Fréttatíminn - 09.05.2014, Qupperneq 4
Betra líf!
ÞAR SEM GRASIÐ ER GRÆNNA...
100% LÍFRÆNT FÓÐUR
FYRIR HUNDINN ÞINN!
FÆST HJÁ:
VÍÐIR, HAGKAUP, FJARÐARKAUP, GÆLUDÝR.IS OG GARÐHEIMUM
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
NA-átt. RigNiNg eðA slyddA
A- og NA-lANds.
HöfuðboRgARsvæðið: Skýjað með
köflum og SíðdegiSSkúrir.
sól með köflum, eN stöku skúRiR
s- og v-lANds. kólNAR HelduR eNN.
HöfuðboRgARsvæðið: Sólríkara og
Sæmilega hlýtt að deginum.
fRekAR kAlt og él NA- og A-lANds.
RigNiNg s- og sv-lANds.
HöfuðboRgARsvæðið: dálítil rigning,
einkum SíðdegiS.
kólnar heldur um helgina
nú sýnist framsókn vorsins aðeins ætla
að hiksta í nokkra daga. Þó er varla hægt
að tala um vorhret eða nokkuð slíkt.
Samt kemur til með að setja niður snjó
á fjallvegum norðaustanlands og slydda
verður í byggð. Sunnan- og
vestanlands kemur sólin
til með að sýna sig annað
veifið, líkur á næturfrosti
á laugardagskvöldið,
en á sunnudag kemur
til með að rigna dálítið
frá bakka sem kemur
úr suðri.
9
5 5
4
10
8
3 2 3
9
7
2 0 0
6
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
I celandair felldi niður 26 flug félagsins í morgun, föstudaginn 9. maí, vegna verkfalls Félags íslenskra atvinnuflug-
manna, sem hófst klukkan 6 í morgun og
stendur til klukkan 18 í dag.
Félagið tók ákvörðun um að fella niður
flugið í gær, en í tilkynningu þess sagði:
„Ákvörðun um að fella niður flugin með
þessum fyrirvara er tekin til þess að eyða
óvissu og gefa farþegum tækifæri á því að
gera nauðsynlegar ráðstafanir. Í heild eru
um 4500 farþegar, mest erlendir ferða-
menn, bókaðir á þau 26 flug sem um er að
ræða og er upplýsingum komið til þeirra
um stöðuna m.a. með textaskilaboðum og
tölvupósti. Mikið álag er á þjónustuveri
félagsins.
„Þó svo viðræður standi yfir hjá sátta-
semjara þá komust við ekki hjá því að grípa
til þessara ráðstafana nú til að koma í veg
fyrir það öngþveiti sem skapast mun á
morgun [í dag] verði ekki af samningum.
Við biðjum viðskiptavini félagsins velvirð-
ingar á þeirri miklu röskun sem verkfallið
veldur og gerum allt sem í okkar valdi
stendur þeim til aðstoðar,“ segir Guðjón
Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Ice-
landair.
Verkfall flugmanna veldur Icelandair
miklum vonbrigðum, enda standa þeim til
boða sambærilegar launahækkanir og aðr-
ir í samfélaginu hafa samið um að undan-
förnu, þar á meðal meirihluti starfsmanna
Icelandair Group.
Icelandair mun eftir fremsta megni
reyna að leysa úr þeim vanda sem niður-
felling flugsins skapar viðskiptavinum
m.a. með því að flytja þá yfir á flug annarra
flugfélaga eins og hægt er, einnig að færa
farþega á önnur flug Icelandair til og frá
þessum áfangastöðum ef það er unnt eða
breyta farmiðum með öðrum hætti. Þeir
sem hætta við ferð sína munu fá endur-
greitt. Nánari upplýsingar eru á Icelandair.
is.“
Auk þessa, segir enn fremur í tilkynn-
ingu flugfélagsins, verður 2-5 klukku-
stunda seinkun á síðdegisflugi til Kaup-
mannahafnar, Osló, Denver, Seattle,
Orlando, Edmonton, Toronto, Boston og
New York. Brottför þessara fluga er áætluð
um klukkan 19.30 og innritun hefst síðdeg-
is í dag, föstudag.
Búast má við seinkunum í flugi Ice-
landair á laugardagsmorgun og hvetur
félagið farþega til að fylgjast með brott-
farar- og komutímum flugvéla.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Stjórn geðhjálpar skorar á stjórnvöld að
tryggja nægilegt fjármagn til að hægt sé
að halda úti aðgengilegri, fullnægjandi
og faglegri geðheilbrigðisþjónustu
innan heilbrigðis- og velferðarkerfisins.
„harkaleg framganga í niðurskurði fjár-
magns innan geðheilbrigðisþjónustunnar
hefur haft alvarlegar afleiðingar í för
með sér fyrir þjónustu við fólk með
geðraskanir og geðfötlun. Brýnt er að
snúa þeirri þróun við til að koma í veg
fyrir að mannlegur harmleikur á borð
við brunann í Breiðholti og skotárásina í
hraunbæ endurtaki sig.
niðurskurðurinn hefur valdið því að fólki
hefur verið neitað um þjónustu, ekki
fengið þjónustu við hæfi og/eða verið
sent alltof snemma heim eins og dæmin
sanna. af einstökum hópum má nefna
alvarlega geðsjúka, fólk með tvíþættan
vanda (geðrænan og vímuefnavanda)
og fanga. með sama hætti hefur
samstarfi milli heilbrigðiskerfisins og
velferðarþjónustu sveitarfélaganna
verið ábótavant. dæmi eru um að
sjúklingar hafi beinlínis fallið milli kerfa,
þ.e. þjónusta sveitarfélaganna hefur
ekki tekið við þegar þjónustu land-
spítalans-háskólasjúkrahúss hefur sleppt
og öfugt,“ segir enn fremur í yfirlýsingu
stjórnarinnar sem skorar á stjórnvöld að
hefja nú þegar vinnu við mótun geðheil-
brigisstefnu í samræmi við nýsamþykkta
þingsályktunartillögu þess efnis. - jh
ráðinn mark-
aðsstjóri Borg-
arleikhússins
Borgarleikhúsið hefur ráðið
jón Þorgeir kristjánsson
sem markaðsstjóra, að því
er fram kemur í tilkynningu
leikhússins. hann er með
Ba gráðu í grafískri hönnun
frá listaháskóla íslands
og lauk national diploma:
Physical theatre í Wales og
í framhaldi af því ferðaðist
hann með sviðslistahópi
um evrópu sem setti upp
sýningar á ítalíu, í Þýska-
landi og í Bretlandi.
jón Þorgeir hefur starfað
í leikhúsi um árabil sem
hönnuður og verkefnastjóri.
hann var útsendingar-
stjóri hjá ríkissjónvarpinu
og tók þátt í enduropnun
loftkastalans þar sem hann
gegndi starfi markaðs-
stjóra. Síðastliðin fjögur
ár hefur hann unnið að
markaðsmálum og grafískri
hönnun fyrir Borgarleik-
húsið. jón Þorgeir leggur nú
stund á mBa nám í háskól-
anum í reykjavík ásamt því
að sitja í stjórn reykjavík
dance festival. - jh
mannlegur harmleikur endurtaki sig ekki
jón Þorgeir kristjánsson.
IcelandaIr FellIr nIður 26 Flug í dag, Föstudag, vegna verkFalls
Um 4500 farþegar
voru bókaðir
Reynt eins og hægt er að flytja farþega yfir á önnur flugfélög. Þeir sem hætta við ferð fá endurgreitt.
icelandair fellir niður 26 flug í dag, föstudag, vegna verkfalls flugmanna. um 4500 farþegar voru bókaðir í þau flug.
Ljósmynd/Icelandair
Icelandair
mun eftir
fremsta megni
reyna að leysa
úr þeim vanda
sem niður-
felling flugsins
skapar við-
skiptavinum
m.a. með
því að flytja
þá yfir á flug
annarra flug-
félaga eins og
hægt er.
4 fréttir helgin 9.-11. maí 2014