Fréttatíminn - 02.05.2014, Blaðsíða 10
W arren Buffett er einn þekktasti og auðugasti
viðskiptajöfur í heimi. Á
morgun stýrir hann aðal-
fundi Berkshire Hathaway,
fyrirtækisins sem hann
stofnaði og rekur enn þann
dag í dag. Buffett er orðinn
83 ára gamall.
Eins og margt fólk af hans
kynslóð hefur hann ekkert
slegið af þótt hann sé kom-
inn á eftirlaunaaldur. Tíma-
ritið The Economist fjallar í
síðasta tölublaði um þær öru
breytingar sem eru að verða
á vestrænum þjóðfélögum
vegna þess að það er alltaf
að verða algengara að fólk
haldi áfram á vinnumarkaði
löngu eftir að það er komið
á hinn lögbundna eftirlauna-
aldur.
Við endursegjum þá um-
fjöllun hér á eftir. Á fáum
árum hafa orðið örar breyt-
ingar hvað þetta varðar en
fyrst og fremst er það efnað
og velmenntað fólk sem
heldur áfram að vinna fram
á elliárin en þeir sem unnið
hafa láglaunastörf sem ekki
krefjast sérmenntunar fara
yfirleitt á eftirlaun þegar til-
teknum aldri er náð.
65% háskólamenntaðra en
32% annarra vinna lengur
Í Bandaríkjunum eru um
65% karlmanna, háskóla-
menntaðra sérfræðinga á
aldrinum 62-74 ára, enn á
vinnumarkaði en aðeins 32%
þeirra jafnaldra sem hættu
námi eftir framhaldsskóla. Í
ríkjum ESB er munurinn á
þessum hópum svipaður.
Því er spáð að næstu
áratugi muni fjöldi þess fólks
í heiminum sem lifir það að
verða 65 ára eða eldri nærri
því tvöfaldast. Nú eru um
600 milljónir manna á þess-
um aldri en verða um 1.100
milljónir eftir um 20 ár.
Hingað til hefur hækkandi
meðalaldur fólks þýtt fjölgun
ellilífeyrisþega. Fólk hefur
verið skikkað til að setjast í
helgan stein einhvern tím-
ann milli sextugs og sjötugs.
Í flestum vestrænum löndum
er það enn langalgengast.
Margir hagfræðingar hafa
spáð því að með tímanum
muni þetta verða þungur
baggi á hagkerfum þjóð-
anna. Það verði of fáir eftir á
vinnumarkaði til að standa
undir framfærslu allra gaml-
ingjanna sem hættir eru að
vinna og farnir á eftirlaun.
Nú bendir hins vegar
margt til að það hægist veru-
lega á þessari þróun. Sífellt
fleiri vinna langt fram á efri
ár, jafnvel allan áttræðis-
aldurinn og eru í svipuðum
sporum um áttrætt og fólk
var almennt um sjötugt fyrir
ekki svo löngu.
Bilið breikkar
Þetta á hins vegar fyrst og
fremst við um það fólk sem
býr við bestan efnahag og
vinnur störf sem krefjast
sérmenntunar. Þeir sem eru
hinum megin á skalanum,
vinna láglaunastörf sem ekki
krefjast sérmenntunar, fara
í svipuðum mæli og áður á
eftirlaun á sjötugsaldri.
Starfsævi menntuðu sér-
fræðinganna er sífellt að
lengjast samanborið við
starfsævi hinna. Þetta mun
hafa djúpstæðar afleiðingar
fyrir einstaklingana og þjóð-
félagið allt. Það mun ekki
draga ekki eins ört úr hag-
Þau gömlu eiga
framtíðina fyrir sér
Það verður sífellt algengara að fólk haldi áfram að vinna á fullum afköstum löngu eftir að
eftirlaunaaldri er náð. Þetta á einkum við um fólk sem er í vellaunuðum störfum sem krefjast
sérmenntunar. Þetta á eftir að hafa mikil áhrif á þróun samfélagsins næstu ár. Tímaritið The
Economist fjallaði ítarlega um þessa þróun nýlega.
Víða um heim er þróunin sú að fólk með góða menntun og góðar tekjur vinnur langt fram á elliárin en láglaunafólk sem unnið
hefur störf sem ekki krefjast sérmenntunar fer frekar á eftirlaun og er háð lífeyri frá hinu opinbera eftir að hefðbundnum
vinnualdri lýkur. Þetta dregur enn úr efnahagslegum jöfnuði í samfélaginu.
Láu hjartað ráða
Himneska súkkulaðið mitt er úr
lífrænt ræktuðu hráefni og Fair-
tradevottað. Hágæða súkkulaði
sem kætir bragðlaukana.
10 fréttaskýring Helgin 2.-4. maí 2014