Fréttatíminn - 02.05.2014, Qupperneq 35
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Sími 570 2400 · oryggi.is
Öryggismiðstöðin sýnir einstakt listaverkasafn sitt í tilefni af List án landamæra
List án landamæra er árleg listahátíð með áherslu á fjölbreytileika mannlífsins. Við hjá Öryggismiðstöðinni
höfum fylgst náið með hátíðinni og séð hana vaxa og dafna. Áhugi okkar og aðdáun hefur orðið til þess
að við höfum síðustu ár keypt verk eftir listamenn hátíðarinnar. Nú opnum við dyrnar og leyfum öllum að
njóta þeirrar einstöku listar.
Sýningin verður opnuð föstudaginn 2. maí kl. 17
í Öryggismiðstöðinni, Askalind 1, Kópavogi – gengið inn að ofanverðu.
Sýningin er opin helgarnar 3.–4. og 10.–11. maí frá kl. 12 til 15.
Öryggismiðstöðin er stoltur styrktaraðili Listar án landamæra 2014.
LISTIN Á
SÉR ENGIN
LANDAMÆRI
Eftirfarandi listafólk á verk á sýningunni:
Atli Viðar Engilbertsson, Einar Baldursson (unnið á Sólheimum), Hugrún Dögg Þorfinnsdóttir (unnið á Bjarkarási), GÍA, Guðrún Bergsdóttir, Ína, Ingi Hrafn
Stefánsson, Ísak Óli Sævarsson, Jón Grétar Höskuldsson (unnið á Bjarkarási), Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Snorri Ásgeirsson. Á sýningunni verða einnig
samstarfsverk Guðrúnar Bergsdóttur og Eggerts Péturssonar, Sigrúnar Huldar Hrafnsdóttur og Söru Riel og Ísaks Óla Sævarssonar og Hugleiks Dagssonar.
Þá mun listakonan Unnur Mjöll S. Leifsdóttir sýna nýtt verk sem hún vinnur sérstaklega fyrir sýninguna með frænda sínum Degi Steini.
PI
PA
R
\T
BW
A
•
S
ÍA
•
1
40
76
0
viðhorf 35 Helgin 2.-4. maí 2014
R eykvísk heimili eru af öllum stærðum og gerðum. Sum-ir vilja leigja á meðan aðrir
vilja eiga, en allir þurfa þak yfir
höfuðið. Stjórnvöld hafa hingað til
lagt ofuráherslu á að allir eigi hús-
næði. Snúa þarf frá þeirri stefnu og
byggja upp almennan leigumarkað
sem valkost fyrir alla. Þess vegna
ætlar Samfylkingin að beita sér
fyrir því að fjölga leigu- og búsetu-
réttaríbúðum í Reykjavík um 2500-
3000 á næstu árum.
Áður fyrr var leiguhúsnæði
skammtímalausn, úrræði fyrir
tekjulægstu fjölskyldurnar og þær
sem þurftu á félagslegri aðstoð
að halda. Félagslegar leiguíbúðir
verða áfram til staðar fyrir þennan
hóp. Nú er hins vegar einnig mik-
il eftirspurn eftir almennu leigu-
húsnæði. Það sýnir mikil hækkun
á leiguverði og niðurstöður rann-
sókna sem Reykjavíkurborg hefur
látið vinna. Niðurstöðurnar sýna
líka að fólk lítur ekki á leigu sem
tímabundið úrræði heldur getur það
hugsað sér að búa í leiguhúsnæði til
lengri tíma.
Almennur leigumarkaður sem valkostur
Leiguíbúðir fyrir allskonar fólk
Stöðugleiki mikilvægur
Hér á landi hefur almenni leigumarkaðurinn
aldrei virkað sem skyldi og þess vegna viljum við
taka þátt í að umbylta honum. Leigjendur þurfa
að eiga val á milli ólíkra íbúða á mismunandi stöð-
um í borginni. Síðast en ekki síst þá þurfa þeir
stöðugleika svo þeir geti gert langtímasamning.
Borgin á að koma að uppbyggingu leigufélaga
sem starfa á almennum markaði til að tryggja
skjóta uppbyggingu á leiguíbúðum. Einkafram-
takið eitt og sér hefur ekki ráðið við verkefnið.
Reynsla síðustu ára hefur kennt okkur það.
Borgin leggur fram lóðir
Það er þó ekki þannig að Reykjavíkurborg ætli
að niðurgreiða leiguna eða leigja
út íbúðir líkt og meðframbjóðendur
okkar til borgarstjórnar hafa reynt
að telja fólki trú um. Við erum
aftur á móti reiðubúin til að beita
afli borgarinnar til að stokka upp
staðnað kerfi einkaframtaksins og
leita fjölbreyttra lausna. Framlag
Reykjavíkur verður fyrst og fremst
að leggja fram lóðir gegn hlut í
leigufélögum sem ætla að starfa til
langtíma en eru ekki á eftir stund-
argróða. Þar skiptir miklu máli
gott samstarf á kjörtímabilinu sem er að líða við
lífeyrissjóði og samvinnufélög. Ásamt nýju og
góðu aðalskipulagi sem opnar á
byggingu leiguíbúða á heppileg-
um stöðum.
Forgangsmál
Eitt af forgangsmálum Reykja-
víkur á næsta kjörtímabili eru
húsnæðismálin og uppbygging
almenns leigumarkaðar. Samfylk-
ingin hefur lagt fram raunhæfa
áætlun um að fjölga leigu- og bú-
seturéttaríbúðum um allt að þrjú
þúsund. Þess vegna er mikilvægt
að Samfylking fái sterkt umboð til að fara fyrir
stjórn borgarinnar á komandi árum.
Magnús Már Guðmundsson
frambjóðandi Samfylkingar-
innar til borgarstjórnar
1.399
milljónir króna er upp-
hæðin sem skuldir Hafnar-
fjarðarbæjar lækkuðu um
á síðasta ári samkvæmt
nýjum ársreikningum.
120.000
krónur eru
meðaleyðsla hvers
Bandaríkjamanns
sem kom hingað
til lands á síðasta
ári en Banda-
ríkjamenn eyða
mest allra þjóða hér á landi, samkvæmt
Rannsóknarsetri verslunarinnar, 14
milljörðum króna.
212.000
krónur eru meðaleyðsla á hvern
Svisslending hér á landi á síðasta ári
en Svisslendingar eyða mest á hvern
einstaka ferðamann ef horft er til
þjóðernis.
8
sentímetrum
munar á faðmlengd
Gunnars Nelson og
keppinautar hans, Bandaríkjamannsins
Ryan LaFlare, en þeir munu berjast í
Dublin á Írlandi þann 19. júlí.
47,2
prósent Íslendinga
sögðust hlynnt því að
ferðamönnum verði
gert að kaupa nátt-
úrupassa til að öðlast
aðgengi að helstu
ferðamannastöðum
landsins, samkvæmt könnun MMR.
35
milljarða
lækkun
skulda Reykjavíkurborgar á síðasta ári
er met, samkvæmt Degi B. Eggertssyni,
borgarstjóraefnis Samfylkingarinnar.
Vikan í töluM