Fréttatíminn - 02.05.2014, Síða 78
KYNNING
hjólreiðar Helgin 2.-4. maí 201410
R eiðhjólaverslunin GÁP býð-ur upp á gott úrval vandaðra hjóla og fylgi- og varahluta
fyrir alla fjölskylduna. Að sögn Mo-
gens Markússonar eru toppmerki
hjá GÁP, eins og Mongoose, Cannon-
dale og Kross. Þessa dagana er mjög
gott tilboð á Mongoose Assphalt
Tripple sem kostar aðeins 99.900
krónur. „Þetta er ekta götuhjól sem
hentar vel fyrir fólk sem vill hjóla í
vinnuna. Við hjá GÁP köllum þetta
hjól kílómetraskrímsli því það er svo
létt og gott götuhjól og fer hratt yfir.
Á því er mjög auðvelt að hjóla langar
leiðir.“
Kross hjólin eru ný lína hjá GÁP
en þau eru framleidd í Póllandi með
evrópskum metnaði og hafa, að sögn
Mogens, komið skemmtilega á óvart.
„Þetta eru virkilega flott og góð To-
uring götuhjól sem hafa verið mjög
vinsæl.“
Hraðamælar vinsælir
Næsta mánudag hefst Átakið Hjólað
í vinnuna þar sem fólk keppist við að
hjóla sem flesta kílómetra. Hjá GÁP
fást einfaldir og góðir hraða- og kíló-
metramælar frá SigmaSport í Þýska-
landi sem hafa verið mjög vinsælir.
„Það besta er að hægt er að slá inn
bensíneyðslu á bílnum og sjá hversu
mikill sparnaðurinn er með því að
hjóla í vinnuna í stað þess að nota
bílinn,“ segir Mogens.
Cyclocross í borginni og á
mölinni
Cannondale Cyclocross hjólin hjá
GÁP njóta sífellt meiri vinsælda
en þau eru með hrútastýri eins og
keppnishjól en þó með breiðari og
grófari dekkjum. Mogens segir þau
því bæði henta á götum borgarinnar
og á malarvegum, eins og í Heið-
mörk. „Þessi hjól eru mjög hent-
ug fyrir þá sem flokka má „lengra
komna“. Hægt er að ná miklum
hraða og reiðhjólamaðurinn er fram-
hallandi og vindmótstaðan lág.“
Ný og betri tegund af stelli
Synapse hjólin frá Cannondale eru
með mjóum dekkjum en aðeins
hærri ásetu en keppnishjól almennt
svo þau henta vel til almennra hjól-
reiða eins og í og úr vinnunni. „Í
þessum hjólum er alveg ný gerð af
stelli. Í bæði fram- og afturgaffli er
svokallað „Micrsusspencion“ sem
tekur út þennan fína víbring sem
finnst þegar hjólað er á grófu mal-
biki. Þessi hjól hafa slegið í gegn í
Evrópu að undanförnu.“ Nánari upp-
lýsingar má nálgast á www.gap.is
Vönduð hjól fyrir alla
fjölskylduna hjá GÁP
Hjá GÁP er gott úrval reiðhjóla fyrir fólk á öllum aldri. Vinsæl-
asta nýjungin er einfaldur hraðamælir sem mælir hve mikill
sparnaður hlýst af því að hjóla í stað þess að nota bílinn.
Fyrir börnin
GÁP er fjölskylduvæn verslun með
gott úrval hjóla og fylgihluta fyrir
reiðhjólafólk frá tveggja ára aldri.
„Við erum með norska hjálma frá Etto
sem einnig framleiðir Hamax barna-
stólana vinsælu,“ segir Mogens.
Réttur fatnaður
Mogens segir að á lengri vegalengdum
skipti sköpum að klæðast góðum hjól-
reiðafatnaði. „Hjá okkur er gott úrval
frá Cannondale og Adidas. Það munar
miklu að vera í hjólabuxum og góðum
vindheldum jakka. Það hef ég margoft
reynt sjálfur.“
Viðhald og varahlutir
Nauðsynlegt er að hugsa vel um
hjólið og smyrja það og bóna reglu-
lega. Hjá GÁP er mjög gott úrval
smur- og hreinsiefna. Þar er einnig
verkstæði sem sinnir öllum reið-
hjólaviðgerðum og almennu við-
haldi.
Vertu rétt settur
Það er mikilvægt að hver og einn hjólari finni sína bestu stöðu á hjólinu.
Að sitja of framarlega eða aftarlega eða halla sér of langt fram
takmarkar þá orku sem fer í pedalana og gerir allt erfiðara. Fáðu hjálp
hjá sérfræðingi ef þú ert ekki viss um hver þín rétta staða er.
Vertu taktfastur
Hversu hratt og taktfast fæturnir spinna er gríðarlega mikilvægt. Það
sparar vöðvaorku ef fæturnir komast með pedalana 80-100 hringi á
mínútu í léttari gír í stað þess að fara 60-70 hringi í þyngri gír.
Sparaðu orkuna
Ef þú átt langt að fara og ert gríðarlega hress í upphafi er samt
mikilvægt að spara orkuna þó þú getir meira til þess að
þú eigir eitthvað inni í seinni hlutanum. Haltu því
góðu og jöfnu tempói. Það mun koma þér fyrr á
leiðarenda.
Láttu lappirnar
vinna vinnuna
Reyndu að halda efri hluta líkamans eins
kyrrum og hægt er. Því meira sem þú hreyfir
þig þeim mun meiri orka fer til spillis. Einbeittu
þér að því að koma allri orkunni frá löppunum í
pedalana.
Nærðu þig
Það er algjört lykilatriði að drekka vel á hjólinu og borða á
lengri leiðum, annars verður lítið um árangur. Góður
orkudrykkur og vönduð orkustöng kemur þér
lengra. Vertu sídrekkandi, lítið í einu og
reyndu að forðast þorstann.
Horfðu fram fyrir þig
Ef þú ferð hratt yfir, sérstaklega þegar þú
ferð niður í móti er nauðsynlegt að vera
afslappaður í efri hluta líkamans og treysta
hjólinu. Horfðu fram fyrir þig og stýrðu fram-
dekkinu, afturdekkið mun fylgja.
Komdu tækninni í lag
Þó þú hafir sleppt hjálpardekkjunum þegar þú varst í 6 ára bekk er ekki þar
með sagt að þú kunnir að hjóla. Fyrir þá sem vilja ná lengra í hjólasportinu
er nauðsynlegt að hafa tæknina á hreinu og ekki síst kunna að spara orku.
Hér eru 6 ráð sem koma þér lengra hraðar.
Gott úrval reiðhjóla fyrir alla er hjá GÁP,
að sögn Mogens Markússonar.