Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.05.2014, Blaðsíða 52

Fréttatíminn - 09.05.2014, Blaðsíða 52
52 matur & vín Helgin 9.-11. maí 2014  vín vikunnar Giacondi Cabernet rautt Gerð: Rauðvín. Þrúga: Cabernet. Uppruni: Ítalía. Styrkleiki: 12,5% Verð í Vínbúðunum: 5.799kr. (3 l) Umsögn: Það er hægt að gera góð kaup í kassavínum og þau eru upplögð í grillveislur og ferðalögin. Þetta ítalska cabernet er kannski besta kassavínið á markaðinum en það er helvíti erfitt að vera ósáttur við verðið. Vínið er létt miðað við cabernet en hefur ágætis tannín og er fínt til síns brúks. Þægilegt helgarvín Nú þegar þú ert væntanlega farin/n að hjóla til og frá vinnu geturðu leyft þér nokkrar auka kaloríur um helgar. Og þá eigum við ekki bara við E. Finnsson mæjónessósuna á hamborgar- ann heldur líka einn auka bjór eða léttvínsglas. Þar sem sólin ákvað loksins að miskunna sig yfir okkur í vikunni leitar hugurinn til sólríkra staða sunnar á kringlunni við leit að góðu helgarvíni. Eitt af því sem Ameríkönum hefur tekist vel í víngerð er að halda gæðastaðlinum uppi í fjöldaframleiddum vínum. Eitt aðalsmerki víngerðarmanna í Kalíforníu hefur verið Zinfandel-þrúgan. Hún hentar vel á sólríkum stöðum enda hjálpar sólin henni að ná háu sykurmagni sem þýðir að yfirleitt er þessi víntegund alkóhólrík. Þessi Zinfandel frá Turning Leaf fer ekki alla leið heldur er miðlungs, létt kryddaður en heldur dökku bragði þrúgunnar ágætlega. Rautt Zinfandel er best með einhvers konar kjötmeti, helst grilluðu. Það hentar jafnframt ágætlega með krydduðum fiskisúpum eins og þeirri sem er neðst á síðunni.Turning Leaf Zinfandel Gerð: Rauðvín. Þrúga: Zinfandel. Uppruni: Bandaríkin, 2012. Styrkleiki: 13.5% Verð í Vínbúðunum: 1.999 kr. (750 ml) Höskuldur Daði Magnússon Teitur Jónasson ritstjorn@frettatiminn.is Fréttatíminn mælir með Uppskrift vikunnar Himnesk tælensk fiskisúpa Jónína Ósk Lárusdóttir heldur úti matarbloggi á Heimilis- matur.com. Þar er meðal ann- ars að finna þessa girnilegu tælensku fiskisúpu. „Þessi súpa er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Bragðið er himneskt. Einnig er þetta sniðugur grunnur í t.d. kjúklingasúpu, þá væri tilvalið að bæta við sítrónugrasi og jafnvel smá grænu curry paste saman við. Meðlætið hjá okkur var gott brauð ásamt hvítlauks- olíu og balsamic-olíublöndu,“ segir Jónína Ósk. Hráefni 40 g ferskt kóríander eða steinselja. Ég nota bæði. 2-3 rauð chili. 4-6 hvítlauksgeirar. 5 cm engiferrót. 1 tsk kóríanderfræ (má sleppa). 3 msk sesamolía eða ólífuolía. 2 x 400 g dósir kókosmjólk. 5-6 dl vatn, meira ef þið viljið þynna súpuna. 1 tsk fiskikraftur (ten). 1/2 dl fiskisósa (thai fish sauce). 400 g fiskur, lax, skötuselur, lúða, silungur, þorskur eða annar fiskur sem er fastur í sér. 1 poki soðnar risarækjur. 150 g sykurbaunir, skornar í tvennt og settar heilar út í áður en súpan er borin fram. (Það má alveg sleppa þeim). 3 vorlaukar, fínt sneiddir. Einnig væri hægt að nota frosna sjávarréttablöndu. Aðferð Takið frá örlítið af fersku kórí- ander til að skreyta súpuna. Maukið ferskt kóríander, chili- aldin, hvítlauk, engiferrót og kóríanderfræ saman í matvinnsluvél. Hitið olíu í rúmgóðum potti og steikið kryddmaukið í 1-2 mínútur. Bætið kókosmjólk, vatni og fiskikrafti út í og látið sjóða við vægan hita í 10 mínútur. Bætið fiskisósu saman við ásamt fiski og látið sjóða í 1-2 mínútur í viðbót. Setjið baunir og vorlauk og auka kóríander ofan á í lokin til skrauts. Best er að brúna vorlaukinn og sykurbaunir í potti áður. Balsamic blanda ½ bolli olía. ¼ bolli balsamik edik. 2 msk sykur. 2 msk sojasósa. smátt saxað chilli. Sjóðið saman í u.þ.b. 1 mínútu, kælið og hrærið í á meðan blandan kólnar. Mér finnst mjög gott að eiga þessa blöndu í flösku inni í ísskáp. Ég nota þetta mjög mikið. Gott nýtt brauð, hvítlauksolía til að dýfa brauðinu ofan í og balsamic-blanda. Prófaðu þetta Pinot Grigio- hvítvín frá Italia með súpunni. Petit Bourgeois Sauvignon Blanc Gerð: Hvítvín. Þrúga: Sauvignon Blanc. Uppruni: Frakkland, 2012. Styrkleiki: 12,5% Verð í Vínbúð- unum: 2.699 kr. (750 ml) Umsögn: Þessi franski Sauvignon Blanc er til reynslu í Vínbúðunum um þessar mundir. Ef þú átt leið í Kolaportið um helgina skaltu pikka upp smokkfisk, skerðu hann í hringi og grillaðu. Þetta vín mun ekki klikkað með. Vina Maipo Vitral Reserva Sauvignon Blanc Gerð: Hvítvín. Þrúga: Sauvignon Blanc. Uppruni: Chile, 2012. Styrkleiki: 13% Verð í Vínbúð- unum: 1.899 kr. (750 ml) Umsögn: Þetta vín hefur allt sem góðan Sauvig- non Blanc þarf að prýða, sýruríkt, sítrus og frískandi. Þú skalt vona að þetta verði á boðstólum í næstu stúd- entsveislu. Kemur næst út 16. maí liggur einnig frammi á heilbrigðisstofnunum. Líftíminn er prentaður í 87 þúsund eintökum og dreift á heimili á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Líftíminn fylgir Fréttatímanum og má nálgast blaðið um land allt. Heilbrigðismál í brennidepli Nánari upplýsingar gefur Gígja Þórðardóttir | gigja@frettatiminn.is | 531 3312 Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is Vönduð vinna Stofnað 1952 Mikið úrval af fylgihlutum Steinsmiðjan Mosaik Legsteinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.