Fréttatíminn - 02.05.2014, Side 74
Ég mæli eindregið
með Magnesíum Sport
spreyinu því það hefur
hjálpað mér við endur-
heimt vöðva, þreytuverki
og til að koma í veg fyrir
krampa og harðsperrur.
hjólreiðar Helgin 2.-4. maí 20146
KYNNINGKYNNING
Halldóra Matthíasdóttir útibús-
stjóri breytti um lífsstíl árið 2008.
Fyrst með því að breyta algjör-
lega um matarræði og tók því
næst á hreyfingunni og byrjaði
að hlaupa. Hún fór svo sitt fyrsta
maraþon árið 2011 og tók
einnig þátt í Laugavegs-
hlaupinu og Jökulsár-
hlaupinu sama ár. Það
var svo í upphafi árs 2012
að hún skráði sig í Iron-
man keppni í Cozumel í
Mexíkó sem var haldin
í lok nóvem-
ber. Í Iron-
man keppni
synda þátt-
takendur
3,8 km, hjóla
180 km og
hlaupa svo
42,2 km. Í
kjölfarið
fór hún því
einnig að
æfa sund og
hjólreiðar og
lauk svo öðr-
um Ironman
í Frankfurt
í fyrra og er
skráð í þann
þriðja í Kal-
mar í Sví-
þjóð í ágúst.
Þreytan hvarf eins og dögg
fyrir sólu!
Halldóra æfir að meðaltali níu
sinnum í viku, þrjár æfingar í
hverri grein. „Eftir æfingar nota
ég alltaf Magnesíum Sport
spreyið því það hefur hjálpað
mér verulega í „recovery“ eða
endurheimt vöðva og minnkar
líkur á krampa og harðsperrum.
Ég hljóp um daginn með æfinga-
félögunum mínum frekar langt
hlaup á laugardegi, eftir að hafa
verið frá í nokkurn tíma
vegna handleggs -
brots. Eftir hlaupið
fékk ég mikla pirr-
ings- og þreytuverki
í sköflung og læri.
Ég nuddaði vöðvana
með Magnesíum
Sport spreyinu og
fann þreytuna og
pirringinn strax líða
hjá. Það var eiginlega
alveg ótrúlegt hvað
það virkaði hratt! Ég
notaði líka Magnesí-
um Orginal spreyið
á svæðið þar sem ég
brotnaði á úlnliðnum
og finnst það hafa
hjálpað mér verulega
í batanum,“ segir
Halldóra.
Magnesíum Sport fæst á eftir-
töldum stöðum: Lyfja, Lyf og
heilsa, flest apótek, Fjarðarkaup,
Heilsuhúsið, Lifandi markaður,
Tri, Systrasamlagið, valdar Hag-
kaupsverslanir, Þín verslun Selja-
braut, Crossfit Reykjavík, Lyfja-
ver/Heilsuver og World Class,
Seltjarnarnesi.
Nánari upplýsingar má nálgast
á www.gengurvel.is.
Alveg ótrúlegt hvað Magnesíum
Sport spreyið virkar hratt!
Halldóra Matthíasdóttir
þríþrautarkona er mjög
ánægð með Magnesíum
Sport spreyið frá Better
You og notar það eftir allar
æfingar. Sérstaklega finnur
hún mikinn mun á endur-
heimt vöðva og bata eftir
æfingar.
Þríþrautarkonan
Halldóra Matthías-
dóttir æfir að
meðaltali níu sinnum
í viku notar alltaf
Magnesíum Sport
eftir æfingar.
Þegar magnesíum í olíuformi er
borið á húðina er magnesíum
upptakan allt að 100 prósent og
því mun áhrifaríkari en þegar
magnesíum er tekið inn í gegnum
meltingarveginn.
Þar af leiðandi er engin hætta á
ónotum í meltingu.
Þá er magnesíum í sprey formi er
allt að fimm sinnum fljótara að
skila sér út í líkamann.
Líkaminn þarfnast magnesíum til
að auka:
Orku, jafna blóðflæði, auka
upptöku kalks og hjálpa vöðva-
starfsemi.
Við nútíma matvælaframleiðslu
og lifnaðarhætti hefur upptaka
á magnesíum í gegnum fæðuna
minnkað til muna.
Hefur lést um
25 kíló síðan hann
byrjaði að hjóla
Íþrótta- og ólympíusamband Íslands
stendur fyrir vinnustaðakeppninni
Hjólað í vinnuna dagana 7. - 27. maí
næstkomandi í tólfta sinn. Meginmark-
mið Hjólað í vinnuna er að vekja athygli á
virkum ferðamáta sem heilsusamlegum,
hagkvæmum og umhverfisvænum
ferðamáta.
Einn þeirra sem tekur þátt í Hjólað í
vinnuna í ár er Ingvar Júlíus Tryggvason,
starfsmaður Nýherja, en hann tekur nú
þátt þriðja árið í röð.
„Ég keypti mér hjól hjá GÁP fyrir tveimur
árum og langaði að prófa. Ég bý í
Hafnarfirði og vinn á Köllunarklettsvegi
í Reykjavík. Í fyrstu var þetta erfitt enda
stysta leiðin 12.7 kílómetrar en þetta
varð alltaf léttara og léttara,“ segir
Ingvar sem hefur hjólað reglulega síðan.
„Oft lengi ég leiðina og verður leiðin
út á Gróttu oft fyrir valinu, enda mjög
skemmtileg og falleg leið. Ég hjóla líka á
veturna ef veður leyfir, ég set mörkin við
átta metra á sekúndu samkvæmt spánni.
Þá nota ég Strætó í staðinn.“
Ingvar kveðst hjóla að jafnaði 1-3 sinnum
í viku til og frá vinnu en auk þess hjólar
hann mikið á kvöldin og um helgar. Hann
hefur uppfært hjólakostinn og á nú bæði
fjallahjól og racer.
Alls hefur Ingvar hjólað vel yfir sex
þúsund kílómetra á þessum tveimur
árum. Þá hefur hann lést um 25 kíló
frá því hann byrjaði að hjóla. „Ég er
bæði léttari og miklu ánægðari.
Og það er bara hjólreiðunum að
þakka.“
Ingvar hefur sömuleiðis orðið var
við breytt viðhorf
meðal lands-
manna. „Ég
hef prófað að labba þessa sömu leið og
ég hjóla og það er svakalega gaman að
fylgjast með öllum sem hjóluðu fram hjá
mér. Skemmtilegast fannst mér að sjá
fólk í öllum aldursflokkum vera að hjóla
í vinnuna og fannst mér virðingin sem
allir báru fyrir öðru hjólafólki og þeim
sem voru gangandi vera til fyrirmyndar.“
Skráning fer fram á www.hjoladi-
vinnuna.is. Bæði er hægt að skrá allan
vinnustaðinn í eitt lið eða búa til nokkur
lið og er þá hægt að hafa keppni innan
vinnustaðarinns. Eftir það geta aðrir
starfsmenn farið inn á heimasíðuna og
skráð sig í lið.
Átakið hjólað í vinnuna er handan við
hornið. Ég byrjaði að hjóla í vinnuna vorið
2008. Það var reyndar ekki vegna þessa
sniðuga árlega átaks heldur þess að
ég hafði brotið hnéskelina á mér í
tvennt. Ég ákvað því að kaupa mér
hjól, svokallaðan racer, byrja að
hjóla í vinnuna og styrkja þannig
hné og alla vöðva þar um
kring. Vegalengdin er 13
kílómetrar aðra leið og
leyfi ég mér að fullyrða að þessir 26
kílómetrar á dag þetta sumar voru
lykillinn að afar skjótum bata. Ég hef
svo haldið áfram að hjóla í vinnuna, fyrst
eingöngu á sumrin en undanfarin ár allt
árið um kring.
Ég man hvað ég fór hægt í byrjun. Ég fór
ekki fram úr neinum og var endalaust
skilinn eftir í ryki annarra hjóla. Þetta
var töluvert pirrandi fyrir keppnis-
mann og ég lofaði mér því að þegar
fram liðu stundir skyldi enginn
taka fram úr mér á hjólastíg-
unum. Þetta markmið hefur
svo þróast út í það að allir sem eru
á stígunum eru svarnir andstæðingar
mínir. Sökum þessarar áráttu minnar hef
ég oftar en einu sinni neyðst til þess að
breyta leið minni til vinnu því hatrammur
andstæðingur fer aðra leið en ég. Maður
hættir ekki í miðri keppni.
Ég verð þó að viðurkenna að yfirleitt er
þetta nú ekkert sérstaklega dramatísk
keppni enda aðrir hjólreiðamenn yfirleitt
að hugsa um að koma sér í eða úr vinnu
í rólegheitum. Þó var það eitt skipti sem
ung kona í gallabuxum og strigaskóm,
kom mér að óvörum og tók fram úr mér
í Elliðaárdalnum. Hún sat hátt á hjólinu
sem var með körfu á stýrinu og steig það
furðulétt. Mér, sem var í bleiubuxum,
nýjum hjólajakka og með hjólaklatta, var
nóg boðið. Ég skipti um gír og þeysti á
eftir henni og saxaði vel á. Þegar ég var
alveg að ná henni við brekkuna í dalnum
er eins og hún hafi orðið mín vör, gaf í
upp brekkuna og skildi mig eftir. Ég var
niðurbrotinn maður, svaf illa næstu nætur
og fannst ég ekki eiga skilið að hjóla
í bleiubuxum. Það var þó um tveimur
vikum seinna að ég tók gleði mína á ný. Þá
sá ég þessa sömu stúlku á hjólinu á leið
niður Elliðaárbrekkuna. Ég spændi á eftir,
tók fram úr henni og sá um leið að hún var
á rafhjóli.
Ég hvet alla til að taka þátt í átakinu, setja
sér markmið að hjóla sem oftast til vinnu
þennan tíma og setja svo ný markmið í
framhaldinu. Aðstæður til hjólreiða eru
góðar og fara hratt batnandi. Þetta er
ekkert mál og svo vantar mig fleiri and-
stæðinga á stígana.
Baráttan á hjólastígunum
Eiríkur Önundarson
körfuboltasérfræðingur
ritstjorn@frettatiminn.is