Fréttatíminn - 02.05.2014, Blaðsíða 70
hjólreiðar Helgin 2.-4. maí 20142
Skemmtilegar hjólaferðir
í sumar með Útivist
Ferðaáætlun á utivist.is
KYNNING
K rumma er íslenskt fyrir-tæki sem var stofnað árið 1986. Starfsemi fyrirtæk-
isins skiptist í þrjá hluta: fram-
leiðslu og hönnun á vörum fyrir
leikvelli og opin svæði; heildsölu
til verslana og skóla; og leik-
fangaverslun, fyrir einstaklinga,
sem staðsett er á Gylfaflöt 7 í
Grafarvogi.
Krumma býður fjölmargar
gerðir af hjólagrindum sem
henta bæði á almenningsstöðum,
við vinnustaði og í heimahúsum.
Hjólagrindur Krumma eru á
allan hátt íslensk framleiðsla og
hjólagrindur frá fyrirtækinu er
að finna í flestum sveitarfélögum
landsins.
Hjólagrindurnar eru ýmist
ryðfríar eða heitgalvanhúðaðar
og ryðga því ekki. Þær eru efnis-
miklar og því feikilega sterkar.
Auðvelt er að sérsníða hjóla-
grindur til þess að mæta kröfum
kaupenda. Einnig er hægt að
mála hjólagrindur í þeim lit sem
kaupandi velur, ef það er gert eru
þær húðaðar með „antigravity“
efni sem auðveldar til dæmis þrif
á veggjakroti og hlífir málning-
unni vel.
Þær grindur sem eru vinsæl-
astar eru þær sem hlífa hjólunum
sem best, þ.e. hjól eru ekki sett
í rauf sem gæti eyðilagt gjarðir
og dekk. Þær hjólagrindur eru í
boga og standa sér, með því að
hafa þær stakar er því hægt að
læsa mörgum hjólum við þær en
jafnframt vernda hjólin sjálf.
Einnig býður Krumma upp á
úrvalaf hjólagrindum með rauf
sem er bæði hægt að festa á
veggi og í jarðveg.
Íslenskar hjólagrindur
fyrir íslenska veðráttu
Á rið 2012 var Gull-hringurinn bara hugmynd að hjól-
reiðakeppni sem var fram-
kvæmd með nokkurra vikna
fyrirvara. Í fyrra var keppnin
næst stærsta keppni ársins
og í ár verður keppnin án
vafa sú stærsta. Keppnis-
dagarnir eru orðnir þrír og
hlykkjast um söguslóðir
Suðurlands. Fyrsta leiðin er
hjóluð fimmtudagskvöldið
10. júlí en þá er það Öxará.
Ljósafossleggurinn verður
hjólaður laugardaginn 12.
júlí og svo er komið að
sjálfum Gullhringnum,
sunnudaginn 13. júlí. Gull-
hringurinn er 111 km leið og
lagt er af stað frá Laugar-
vatni klukkan 8 að morgni
sem leið liggur að Geysi.
Beygt er inn á Biskupstungn-
abraut rétt fyrir neðan Geysi
og hjólað niður allar Biskups-
tungurnar sem leið liggur
yfir Brúará og inn á Gríms-
nesið alla leið niður að Þing-
vallaafleggjaranum. Þaðan
er hjólað upp Þingvalla-
sveitina að beygjunni inn á
Lyngdalsheiði og svo hjólað í
mark við Laugarvatn.
Allir velkomnir
Mottóið er „allir hjóla, allir
vinna og allir velkomnir“.
Keppnirnar eru bæði sniðnar
að afreksfólki sem keppir
í A-flokki og áhugafólki
sem keppir í B-flokki. Tugir
brautarvinninga og bætt
heilsa tryggja öllum verðlaun
með einum eða öðrum
hætti. Hægt er að skrá sig í
eina, tvær eða allar dagleið-
irnar. Verðlaun eru veitt
fyrir alla aldursflokka í öllum
keppnunum auk glæsilegra
brautarverðlaun veitt eru í
lok allra keppnisdaga.
Liðakeppni
Lið mega nú skrá sig til leiks
í fyrsta sinn í Gullhringum.
Hvert lið þarf að telja fimm
keppendur og bæði kyn geta
verið saman í liði. Saman-
lagður tími þriggja bestu
úr hverri dagleið gildir til
samanlagðs árangurs. En
rúsínan í pylsuendanum er
sú að sigurliðið hlýtur eina
alíslenska milljón að launum.
Líklega hæstu peninga-
verðlaun í sögu íslenskra
hjólreiðakeppna.
Viltu vinna milljón?
1 Vertu fyrirsjáanlegur
Á hjóli lýtur þú sömu reglum
og vélknúin ökutæki og þarft
að haga þér eftir því. Stoppa
á rauðu ljósi og gefðu merki
með hendinni ef þú þarft að
beygja. Og passaðu þig á hægri
beygjum bílanna, íslenskir
bílstjórar eru ekki vanir að líta í
spegilinn fyrir hægri beygju.
2 Hafðu hjólið ávallt í góðu standi
Í hvert skipti sem þú sest á
hjólið skaltu tékka á loft-
þrýstingnum í dekkjunum,
bremsunum og keðjunni. Loft-
þrýstingurinn á að vera réttur
miðað við dekkið, bremsurnar
eiga að virka og keðjan á að
vera hrein og án slaka.
3 Vertu sýnilegur
Það er skylda að hafa ljós á
hjólinu þínu ef þú hjólar í myrkri
(sem er nóg af hér á veturna).
Vertu með öflugan kastara að
framan og gott rautt ljós að
aftan, ekki láta glitaugu duga.
4 Veldu hentugan klæðnað
Verðu þig gegn kulda og bleytu
með góðum fatnaði. Það er
algjört lykilatriði að vera með
góða hanska og helst skóhlíf.
Vertu í vel sýnilegum fatnaði, ef
þú getur með endurskini.
5 Láttu hjólið um burðinn
Ef þú ert ekki á keppnishjóli er
ágæt hugmynd að setja dótið
þitt í hliðartöskur á bögglaber-
ann til að létta á öxlunum og
passa upp á bakið.
HjóLAðu þIG í form
Gullhringurinn
er stærsta
hjólreiða-
keppni ársins
og fer fram í
júlí. Keppnin
er jafnt fyrir
afreksfólk og
dútlara og eru
áhugamenn
um hjólreiðar
hvattir til að
koma og hvetja
keppendur
áfram. Guðbjörg Halldórsdóttir hjá Yndisauka og María Ögn Guðmunds-
dóttir, sigurvegari kvenna í Gullhringnum í fyrra og hjólreiðakona
ársins 2013 hjá ÍSÍ, glaðar eftir vel heppnaðan Gullhring.
Lj
ós
m
yn
di
r/
Pé
tu
r
Þ
ór
R
ag
na
rs
so
n
5leiðir til að komast örugglega í vinnuna