Fréttatíminn - 02.05.2014, Qupperneq 24
Hetjan sem hætti á toppnum
Það kom mörgum á óvart síðasta haust þegar til-
kynnt var að Bjarni tæki við þjálfun Framara. Hann
var enda nýbúinn að lyfta Íslandsbikarnum með KR
og flestir bjuggust við að hann ætti alla vega eitt ár
eftir sem leikmaður. En Bjarni hætti á toppnum og
ætlar sér stóra hluti í þjálfun. Gaman verður að sjá
hvort hann nær að gera Framara að því stórveldi
sem stuðningsmenn liðsins vilja meina að það hafi
eitt sinn verið. Takist honum það ekki mun eflaust
verða nóg af fólki til að benda honum á hvar mistök
hafi verið gerð.
Nafn: Bjarni Guðjónsson.
Lið: Fram.
Staða: Þjálfari.
Aldur: 35 ára.
Hæð: 1.74.
Leikir/Mörk: 537/71
Markmið fyrir sumarið: Við erum með markmið
í hópnum sem við ræðum ekki út á við. Félagið
er að fara í vinnu sem tekur sirka þrjú ár og, ég
veit að þetta er gömul tugga, en við ætlum bara
að nálgast hvern og einn leik fyrir sig og gera
okkar besta.
Fyrirmynd í boltanum: Sem leikmaður þá var það
Alan Shearer. Hann var sér á báti hvernig hann
æfði og nálgaðist leiki. Sem þjálfari reyni ég að
taka það besta frá hverjum og einum þjálfara
sem ég hef haft og vonandi verður útkoman
góð. Ef ég á nefna einhvern einn þá er það Rúnar
Kristins, hann hefur staðið sig rosalega vel.
Hvaða lið verður Íslandsmeistari? Ég hugsa að
það verði KR.
Hver verður markahæstur? Ef Kjartan Henry
verður í lagi þá er hann langbesti senterinn á
Íslandi.
Fimm mánaða fótboltaveisla að hefjast
Langþráð bið margra verður á enda á sunnudag þegar flautað verður til leiks í Pepsi-deild karla í fótbolta. Tveir stórleikir eru á dagskrá í fyrstu umferð
og spenna er í loftinu. Fréttatíminn tók púlsinn á fjórum mönnum sem eiga væntanlega eftir að vera áberandi í sumar. Ljósmyndir/Hari
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Hetjan sem skora á mörkin
Aron Elís skoraði 14 mörk í 14 leikjum í 1. deildinni í
fyrra. Hann var markakóngur deildarinnar og var í
kjölfarið kjörinn bæði besti og efnilegasti leikmaður-
inn. Það er því búist við miklu af þessum unga manni
í Fossvoginum í sumar.
Nafn: Aron Elís Þrándarson.
Lið: Víkingur.
Staða: Sóknarsinnaður miðjumaður.
Aldur: 19 ára.
Hæð: 1.86.
Leikir/Mörk: 45/19
Fyrirmynd í boltanum: Ronaldo og Messi. Það er
gaman að horfa á þá.
Hvaða lið verður Íslandsmeistari? Ég giska á KR
eins og stendur, þeir eru með sterkasta hópinn.
Hver verður markahæstur? No comment.
Hetjan sem sneri heim
Stefán Gíslason hefur átt farsælan feril sem
atvinnumaður í nokkrum löndum. Nú er hann snúinn
heim og svanasöngurinn verður í grænum búningi í
Kópavoginum. Stefán fær það hlutverk að miðla af
reynslu sinni í fremur ungu liði og verður forvitnilegt
að sjá hvernig honum reiðir af.
Nafn: Stefán Gíslason.
Lið: Breiðablik.
Staða: Miðjumaður og miðvörður.
Aldur: 34 ára.
Hæð: 193.
Leikir/Mörk: 341/28
Markmið fyrir sumarið: Mín markmið eru að spila
vel og styðja við bakið á hinum leikmönnunum.
Liðið verður vonandi að berjast um titilinn, þar á
klúbburinn að vera.
Fyrirmynd í boltanum: Patrick Vieira hefur alltaf
verið ofarlega á blaði hjá mér. Hann var töffari
frá fyrstu æfingu í Arsenal, þegar hann labbaði
út úr klefanum með kassann tvo metra fram.
Hvaða lið verður Íslandsmeistari? Það verður
Breiðablik.
Hver verður markahæstur? Árni Vil.
Hetjan úr utandeildinni
Fyrir þremur árum var Haukur Lárusson að spila
utandeildarbolta í sjö manna liði en í fyrra var hann
lykilmaður í að koma Fjölnismönnum upp í Pepsi-
deildina. Meiðsli höfðu hamlað framgangi hans á
yngri árum en nú er Haukur klár í slaginn og mun
væntanlega vekja athygli í sumar. Að minnsta kosti
fyrir hæð sína en Rauði turninn, eins og hann er kall-
aður, er sagður vera hæsti leikmaður deildarinnar
í ár.
Nafn: Haukur Lárusson.
Lið: Fjölnir.
Staða: Varnarmaður
Aldur: 26 ára.
Hæð: 1.96
Leikir/Mörk: 71/6
Markmið fyrir sumarið: Aðalmarkmiðið er að
halda sér uppi.
Fyrirmynd í boltanum: Ég hef aldrei pælt í því.
Uppáhaldsleikmaðurinn minn er náttúrlega
Peter Crouch. Það byrjaði sjálfsagt í léttu djóki
en maður hefur elt hann síðan.
Hvaða lið verður Íslandsmeistari? Fyrir utan
Fjölni? KR.
Hver verður markahæstur? Gary Martin eða Guð-
mundur Karl, ef hann verður ekki í bakverðinum.
24 fótbolti Helgin 2.-4. maí 2014