Fréttatíminn - 02.05.2014, Blaðsíða 38
Íslenska golf-
vorið er hafið
GOLD PLATED
SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS
KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164
THE FSR EPIC - THE ONLY FULL-SUSPENSION
XC BIKE TO WIN OLYMPIC GOLD
AND MULTIPLE WORLD CHAMPIONSHIP GOLD MEDALS
GOLD STANDARD REDEFINED. SPECIALIZED.COM
N ú eru nokkrar vikur síðan fyrsta stórmótinu, sjálfu Masters, lauk á
Augusta-vellinum í Georgíu,
djúpt í suðurríkjum Bandaríkj-
anna. Það mót hefur alltaf haft
þann kraftaverkamátt að koma
golfurum landsins í stuð fyrir
sumarið. Því er tíminn kominn
að sleppa fjarstýringunni og
gramsa eftir golfkylfunum.
Það eru nokkrir hlutir sem
gott getur verið að athuga áður
en arkað er út á æfingasvæðið.
Sveiflan hefur sennilega ryðgað
aðeins í mestu vetrarhörkunni
þannig að gott er að fyrsta sím-
talið sé við golfkennarann. Ef
enginn er golfkennarinn er best
að finna einn í símaskránni því
sama hversu Youtube er sniðugt
er best að hafa alvöru lifandi
manneskju á hliðarlínunni.
Svo eru það kylfurnar. Þær
þurfa að vera í lagi. Ef ánægja
er með gömlu prikin er samt
best að kíkja á gripin. Auk
venjulegs slits geta þau þornað
upp og þá er ekki gott að halda
laust og sveifla með stóru vöðv-
unum.
Ef gripin eru nokkuð komin
til ára sinna er sennilega best
að skipta. Ný grip eru ekki bara
ódýrasta leiðin að betra setti
heldur er líka kjörið að athuga
hvaða stærð af gripum hentar.
Það eru jú ekki allir með jafn
stórar hendur. Það er líka ágætt
að láta kíkja á sveifluþyngdina
þegar búið er að taka gripin af.
Sveifluþyngd fer eftir því hvort
kylfan er haus- eða skaftþung.
Það er hægt að breyta sveiflu-
þyngdinni með því að þyngja
annanhvorn endann á kylfunni
og eins og venjulega, allt eftir
tilfinningu hvers og eins.
Íslandsmeistarinn að störfum á Korpúlfsstöðum síðasta sumar.
Stóri hundurinn
þarf að borða
Dræverinn er kylfan sem flestir kylfingar skipta út hvað örast. Þar hefur líka mesta þróunin orðið
þessi síðustu ár. Nú dettur engum í hug að kaupa trékylfu sem ekki er hægt að stilla eitthvað aðeins.
Allt þetta stillidót hófst með R7 kylfunni frá Taylormade og hefur nú náð til allra stóru kylfuframleið-
endanna og nú er svo komið að tæknin er orðin svo mikil að engin leið er að velja nýjan dræver á
pappírunum. Eina leiðin er að prófa sig í gegn um flóruna og velja með tilfinningunni einni saman.
Sldr
Nýjasti Taylormade
ásinn er með alveg nýrri
pælingu í stillanleikanum.
Þar sem sleða er rennt
til hliðar eftir því hvernig
boltaflug óskast.
Callaway
Big Bertha
Stóra Berta er komin
aftur og reiðari en
nokkru sinni. Kemur í
tveimur misstillanleg-
um útgáfum.
Cobra
Litríkustu kylfurnar.
Appelsínugular, rauðar
bláar, silfraðar og
nýjasti litatónninn hjá
þeim kóbramönnum:
Svartur! Kylfur sem
hægt er að stilla frá 8
upp í 11 gráður. Á einni
og sömu kylfunni.
Titleist
Fyrir þá sem vilja vera
flottir en ekki flíka
því. Pakka kolsvörtum
Titleist dræver ofan í
pokann sinn.
Ping
Þeir sem vilja láta fyrirgefa
sér fá sér G25 og þeir sem vilja
spila eins og Bubba Watson,
svolítið villt en þó á pari, velja
i25. Þennan með röndunum.
Nike
Rory, Tiger og þú.
Þeir sem vilja vera
svalir á því skella
sér á eldrauðan
nækí.
38 frítíminn Helgin 2.-4. maí 2014