Fréttatíminn - 02.05.2014, Blaðsíða 66
Það verður mikið um dýrðir í Þjóðleikhús-
inu á þriðjudaginn næsta, 6. maí, þegar
leikfélag Sólheima og vinafélag þess frá
Madríd á Spáni verða með hátíðarsýningu.
Leikfélag Sólheima og Afanias frá Madr-
íd hafa unnið að sýningunni saman síðan í
september. Sólheimaleikhúsið sýnir Lorca
og skóarakonan sem er leikgerð eftir
Eddu Björgvinsdóttur og Spánverjar sýna
Bergmál sem er dansverk. Í verkunum
túlka Sólheimabúar spænska menningu og
Madrídarbúar túlka íslenska menningu.
Bæði leikfélögin eru blönduð fötluðum og
ófötluðum einstaklingum og er Sólheima-
leikhúsið hið elsta starfandi í heiminum
sem er þannig samsett. Það hefur frum-
sýnt leikverk á sumardeginum fyrsta í 84
ár.
Sólheimabúar munu endurgjalda heim-
sókn Spánverjanna í lok júní. Þá verða
verkin sýnd í Mira-leikhúsinu í Madríd.
Sýningin á þriðjudag er á stóra sviðinu
og hefst klukkan 19.30. Hún stendur í tvo
tíma. Miðaverð er 2.500 krónur.
Leikhús hátíðarsýning í ÞjóðLeikhúsinu á ÞriðjudagskvöLd
Sólheimabúar og spænskir
vinir á stóra sviðinu
Leikfélag Sóheima
og vinafélag þess
frá Spáni sýna á
stóra sviði Þjóð-
leikhússins.
Mynd/Pétur Thomsen
Stórsöngvarinn Helgi Björnsson ætlar að
hóa hljómsveit sinni, Reiðmönnum vindanna,
saman á stórtónleika í Eldborgarsal Hörpu
hinn 16. júní í sumar. Helgi og Reiðmenn-
irnir hafa notið mikilla vinsælda síðustu
ár en langt er um liðið síðan sveitin hefur
troðið upp í Reykjavík. Sveitin hefur gefið út
fjórar plötur sem samtals hafa selst í yfir 40
þúsund eintökum. Sérstakir gestir á tónleik-
unum verða leikararnir og hestamennirnir
Hilmir Snær Guðnason og Jóhann Sigurðar-
son auk Arnar Árnasonar og meðlima úr
Buff. Miðasala fer fram á Harpa.is.
Helgi bókar Hörpuna
BLAM! aftur í Borgarleikhúsið
Hið vinsæla verk Kristjáns
Ingimarssonar, BLAM!,
kemur aftur á stóra svið
Borgarleikhússins hinn
13. maí næstkomandi.
Sýningin sló í gegn í
Danmörku og víðar um
heim og fékk sex Grímutil-
nefningar í fyrra. Kristján
hlaut ein þeirra, Sproti
ársins. BLAM! naut mikilla
vinsælda í fyrra og er
því ekki vitlaust að vera
snemma á ferðinni í að
tryggja sér miða.
Þ að má eiginlega segja að við séum algjörar andstæður í myndlistinni,“ segir Þórunn
Hjartardóttir myndlistarkona en
hún og dóttir hennar, Steinunn
Eldflaug, lærðu báðar myndlist
hér á landi en útskrifuðust með 24
ára millibili og eru með gjörólíka
nálgun á sköpunina. „Ég er mjög
mikið í geómetríu og einföldun.
Verkin mín eru abstrakt og ganga
út á að minna er meira. Ég var
alltaf að mála abstrakt verk, með
olíu og striga. Svo fann ég þessa
aðferð til að færa geómetríuna út
úr málverkinu og nota til þess bók-
bandslímband, sem er úr striga
og bara til í fáum litum. Svo núna
bý ég til geómetríu með því, bara
beint á veggi, inni eða úti. Ég vinn
beint í rýmið þannig að verkin eru
bæði tíma- og staðbundin,“ segir
Þórunn og bætir því við að hún
hafi aldrei notað fígúrur í sínum
verkum en Steinunn aftur á móti
sé alltaf fígúratíf.
Algjörar andstæður í tjáningu
„Mamma er svona „less is more“ á
meðan ég er bara „more is more“.
Hjá mér er alltaf eitthvað rosalega
mikið og skrautlegt og eiginlega
alltaf einhverjar fígúrur. Mamma
er aldrei með dýr eða neinar líf-
verur í sínum verkum en ég er
eiginlega alltaf með einhver dýr
eða fólk. Svo nota ég sem mest af
litum og sem minnst af beinum
línum,“ segir Steinunn sem hefur
vakið athygli upp á síðkastið fyrir
eins manns hljómsveitina sína Dj.
Flugvél og geimskip. „Tónlistin er
í raun bara annar vinkill á þessari
sköpunarþörf. Það eru einhver
ævintýri þarna inni í manni og svo
kemur maður þeim frá sér á ein-
hvern hátt.“
Þrátt fyrir að hafa gjörólíka
nálgun í myndlistinni eru þær
samstiga að öðru leyti, hafa svip-
aðar hugmyndir um lífið og til-
veruna, dást að sömu listamönn-
unum og eru nánar vinkonur. „Já,
það er eiginlega alveg ótrúlegt
hvað við erum sammála um
margt í bæði myndlist og tónlist
því okkar persónulega tjáning er
gjörólík,“ segir Þórunn.
Óvænt útkoma tveggja ólíkra
heima
„Það verður furðuleiðsla og „kid-
pix“ í mínu boði, segir Steinunn.
Kidpix er forrit sem var hannað
fyrir börn til að leika sér við að
gera myndlist í tölvum en enginn
hefur tekið alvarlega sem mynd-
listarforrit. Furðuleiðslan er svo
lifandi hljóðverk og við munum
líka nota röddina á sýningunni,
en það verður bara að koma í ljós
hvernig, segja þær kankvísar, en
báðar vinna með röddina dags-
daglega, Steinunn sem tónlistar-
kona en Þórunn hefur lesið inn
á hljóðbækur til fjölda ára. Svo
verður líka eitt samvinnuverk
milli mín og ákveðins leynigestar,
segir Steinunn dularfull og neitar
að gefa meira uppi um það en á
Sýningunni megum við búast við
að sjá ólíka heima þessara tveggja
skapandi kvenna skarast og
mynda nýja óvænta vídd.
„Við erum ekki með neitt fyri
fram ákveðið þema,“ segir Stein-
unn. „Nei,“ segir Þórunn. „Við
bara mætum þarna upp eftir með
okkar dót og byrjum að vinna.
Vinnum bara hvor í sínu horni og
sjáum svo hvað kemur úr því. Hug-
myndin er ekki að skapa neitt verk
sameiginlega en útkoman verður
auðvitað okkar beggja. Ég mun
allavega draga eitthvað fram með
límbandinu mínu og það verður í
rauninni bara að koma í ljós hvað
og hvernig.
Ég mun skoða rýmið vel og
vinna mitt út frá því. Ég geri það á
óræðan hátt, svo að áhorfandinn
getur ekki verið alveg viss um
hvort það sem ég geri hafi verið
þar áður eða ekki,“ segir Þórunn.
Sýningin „Mæðgur í mynd-
list“ er í 002 Galleríi, Þúfubarði
17 Hafnarfirði, og verður opin
um helgina frá klukkan 14 til 17 á
laugardag og sunnudag. Aðgangur
er ókeypis og eru allir hjartanlega
velkomnir, en sýningin er aðeins
opin þessa einu helgi. Hægt er að
fræðast meira um sýninguna á
Facebook síðu 002 Gallerís.
Halla Harðardóttir.
halla@frettatiminn.is
MyndList Mæðgur Með sýningu í 002 gaLLerí
Steinunn Eldflaug opnar
sýningu með mömmu sinni
Um helgina munu myndlistarkonurnar og mæðgurnar Þórunn Hjartardóttir og Steinunn Eld-
flaug Harðardóttir opna sína fyrstu sameiginlegu sýningu. Þrátt fyrir að vera samstiga í flestu
mun sýningin leiða í ljós á hversu ólíkan hátt þær nálgast myndlistina en ólíkir heimar þessara
tveggja skapandi kvenna munu án efa mynda saman nýjar og óvæntar víddir.
Mæðgurnar Steinunn Eldflaug og Þórunn Hjartardóttir eru algjörar andstæður í myndlistinni. Þær leiða saman hesta sína á
sýningu í 002 Galleríi um helgina. Ljósmynd/Hari
66 dægurmál Helgin 2.-4. maí 2014