Fréttatíminn - 02.05.2014, Page 54
54 heilsa Helgin 2.-4. maí 2014
Heilsa Vanda skal Valið þegar keypt er sólarVörn
KYNNINGKYNNING
Fann fljótlega mun á
meltingunni
Bio-Kult Original er fáanlegt í
öllum apótekum, heilsuverslunum
og heilsuhillum stórmarkaða.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.icecare.isÉ g veit það af reynslunni að mjög margir þjást af melt-ingarvandamálum. Það eru
ýmsar tegundir mjólkursýrugerla
á markaði sem lifa magasýrurnar
ekki af og ná því ekki að virka sem
skyldi. Í mínum störfum hef ég
prófað margar tegundir af mjólk-
ursýrugerlum og finn að Bio-Kult
gerlarnir henta mér best,“ segir
Margrét.
Áður fyrr var Margrét mjög við-
kvæm fyrir ýmsum fæðutegund-
um og fann oft til óþæginda eftir
máltíðir. „Oft leið mér eins og ég
væri með þyngsli í maganum. Eftir
að ég byrjaði að taka Bio-Kult gerl-
ana inn hef ég fundið mestan mun
á líðaninni í smáþörmunum því ég
var mjög viðkvæm í þeim áður. Ég
tek inn fjögur hylki á dag og finnst
henta best að taka þau með mat.
Venjulegur skammtur er tvö hylki
en mér finnst betra að taka auka-
lega. Ég er sérlega ánægð með Bio-
Kult gerlana því að þeir hafa hjálp-
að mér og meltingin hefur lagast til
mikilla muna.“
Margrét Kaldalóns hefur tekið Bio-Kult gerlana inn í nokkra
mánuði og fann fljótlega mjög mikinn mun á meltingunni. Hún
hefur starfað í heilsugeiranum í 30 ár og því kynnst mörgum
tegundum fæðubótarefna og mjólkursýrugerla.
Bio-Kult Original er einstök og öflug
blanda af 14 mismunandi vinveittum
gerlum sem geta komið sér fyrir í
þörmum meltingarvegar og hafa
einstaklega góð áhrif á meltinguna.
Ekki þarf að geyma hylkin í kæli. Þau
er óhætt að nota að staðaldri og
henta vel fyrir fólk með mjólkur- og
soya óþol.
Hjá Heilsumeistaraskólanum er boðið
upp á heildrænt og samþætt nám í
náttúrulækningum. Þar læra nem-
endur um mátt náttúrunnar til að bæta
heilsuna,” segir Gitte Lassen sem rekið
hefur Heilsumeistaraskólann frá árinu
2007 ásamt Lilju Oddsdóttir. Sjálf notaði
Gitte aðferðirnar sem kenndar eru í
skólanum til að lækna sig af síþreytu
eftir að læknirinn hennar tjáði henni að
aðferðir vestrænnar læknisfræði myndu
ekki duga.
Gitte útskýrir að í Heilsumeistara-
skólanum læri nemendur um læknandi
mataræði. „Náttúran er heilari og við
fræðum nemendur um íslenskar jurtir,
kjarnaolíur og blómadropa. Einnig
kennum við hefðbundnar meðferðir og
víxlböð. Síðast en ekki síst læra nem-
endur okkur hvernig hugsanir og
tilfinningar geta stuðlað að heilsufars-
vandamálum,“ segir hún. Að sögn Lilju
hentar námið bæði fyrir sérfræðinga
í heilsu sem vilja ná enn betri árangri
með skjólstæðinga sína og fyrir þá sem
vilja láta sér líða vel alla daga.
„Nemendurnir eru mjög ánægðir því
þeir upplifa sjálfir aðferðirnar sem við
kennum,“ segja þær Gitte og Lilja. „Við
beitum mjög lifandi kennsluháttum með
árangri sem aldrei næðist með lesefni
og upplýsingagjöf eingöngu. Niðurstað-
an er sú að nemendur okkar gangast
undir allsherjar lífsstílsbreytingu, bæði
andlega og líkamlega,“ segja þær.
Gitte nefnir dæmi um einn nemanda
sem gat varla beygt hné sín þegar
námið hófst en gat, eftir tæplega tvö
ár, setið með krosslagða fætur í fyrsta
sinn í tuttugu ár. „Það sem þó sennilega
hefur mest áhrif á nemendurna er að
upplifa aukinn sjálfsþroska,“ segir Gitte.
Að loknu námi sagði einn nemandinn:
„Umbreytingin sem ég upplifði var alger.
Í raun þekki ég ekki sjálfa mig eftir þessi
þrjú ár. Ég er léttari og frjálsari, sáttari
og fróðari. Sjálfsþroskinn er gífurlegur.“
Nánari upplýsingar má nálgast á vef
skólans www.heilsumeistaraskolinn.
com.
Spennandi nám í
náttúrulækningum
Lilja Oddsdóttir og Gitte Lassen eru skólastjórnendur Heilsumeistaraskólans
þar sem nemendur læra um mátt náttúrunnar til heilunar.
Hversu mikilvæg er heilsan? Hversu mikilvægt er að nota
náttúruna til heilsubótar?
Margrét Kaldalóns fann oft til
óþæginda í meltingu eftir máltíðir en
líður mun betur eftir að hún byrjaði
að taka inn Bio-Kult Original hylkin.
1. Veldu góða sólarvörn
Vandaðu valið þegar þú kaupir sólarvörn og ekki bara taka þá
fyrstu sem ilmar vel. Best er að kaupa sólarvörn frá viðurkennd-
um aðilum sem bæta ekki skaðlegum aukaefnum í sólarvörnina,
og í raun er best að hún sé ilmefnalaus til að minnka líkur á
ertingu. Sneiddu líka hjá vörn sem inniheldur PABA, A-vítamín
(retinyl palmitate) og skordýraeitur.
2. Athugaðu SPF stuðulinn
SPF stuðullinn segir til um styrkleika sólarvarnarinnar, því hærra
sem stuðullinn er því sterkari er vörnin og dugar lengur. Ágætt
er að miða við að nota sólarvörn með SPF 15 á hefðbundnum
vordegi en 30+ þegar farið er í sund eða sólbað í garðinum.
3. UVA og UVB-vörn
Sólarvörnin þarf að innihalda bæði vörn gegn UVA og UVB
geislum. Þetta eru tvær tegundir útfjólublárra geisla og þú þarft
vörn gegn þeim báðum.
4. Berðu á þig tímanlega
Sólarvörn byrjar aldrei að virka strax þannig að þú skalt bera
hana á þig, og börnin þín, minnst 20 mínútum áður en farið er út í
sólskinið. Alltaf skal bera á sig aftur þegar komið er upp úr sund-
laug og á um tveggja tíma fresti á meðan verið er úti í sólinni.
5. Ekki nota gamla sólarvörn
Mundu að sólarvörn rennur út eins og annað þannig að keyptu
nýja vörn á hverju vori. Ekki treysta á gamla vörn því hún ver
húðina ekki jafn vel og ný. Allar gerðir sólarvarna eru merktar
með síðasta notkunarmánuði.
6. Föt eru sólarvörn
Ljósir litir hrinda geislunum frá sér og því er tilvalið að vera í
ljósum bolum og buxum í sólinni. Það er hins vegar alveg hægt
að brenna í gegnum fatnað en hægt er að fá föt sem eru með
innbyggðri sólarvörn og eru þau þá merkt þannig. Sum vernda
einnig gegn útfjólubláum geislum.
7. Notaðu sólgleraugu
Sólgleraugu vernda augun gegn útfljólubláum geislum. Ekki
kaupa samt flottustu gleraugun eða þau ódýrustu nema þú vitir
að þau séu með UV-vörn. Gott er að setja einnig á sig sólhatt eða
derhúfu til að vernda andlitið.
8. Drekktu nóg
Vatn er alltaf besti kosturinn á heitum dögum, og reyndar þeim
köldu líka. Ef þú ert að ganga eða hreyfa þig mikið í sólinni er
einnig mælt með íþróttadrykk sem bætir einnig upp steinefnatap.
Best er að drekka lítið í einu og oft. Mundu að sykur í drykkjum
vegur upp á móti góðu áhrifunum og áfengisneysla í sólinni getur
hreinlega leitt til ofþornunar.
9. Vertu í skugganum
Sólin er hæst á lofti um miðjan daginn og á góðum sólardögum
eru mestar líkur á sólbruna milli 10 á morgnana og 14 síðdegis.
Á þeim tíma er tilvalið að sitja einfaldlega í skugganum, fá sér
vatnssopa eða jafnvel skella sér í sund.
10. Líka í snjónum
Þeir sem eru vanir því að ganga á jökla og stunda skíði vita að
það er mikilvægt að bera vel á sig af sólarvörn, einnig á varirnar,
því endurkast sólarinnar frá snjónum er svo mikið. Þetta er eitt af
því sem byrjendur þurfa að hafa í huga því fátt er leiðinlegra en
að vera sólbrunninn eftir góða jökulgöngu. Varasalva er hægt að
fá með háu SPF gildi sem hentar vel bæði á jökul og við sjóinn.
Verndum húðina í sólinni
Húðin er stærsta
líffærið okkar
og mikilvægt að
halda henni heil-
brigðri. Nú þegar
sólargeislarnir
eru farnir að láta
sjá sig er mikil-
vægt að verja
húðina og næra
til að vernda þá
fyrir skaðlegum
áhrifum sólar-
innar sem meðal
annars geta leitt
til sólbruna og
jafnvel krabba-
meins. Einfald-
asta leiðin, fyrir
utan að halda sig
innandyra, er að
velja góða sólar-
vörn. Hér koma
nokkur atriði
sem hafa þarf í
huga þegar sólin
skín.
Góð sólarvörn er lykilatriði þegar kemur að því að verja
húðina fyrir skaðlegum geislum sólarinnar. Veljið SPF-stuðul
við hæfi, því hærri sem hann er því sterkari er vörnin.
Börn hafa sérlega viðkvæma húð og mikilvægt að verja þau
vel í sólinni. Gott er að kaupa líka sólgleraugu fyrir þau
yngstu til að verja augun.
Þegar lagt er í fjallgöngu þar sem enn er snjór eða gengið á
jökul þarf að bera á sig sterka vörn vegna endurkastsins af
ísnum. Ljósmyndir/NordicPhotos/Getty
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is