Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.05.2014, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 09.05.2014, Blaðsíða 12
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. H Horfur í efnahagsmálum þjóðarinnar eru almennt hagstæðar, að mati grein- ingaraðila. Í nýrri efnahagsskýrslu OECD, sem kom út fyrr í vikunni, spáir stofnunin 2,7% hagvexti í ár og 3,2% á næsta ári. Þar kemur enn fremur fram að hagvöxtur hafi verið umfram vænt- ingar þar sem aukinn útflutningur og ferðamannastraumur hafi hjálpað mikið. OECD gerir ráð fyrir að atvinnuleysi minnki og verði komið niður í 4,2% á næsta ári. Þarna er talað á svip- uðum nótum og í Þjóð- hagsspá Greiningar Íslandsbanka fyrir árin 2014 til 2016, sem birt var fyrir síðustu helgi. Sé litið til komandi ára eru ágætar horfur í efnahagsmálum þjóðarinnar og 2014 ár jafnvægis og ágæts hagvaxtar og hag- vaxtarhorfur áranna 2015 og 2016 góðar. Greining Íslandsbanka spáir 3,2% hag- vexti, það er að segja svipuðum hagvexti og mældist á síðasta ári, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Hagvöxtur ársins 2013 var raunar meiri en reiknað hafði verið með, sá mesti frá árinu 2007 – og auk þess hagvöxtur af bestu gerð vegna hagstæðra utanríkis- viðskipta. Staðan í fyrra var ólík því sem var fyrir hrun þegar hagvöxtur var að stórum hluta tekinn að láni og gríðar- legur halli var á utanríkisviðskiptum. Mikill vöxtur ferðaþjónustunnar var burðarþáttur í hagvextinum í fyrra – og þar skipta öruggar flugsamgöngur öllu. Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir því að hagvöxturinn í ár verði af töluvert öðrum toga en á síðasta ári. Hann verði áfram drifinn af vexti í einkaneyslu, fjár- festingu og útflutningi en þó er gert ráð fyrir talsvert hraðari vexti í innflutningi en útflutningi í ár. Dregið hefur úr slaka í hagkerfinu sem myndaðist við hrunið 2008. Tölur um minna atvinnuleysi sýna það meðal annars en dregið hefur úr því frá það náði hámarki á árinu 2010. Enn fremur er reiknað með því að verðbólga verði undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans stóran hluta ársins, gengi krónunnar verði nokkuð stöðugt og að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir á næstunni en haldist síðan óbreyttir út árið. Árið mun því, segir í spá greiningardeildar- innar, einkennast af óvenju miklu jafn- vægi í ýmsum mikilvægum efnahags- stærðum. Það þarf hins vegar ekki mikið til svo kúrsinn skekkist. Ferðaþjónusta hér á landi hefur eflst og dafnað hér á landi undanfarin ár – og dró hagvaxtar- vagninn í fyrra. Það er hins vegar ekki sjálfgefið að ævintýrið það haldi áfram í þágu allra, eins og minnst var á í leiðara Fréttatímans fyrir mánuði. Þá blasti við verkfall flugvallarstarfsmanna sem lamað hefði allar flugsamgöngur til og frá landinu með ómældum skaða. Því verkfalli var afstýrt á síðustu stundu. Nú blasir hins vegar við önnur ógn í þessum mikilvæga atvinnuvegi. Flugmenn Ice- landair hafa boðað verkfallsaðgerðir og leggja niður störf í dag, föstudag, milli klukkan 6 og 18. Þegar þetta er skrifað stendur það óbreytt. Vegna verkfallsboð- unarinnar neyddist Icelandair til að fella niður 26 flug. Sú neyðarráðstöfun hafði áhrif á um 4500 farþega félagsins þenn- an eina dag, mest erlenda ferðamann. Hafi ekki samist verður hið sama uppi á teningnum 16. og 20. maí og í framhald- inu verður vinnustöðvun frá 23. maí til 25. maí og síðan 30. maí til 3. júní. Auk þess mun ótímabundið yfirvinnubann flugmanna félagsins hefjast í dag. Þessar aðgerðir setja flugáætlun þessa burðarfélags íslenskra flugsam- gangna úr skorðum. Lítill hópur hátt launaðra manna tekur landið nánast í gíslingu, sættir sig ekki við launahækk- un á svipuðum nótum og þorri lands- manna. Með aðgerðum sínum, hafi af þeim orðið í morgun, senda flugmenn- irnir öðrum launþegum kaldar kveðjur – og þjóðarhagur virðist nokkuð fjarri þeim. Á því var vakin athygli í fyrrnefndum leiðara að fáar starfsgreinar eru við- kvæmari fyrir verkfallsaðgerðum en flugþjónustan – og truflun á henni getur haft miklar afleiðingar fyrir þann mikil- væga atvinnuveg, ferðaþjónustuna. Það kann því að vera að bjartsýni greiningar- aðila á góðum horfum og jafnvægi í ís- lensku efnahagslífi þessa árs hafi verið ótímabær, verði ekki lát á endurtekinni verkfallsógn í ferðagreininni, burðarási hagvaxtarins. Hagstæðar horfur í efnahagsmálum en kúrsinn getur skekkst Endurtekin verkfallsógn Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Vegna verkfallsboðunarinnar neyddist Icelandair til að fella niður 26 flug. Sú neyðarráðstöfun hafði áhrif á um 4500 farþega félagsins þennan eina dag, mest erlenda ferðamann. www.lyfja.is Lægra verð í Lyfju w.lyfja.is Nanogen Hárvörur 20% afsláttur Gildir út maí Auka hárvöxt, þykkja og gefa fyllingu. Trefjar hylja skallabletti. Aukin vellíðan og meira sjálfsöryggi með góðri hárumhirðu. Biotin & Collegen sjampó og næring Þyngir ekki hárið og hefur þykkjandi áhrif með hjálp Collagen þykknis. Vatnsroð hveiti prótín hjálpar við að gera hárið þykkara og heilbrigðara. Frábært fyrir þunnt, fíngert og linnt hár. Ert þú búin að prófa? Gómsæ og glútenlaust 253 milljarða króna greiðir ríkissjóður á þessu ári til stjórn- málaflokka sem fengu að minnsta einn mann kjörinn á þing eða náðu að lágmarki 2,5 prósentum atkvæða. Sjálfstæðisflokkur fær 71,6 milljónir, Framsóknarflokkur 65,5, Samfylking 34,5, VG 29 milljónir, Björt framtíð 22 og Píratar 13,7 milljónir. 400 milljóna hagnaður varð á rekstri flug- félagsins Atlanta á síðasta ári. 16 beiðnir um nálgunarbann voru afgreiddar hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu í fyrra. 12 þeirra voru samþykktar. 57 milljóna hagnaður varð á rekstri H.F. Verðbréfa í fyrra. 90 prósent marka norska úrvalsdeildarliðsins Viking hafa íslenskir leikmenn skorað. Fimm Íslendingar leika með liðinu, þar á meðal fyrirliðinn, Indriði Sigurðsson. milljónir króna kostar þátttaka Íslands í Eurovision þetta árið, samkvæmt áætlun. Það er svipaður kostnaður og síðustu ár. Vikan í tölum 30 12 viðhorf Helgin 9.-11. maí 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.