Fréttatíminn - 02.05.2014, Qupperneq 34
É g byrjaði upphaflega að nota taubleiur því mér fannst þær svo krúttlegar,“ segir Benedikta
Valtýsdóttir hlæjandi en hún notar
taubleiur á 8 mánaða gamlan son sinn.
„Ég sá mynd af dóttur vinkonu minnar
með svona bleiu og fannst hún bara
svo yfirgengilega sæt. Þegar ég fór
svo að skoða þetta í framhaldinu sá ég
að það eru fjölmargir kostir við tau-
bleiurnar, maður getur stjórnað því
hvaða efni eru næst húð barnsins og
svo er þetta svo miklu ódýrara,“ segir
hún.
Benedikta, ásamt þeim Helgu Dögg
Yngvadóttur og Paulinu Garcia, sem
einnig nota taubleiur fyrir sín börn,
skipulagði þátttöku Íslendinga í The
Great Cloth Diaper Change sem fram
fór síðustu helgi þar sem reynt var að
slá heimsmet í fjölda taubleiuskipta á
sólarhring. Ísland var eitt 15 landa sem
tóku þátt í fyrra og var þá slegið met
ársins þar á undan og það skilmerki-
lega fært í heimsmetabók Guinness
þegar skipt var á 8.301 barni á heims-
vísu. Um 50 foreldrar skiptu á börnum
sínum á Íslandi um liðna helgi en það
líða nokkrar vikur þar til ljóst verður
hvort heimsmet var slegið.
Óæskileg efni í bréfbleium
Viðburðurinn var þó ekki aðeins
skipulagður til að slá heimsmet heldur
til að vekja athygli á notkun taubleia í
stað bréfbleia sem umhverfisvænum
og ódýrari kosti. „Það er talað um að
kostnaður við bréfbleiur yfir bleiutíma-
bilið hlaupi á 200-300 þúsund krónum
en hægt er að sleppa með innan við 40
þúsund krónur ef fólk notar ódýrustu
taubleiurnar. Hjá mörgum, eins og
mér, er þetta samt líka hálfgert áhuga-
mál því bleiurnar eru svo fallegar og
þá er það svipað að kaupa bleiurnar
eins og að kaupa sætan galla á barnið.
Kostnaðurinn við taubleiurnar verður
þá auðvitað meiri,“ segir hún.
Helga Dögg tekur í sama streng
og segist upphaflega fengið áhuga
á taubleiunum því þær væru svo fal-
legar. „Síðan fór ég að lesa mér til um
kosti þeirra og öll aðskotaefnin sem
eru í bréfbleiunum. Ég vil vera örugg
með hvaða efni eru upp við heilögustu
líkamsparta sonar míns. Auk þess
finnst mér hryllilegt að vita til þess að
það getur tekið bréfbleiurnar mörg
hundruð ár að eyðast í náttúrunni,“
segir hún.
Smá vesen fyrst
Þær eru allar sammála um að það sem
foreldrum finnst mest fráhrindandi í
byrjun við notkun taubleia sé að það
hljóti að vera mikið vesen. „Þetta var
alveg smá vesen fyrst og við þurftum
að prófa okkur áfram með tegundir
en eftir tvær vikur var þetta komið og
það hentar okkur mun betur að vera
með taubleiur en bréfbleiur. Strákur-
inn minn hefur til dæmis aldrei komið
heim frá dagmömmu með óhrein föt út
af kúkaslysum því taubleiurnar halda
betur við. Það reyndist mér líka mjög
dýrmætt að geta farið á „Taubleiutjatt“
á Facebook sem er lokaður hópur fyrir
foreldra sem nota taubleiur og þar er
hægt að fá ráðgjöf varðandi hvað sem
er,“ segir Helga Dögg. Benedikta seg-
ist aldrei hafa lent í neinum vandræð-
um. „Ég bara setti einhverja taubleiu
á minn strák og það gekk strax vel.
Ég man síðan eftir að hafa í mömmu-
hópnum heyrt aðrar mæður tala um
hvað þvotturinn væri endalaus út af
slysum sem fóru út fyrir bréfbleiurnar.
Ég held því að á tímabili hafi þær verið
að þvo jafn mikið og ég,“ segir hún.
Þær mæla allar með því að taubleiu-
foreldrar, eins og þær kalla þá, sæki
um aðgang að Facebook-hópnum en í
honum eru um 900 manns.
Dagforeldrar misáhugasamir
Paulina á átján mánaða gamla stelpu
og byrjaði að nota taubleiur eftir að
vinkona hennar mælti með þeim. „Vin-
kona mín á tvíbura og hún
dásamaði taubleiurnar.
Maðurinn minn var í
fyrstu mótfallinn því
að nota þær en nú
viljum við ekki annað.
Þetta virtist í fyrstu vera
smá mál en þetta er mjög auðvelt
um leið og maður er búinn að læra
á þetta,“ segir hún. Paulina lenti þó í
smá mótlæti þegar hún var að finna
dagforeldri fyrir dóttur sína því ein
dagmamman neitaði að nota taubleiur
þannig að Paulina leitaði annað. Helga
Dögg segir að dagmamma sonar henn-
ar hafi aldrei áður notað taubleiur en
hún hafi ekki haft neitt á móti því að
prófa. „Hann var fyrsta taubleiubarnið
hennar. Ég sýndi henni bara hvernig
þetta virkaði og hún lærði það strax,“
segir hún. Þær hafa fengið óstaðfestar
fregnir af því að í sumum leikskólum
sé neitað að nota taubleiur en halda
samt að það sé mögulega á misskiln-
ingi byggt. „Margir foreldrar eru
stressaðir yfir því að starfsfólk leik-
Helga Dögg Yngvadóttir, Paulina Garcia og dóttir hennar, og
Benedikta Valtýsdóttir. Þessar mæður stóðu fyrir vitundar-
vakningu um taubleiur þar sem um fimmtíu foreldrar mættu
og skiptu á börnum sínum með taubleiu.
Taubleiur byggjast upp á
tveimur megin þáttum,
ytra efni sem er vatnshelt
og innra efni sem er raka-
drægt efni til að draga
í sig vökva. Þó nokkrar
tegundir eru af bleiunum
og þurfa foreldrar og
börn oft að prófa sig
áfram með notkun þeirra.
Ljósmynd/Hari
Paulina byrjaði
að nota taubleiur
eftir að vinkona
hennar, sem á
tvíbura, mælti
með þeim.
Taubleiur njóta vaxandi vinsælda hjá foreldrum bleiubarna hér á landi enda eru þær ódýrari og umhverfisvænni.
Benedikta Valtýsdóttir heillaðist fyrst af því hvað taubleiurnar eru krúttlegar og finnst virkilega gaman að kaupa nýjar
bleiur fyrir son sinn. Hún var forsprakkinn í að skipuleggja þátttöku Íslands í því að slá heimsmet í taubleiuskiptum um
liðna helgi. Dagmóðir sonar Helgu Daggar Yngvadóttur hafði aldrei áður notað taubleiur en fannst ekkert mál að prófa.
skólanna sé á móti því að
nota taubleiur en oft er það
byggt á þeim misskilningi
að taubleiurnar séu
eins og gömlu
gasbleiurnar
en það er auð-
vitað himinn og
haf þarna á milli,“
segir Benedikta. Foreldrar
barna með taubleiur útvega
dagforeldrum og leikskóla
sérstakan PUL-poka með
rennilás undir óhreinu blei-
urnar sem einnig hamlar
allri lykt.
Þær benda á að sumir
foreldrar noti taubleiurnar
bara á daginn eða bara
á nóttunni, allt eftir því
sem hentar þeirra barni.
„Takmarkið með þessari
vitundarvakaningu er ekki
endilega að allir noti tau-
bleiur alltaf heldur að fólk
sé meðvitað um hvernig
taubleiurnar eru og geti
tekið upplýsta ákvörðun,“
segir Benedikta.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Féll fyrir því hvað taubleiur eru krúttlegar
34 viðtal Helgin 2.-4. maí 2014