Fréttatíminn - 02.05.2014, Qupperneq 16
G óð tengsl við fjölskylduna sína er það allra dýrmætasta,“ segir Kristbjörg Kjeld, ein ástsæl-asta leikkona Íslendinga, sem
fer með hlutverk í leikritinu „Dagbók
Jazzsöngvarans“ sem nýlega var frum-
sýnt í Borgarleikhúsinu. Verkið fjallar um
samhengi kynslóða og hvernig sársauki
einnar kynslóðar flyst yfir á þá næstu ef
ekki er tekist á við hann. Um er að ræða
nýtt íslenskt nútímaverk eftir Val Frey
Einarsson sem einnig leikur aðalsögu-
hetjuna Ólaf. „Ég er í hlutverki konu sem
hefur verið heimilishjálp hjá föður Ólafs
og hringir í hann til að tilkynna honum að
faðir hans sé látinn. Faðirinn hefur opnað
sig gagnvart þessari konu og náðu þau
góðum tengslum undir lokin. Í framhaldi
af símtalinu fer þessi kona að aðstoða Ólaf
í sambandi við útförina,“ segir Kristbjörg.
Auk þeirra leikur hinn ungi Valur Grett-
isson í verkinu og fer hann með hlutverk
föður Ólafs þegar hann var 7 ára. Þau þrjú
eru meira og minna á sviðinu allan tímann
en Valur bregður sér einnig í hlutverk afa
Ólafs og Kristbjörg í hlutverk ömmu hans.
„Þetta verk fjallar um tengsl fólks, eða
tengslaleysi og hvernig það flyst milli kyn-
slóða. Það fjallar líka um þögnina,“ segir
Kristbjörg og tekur fram að þó undirtónn-
inn sé alvarlegur sé einnig hægt að hlæja
á sýningunni. „Það er öllum hollt að skoða
samskiptin við sína fjölskyldu og hvort
maður getur gert eitthvað til að bæta þau.
Flestir geta tengt við þetta verk á ein-
hvern hátt. Ég hef líka fundið hjá fólki
sem hefur komið á sýningar að verkið
hefur haft mikil áhrif á það,“ segir hún.
Gengur að Sólfarinu
Kristbjörg hefur verið afar áberandi í
leiklistarlífinu undanfarin ár og tekið að
sér fjölmörg krefjandi hlutverk bæði í
kvikmyndum og leikhúsi, en hún er sjálf-
stætt starfandi. „Ég útskrifaðist úr leik-
listarskóla árið 1958 þannig að ég er búin
að vera í þessu ansi lengi,“ segir hún en
56 ár eru frá útskrift. Enn fer mestur tími
hennar í leiklistina enda er það hennar
lífsstarf. „Það er mikil fylling í að starfa
við það sem maður hefur gaman af. Þetta
er svo fjölbreytt, og síðan er það ekki síst
Góð fjölskyldutengsl það dýrmætasta
Hin ástsæla leikkona Kristbjörg Kjeld
segir Íslendinga heppna með hvað
þeir eiga margar góðar skáldkonur
en Auður Ava Ólafsdóttir er í sér-
stöku uppáhaldi hjá Kristbjörgu. Auk
þess að lesa og fara í göngutúra
leggur hún miklar rækt við fjöl-
skylduna og segir ekkert dýrmætara
en fjölskyldutengslin. Kristbjörg
leikur um þessar mundir í verkinu
Dagbók Jazzsöngvarans þar sem
tekist er á við samhengi kynslóða
og afleiðingar tengslaleysis innan
fjölskyldna.
allt þetta yndislega fólk sem maður
er að leika með. Í þessu starfi er
unnið með tilfinningar þannig að
við verðum yfirleitt dálítið náin og
það er það sem gefur þessu gildi
líka, þessi góði félagsskapur.“
Þegar Kristbjörg hefur lausa
stund reynir hún að vera dugleg að
ganga og hefur auk þess unun af
því að lesa.
„Ég hef gaman af því að fara út
að ganga og reyni að halda mér
við. Mér finnst gott að labba niður
að sjó og að verkinu hans Jóns
Gunnars Árnasonar,“ segir hún en
Sólfarið hans stendur við Sæbraut-
ina og er eitt af þekktari kenni-
leitum Reykjavíkur. Kristbjörg
býr við Lindargötu og því er stutt
að sjávarsíðunni. „Ef mér leiðist
get ég líka farið upp á Laugaveg,
þar er fullt af mannlífi og ég hitti
alltaf einhvern sem ég þekki. Það
er afskaplega gott, líka svona fyrst
ég er orðin ein, og þá er ákveðinn
félagsskapur í því.“
Kristbjörg á tvö börn, son og
dóttur, og þrjú barnabörn sem hún
er í nánu sambandið við. „Við erum
ekki mörg en við erum náin. Ég er
í miklu sambandi við þau enda er
fjölskyldan það dýrmætasta sem til
er,“ segir hún.
Afleggjarinn í uppáhaldi
Hvað bækurnar varðar les Krist-
björg allar nýjustu bækurnar sem
hún fær í jólagjöf en í sérstöku
uppáhaldi er skáldkonan Auður
Ava Ólafsdóttir. „Mér finnst hún
dásamlegur höfundur, algjörlega
mögnuð. Afleggjarinn er með betri
bókum sem ég hef lesið. Svo lék ég
í verki eftir hana sem mér fannst
mjög gaman,“ segir Kristbjörg
sem lék í verkinu „Svartur hundur
prestsins“ – fyrsta leikverki Auðar
Övu en áður hafði Kristbjörg
þegar lesið Afleggjarann og orðin
heilluð.
„Þær konur sem eru að skrifa
bækur í dag eru alveg frábærar.
Við eigum virkilega flottar skáld-
konur,“ segir hún og nefnir aðrar
til sögunnar, þær Kristínu Marju
Baldursdóttur og Vigdísi Gríms-
dóttur. „Þetta eru hörkukonur. Ég
hef líka sérstaklega gaman af því
að undanförnu hef ég mikið leikið
í íslenskum verkum og mér finnst
það einstaklega skemmtilegt,“
en á sínum tíma lék hún einmitt í
kvikmyndinni Kaldaljós eftir sögu
Vigdísar.
Kristbjörg er ein af fáum eldri
íslenskum leikkonum sem eru „á
markaðnum“ eins og hún orðar
það en hún segist sannarlega ekki
hafa undan neinu að kvarta, rétt
tæplega 79 ára. „Það er auðvitað
miklu minna af hlutverkum fyrir
eldri konur í bókmenntunum en
ég hef haft nóg að gera. Ég er sjálf-
stætt starfandi og ræð mér alveg
sjálf. En ég er staðráðin í að halda
þessu brölti áfram á meðan ég er
get. Ég lifi fyrir leiklistina og auð-
vitað fjölskylduna.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Kristbjörg Kjeld segir að þó hlutverk fyrir eldri konur séu
mun færri hafi hún alltaf nóg að gera og ætlar að halda
áfram að leika eins lengi og hún hefur orku til. Ljósmynd/Hari
16 viðtal Helgin 2.-4. maí 2014
H E L G A R B L A Ð
Ó K E Y P I S
H E L G A R B L A Ð
Ó K E Y P
I S
H E L G A R B L A Ð
H E L G A R B L A Ð
H E L G A R B L A Ð
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
ÓKEYPIS
ÓKEYPI
S
Hugsaðu vel
um húðina
Nánari upplýsingar veitir Kristi Jo Kristinsson
S. 531 3307 • kristijo@frettatiminn.is
Sérkafli um
umhirðu húðar 16. mai
Sólarvarnir, dagkrem,
serum og góð ráð fyrir
fólk á öllum aldri