að góðum degi
Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477
Opi› virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-16
Dalsbraut 1, Akureyri • Sími: 558 1100 og Skeiði 1
Ísafirði • Sími 456 4566 betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
D Ý N U R O G K O D D A R
20%
afsláttur
í maí
Tempur dagar
nú er Tækifærið!
EINA DÝNAN OG KODDINN SEM VIÐURKENND ERU AF
NASA OG VOTTUÐ AF GEIMFERÐASTOFNUNINNI
TEMPUR® Original & Cloud heilsurúm
C&J stillanlegt rúm með TEMPUR® dýnu
TEMPUR Original eða Cloud heilsudýna
með Standard botni og löppum
Verðdæmi: 160x200 cm. Fullt verð kr. 390.700
TILBOÐSVERÐ: kr. 312.560
C&J stillanlegt rúm með
TEMPUR Original eða Cloud heilsudýnu.
Verðdæmi: 2x90x200 cm. Fullt verð kr. 803.800
TILBOÐSVERÐ: kr. 643.040
v
a
x
t
a
la
u
sa
r
afborganir í 1
2
m
á
n
*
Aðeins
55.627
kr. á mán.
v
a
x
t
a
la
u
sa
r
afborganir í 1
2
m
á
n
*
Aðeins
27.123
kr. á mán.
Eimskipafélag Íslands og Kiwanishreyfingin gefa
öllum grunnskólabörnum sem ljúka 1. bekk grunn-
skóla í vor reiðhjólahjálma. Verkefnið er árviss við-
burður félaganna til að stuðla að umferðaröryggi
yngstu hjólreiðamanna landsins. Verkefnið nefnist
„Óskabörn þjóðarinnar“ en samtals munu um 4.500
börn fá reiðhjólahjálma að gjöf í ár, að því er fram
kemur í tilkynningu. Á þeim 10 árum sem verkefnið
hefur staðið yfir hafa um 45 þúsund börn, um 14% af
þjóðinni, notið góðs af því. „Verkefnið er okkur afar
kært og stendur okkur nærri. Eimskip leggur ríka
áherslu á öryggismál í allri sinni starfsemi og vill með
þessum hætti leitast við að miðla þeirri reynslu til
barnanna sem þurfa að vera meðvituð um mikilvægi
öryggis í umferðinni. Ljóst er samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni víðsvegar um land að hjálmarnir hafa
bjargað mörgum börnum frá alvarlegum meiðslum,“
segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips. Félagið hlaut
á síðasta ári mestu viðurkenningu sem alþjóða Kiw-
anishreyfingin veitir fyrir framlag sitt til samfélags-
legra málefna.
Kiwanishreyfingin mun á næstu vikum fara í alla
grunnskóla landsins og afhenda börnum 1. bekkjar
grunnskóla hjálma. Foreldrar og forráðamenn eru
beðnir um, segir enn fremur, að vera vakandi fyrir því
þegar börn þeirra koma heim með hjálma og aðstoða
þau við að stilla þá rétt.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
B jörn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu, afhenti Pamelu
De Sensi nýverið hálfrar millj-
ónar króna styrk til útgáfu á
föndurbók fyrir börn. Pamela er
flautuleikari og stjórnandi Töfra-
hurðar sem er tónlistarhátíð fyr-
ir yngstu kynslóðina í Salnum í
Kópavogi. Á vegum Töfrahurðar
hafa reglulega verið haldin nám-
skeið fyrir börn þar sem hljóð-
færi eru smíðuð úr endurvinn-
anlegu efni.
„Gaman í drasli“ er föndur-
bók þar sem kennt er að búa til
hljóðfæri úr endurvinnanlegu
efni ásamt ýmsum skemmti-
legum leikjum. Í bókinni eru
fimm söguhetjur, álfarnir
Plasti, Pappa og Gleri sem sér-
hæfa sig í leikjum ýmis konar,
Pamflauta sem kennir að búa
til hljóðfæri og loks risinn góði,
Raggi ruslakarl. Raggi varð til
á ruslahaugi úr alls konar dóti,
talar eingöngu vistvænt tungu-
mál og gefur álfunum af sér
hitt og þetta sem þeir nota til
að skapa sína leiki og hljóðfæri.
Bókinni er skipt upp í mánuði
og inniheldur hver mánuður tvo
leiki og eitt hljóðfæri.
„Bók þessi hefur það að
markmiði,“ segir í tilkynningu,
„að vekja fólk til umhugsunar
um allt það sem við hendum
en mætti öðlast framhaldslíf
undir öðrum formerkjum, því
hver segir að endilega þurfi að
eyða stórfé til að börn skemmti
sér. Klósettrúlla, efnisbútur,
mjólkurferna, plastflaska utan
af þvottaefni, gosdósir, iðnaðar-
rör, pappakassar, áldósir, allt
þetta getur breyst í trommur,
horn, flautur, marimbur, eða í
bíla, sjónvörp, kastala, farsíma,
flugvélar og margt margt fleira.
Bókin inniheldur margar snið-
ugar hugmyndir fyrir börn frá
fjögurra ára aldri sem fjölskyld-
ur og vinir geta skemmt sér við
að búa til.“
Nákvæmar skýringarmyndir
eru í bland við söguna og lögð
áhersla á að hafa allar skýr-
ingar einfaldar og skýrar. „Á
þennan hátt,“ segir enn fremur,
„má vekja upp meiri áhuga á
endurvinnslu, áhuga á náttúru
og nýtni og síðast en ekki síst til
að örva ímyndunarafl og sköp-
unargleði barna.“
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Gjöf reiðhjólahjálmanna til barna sem ljúka 1. bekk í grunnskóla í vor stuðlar að
umferðaröryggi yngstu hjólreiðamanna landsins.
ReiðhjólahjálmaR eimskip og kiwanishReyfingin
Gefa 4.500 grunnskólabörnum hjálma
Pamela De Sensi tók við styrk Sorpu. Með á myndinni er Raggi ruslakarl, listaverk sem
búið er til úr endurvinnanlegu efni og var útskriftarverkefni Auðar Lóu Guðnadóttur frá
listabraut Fjölbrautarskóla Breiðholts vorið 2012.
fönduRBók fRamhaldslíf ýmissa muna
Hljóðfæri úr endur-
vinnanlegu efni
Sorpa styrkir útgáfu föndurbókarinnar Gaman í drasli. Raggi ruslakarl hjálpar til
og talar vistvænt tungumál.
6 fréttir Helgin 2.-4. maí 2014