Fréttatíminn - 02.05.2014, Page 8
Þ ingmenn á Spáni virðast í þann veginn að setja lög sem banna fóstureyðingar. Skoðanakannanir sýna að um 80% eru á móti áformum stjórnvalda
en ríkisstjórn landsins ætlar að keyra málið í gegn og
setja löggjöf sem verður ein hin strangasta í Evrópu.
Samkvæmt núgildandi lögum geta konur fengið
fóstureyðingu ef þær kjósa svo fyrstu 14 vikur með-
göngu. Nýju lögin munu banna allar fóstureyðingar
nema þær séu nauðsynlegar til að bjarga lífi móður á
fyrstu 22 vikum meðgöngu. Ef getnaður varð vegna
nauðgunar, sem búið er að kæra til lögreglu, verður
hægt að eyða fóstri fyrstu 12 vikur meðgöngu. Stúlkur
undir 18 ára aldri munu þurfa samþykki foreldra fyrir
fóstureyðingu. Breytingartillögu um að leyfa fóstur-
eyðingar vegna erfðagalla eða líffæragalla í fóstri hefur
verið hafnað.
Það hefur farið undarlega lítið fyrir þessu máli í
fréttum en það hefur valdið mikilli ólgu á Spáni frá því í
desember á síðasta ári og er helsta fréttamál þarlendra
fjölmiðla þessa dagana enda er meðferð þingsins á
málinu komin á lokastig. Stjórnarandstæðingar og
baráttufólk telur að breytingin sé liður í viðleitni hægri
stjórnarinnar í landinu til að vinda ofan af þeim fram-
förum sem orðið hafa í mannréttindamálum á Spáni
eftir að einræðisstjórn Francos leið undir lok á áttunda
áratug síðustu aldar. Þátttaka í mótmælaaðgerðum í
Madrid hefur farið stöðugt vaxandi.
Undir þrýstingi frá kaþólsku kirkjunni
Fóstureyðingar urðu fyrst löglegar á Spáni á níunda
áratugnum. Þær voru hluti af þeim úrbótum sem urðu í
mannréttindamálum í landinu eftir að einræðisherrann
Franco féll frá og lýðræðislega kjörin ríkisstjórn tók við
völdum. Það eru íhaldsmenn í Þjóðarflokknum, sem nú
sitja í ríkisstjórn, sem knýja málið áfram í þinginu og
eru undir þrýstingi frá kaþólsku kirkjunni.
„Við verðum eftirbátar annarra ríkja í Evrópu og
þetta hefur ekki bara áhrif á lagaleg réttindi kvenna.
Við teljum að þessar breytingar muni hafa neikvæð
áhrif á lýðheilsu og heilsufar kvenna í landinu, segir
Marisa Soleto, sem er talsmaður kvennahreyfingarinn-
ar sem hefur skipulagt mótmælaaðgerðir gegn frum-
varpi stjórnvalda.
Það að herða löggjöf um fóstureyðingar var á stefnu-
skrá Þjóðarflokksins (Partido Popular) í þingkosning-
unum árið 2011. Í kjölfar kosninganna komst flokkur-
inn til valda og Mariano Rajoy, leiðtogi flokksins, varð
forsætisráðherra. Fóstureyðingafrumvarpið var lagt
fram rétt fyrir jól og virðist ríkisstjórnin hafa talið að
hún gæti komið því í gegnum þingið án mikillar mót-
stöðu. Annað hefur komið á daginn.
„Við verðum í fararbroddi á 21. öldinni“
Þjóðarflokkurinn hefur sterk tengsl við kaþólsku kirkj-
una og málið er drifið áfram af trúarhita stjórnmála-
mannanna. Flutningsmaður frumvarpsins er Alberto
Ruiz Gallardón dómsmálaráðherra og hann talar um
þetta sem „þá framsæknustu löggjöf sem þessi ríkis-
stjórn hefur staðið að.“
Þau sem berjast gegn lögunum segja að með þeim
dragist Spánn aftur úr öðrum ríkjum Evrópu í mann-
réttindamálum en ráðherrann er á öðru máli. Með
þessum lögum „verðum við í fararbroddi á 21. öldinni,“
hefur hann sagt. Stjórnarandstaðan beitir sér af hörku
innan þingsins. Hún reyndi að fá málinu vísað frá þegar
það kom fram. En Þjóðarflokkurinn traustan meiri-
hluta í þinginu og felldi frávísunartillögu með 183
atkvæðum gegn 151 í leynilegri atkvæðagreiðslu þar
sem sex þingmenn skiluðu auðu.
En þótt ríkisstjórnin sé drifin áfram af hugsjón
kaþólskra og virðist hafa öruggan meirihluta fyrir
málinu á þingi í andstöðu við vilja 80% þjóðarinnar eru
kaþólskir leikmenn ekki ánægðir. Þeir telja lögin ekki
ganga nógu langt og eru ósáttir við undanþágur vegna
heilsufars móður og getnaðar við nauðgun.
„Þeir eru bara að reyna að þagga niðri í þeim sem
berjast fyrir lífinu,“ segir Alvaro Gutiérrez, talsmaður
samtakanna Kaþólskar raddir í samtali við Deutsche
Welle. Hann segir að meðan undanþágur sé að finna
í lögunum séu þau ekkert nema fegrunaraðgerð á
núgildandi lögum.
Franco snýr aftur
Um 100.000 fóstureyðingar hafa verið gerðar ár hvert
á Spáni. Empar Pineda, forstjóri læknastöðvar sem
gerir fóstureyðingar, hefur tekið þátt í baráttu kvenna
fyrir réttinum til fóstureyðingar síðan á áttunda ára-
tugnum.
Hún óttast að óléttar konur verði neyddar til þess
að fara til útlanda í leit að fóstureyðingum og að hins
vegar muni spretta upp neðanjarðarstarfsemi í landinu
þar sem farið verði að veita fóstureyðingar við ömur-
legar aðstæður þar sem heilsu kvenna verður stofnað
í hættu. Hún segir að áform ríkisstjórnarinnar beri
merki um að þau viðhorf sem einkenndu spænsk
stjórn völd á dögum Francos séu að snúa aftur.
„Þessi löggjöf umgengst konur eins og eilíf börn sem
þarf að hafa umsjón með og vernda af fólki sem þykist
geta tekið sér vald til þess að ákveða hvort konur geta
látið eyða fóstri eða ekki,“ segir hún.
Hættulegar aðgerðir og efnahagsleg mismunun
Fjölmargar alþjóðlegar stofnanir og mannréttindasam-
tök hafa skorað á spænsk stjórnvöld að draga frum-
varpið til baka.
„Ef frumvarpið verður að lögum mun það færa landið
marga áratugi aftur í tímann hvað varðar mannréttindi
kvenna og stúlkna,“ segir Jezerca Tigani, hjá Amnesty.
Hún segir að lögunum fylgi hætta á að fjölmargar kon-
ur og stúlkur sæki í ólöglegar aðgerðir við óviðunandi
og hættulegar aðstæður sem geti teflt lífi þeirra og
heilsu í hættu. „Lögin takmarka líka réttindi kvenna og
stúlkna til þess að taka eigin ákvarðanir og þau brjóta
gegn sjálfsákvörðunarrétti kvenna.“
Amnesty telur að lögin brjóti gegn alþjóðlegum
skuldbindingum Spánar í mannréttindamálum og ráð-
leggingum sérfræðinga.
„Þetta frumvarp eykur líka efnahagslega mismunun.
Ef það verður að lögum mundi það einkum bitna á ung-
um og fátækum konum sem hafa ekki efni á að ferðast
á milli landa til þess að tryggja sér öruggar og löglegar
fóstureyðingar, segir Esteban Beltrán, framkvæmda-
stjóri Amnesty International á Spáni.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Mannréttindi UMdeild löggjöf á leið gegnUM SpænSka Þingið
Fóstureyðingar
bannaðar á Spáni
Fóstureyðingar verða eingöngu leyfðar ef líf móður er í hættu eða ef getnaður varð við nauðgun
sem búið er að kæra til lögreglu samkvæmt frumvarpi sem spænska þingið virðist ætla að sam-
þykkja þótt kannanir bendi til að 80% þjóðarinnar séu andvíg málinu.
Abortion Travel
skrifstofur hafa
verið settar upp
víða um Spán
síðustu vikur og
mánuði. Þær eru
liður í baráttunni
gegn frumvarpi
spænsku ríkisstjórn-
arinnar um bann við
fóstureyðingum og
er ætlað að benda
á að lögin muni
neyða þær konur
sem hafa efni á að
fara úr landi í leit
að fóstureyðingum.
Fátækari konur
munu verða verst út
úr breytingunum.
HARPA SILFURBERG
Mánudag 5. maí kl. 20:30
Miðaverð kr. 3.000 / 2.000
Styrkt af
Miðar á midi.is s harpa.is s í miðasölu Hörpu
GestAsönGvARAR
Björgvin Halldórsson, Bubbi Morthens,
Ragnar Bjarnason og Sunna Þórisdóttir
ÞóRiR
BalduRSSon
SjötuguR
stóRsveit
ReykjAvíkuR
og ÞóRiR BalduRSSon
Stórsveit Reykjavíkur fagnar sjötusafmæli meistara
Þóris Baldurssonar með afmælisbarninu á sérstökum
hátíðartónleikum. Þórir mun stjórna hljómsveitinni, spila
á Hammond-orgel og útsetja alla efnisskránna en hún
mun koma víða við á löngum og viðburðaríkum ferli Þóris.
8 fréttir Helgin 2.-4. maí 2014