Fréttatíminn - 09.05.2014, Blaðsíða 78
LIFANDI LÍFSSTÍLL 3. ÁRGANGUR 2. TÖLUBLAÐ MAÍ 2014 2
Vorið er tími hreinsunar fyrir sál og líkama. Þá sækjum við
oft í meiri útiveru, að anda að okkur súrefni og komast í
snertingu við náttúruna. Í maí er tilvalið að búa sig undir
sumarið, borða hollan mat, næra húðina með góðri olíu fyrir
sólargeislana, hreinsa hugann og styrkja líkamsstarfsemina.
Margir sem hafa hreinsað líkamann af óæskilegum efnum, á
ýmsan hátt, tala um að öðlast skýrari hugsun í kjölfarið.
Hjá Lifandi markaði er boðið upp á vinsæla fimm daga
hreinsun sem byggist á þeytingum og söfum á morgnana,
salati í hádeginu, söfum og þeytingum sem millimáli og
súpuseyði í kvöldmat. Fylgt er fyrirfram ákveðnu mataræði
fyrir hvern dag og tilbúinn matur sóttur til okkar að morgni.
Þannig auðveldum við viðskiptavinum okkar alla framkvæmd
og þeir geta einbeitt sér að því að lifa og njóta. Í þessu tölu-
blaði gefur heilsufrömuðurinn Linda Pétursdóttir einnig
góð ráð og mælir með vörum fyrir þau sem vilja hreinsa
líkamann.
Veitingar sem veita vellíðan
Við hjá Lifandi markaði erum sífellt að efla okkur í fram-
leiðslu á ýmis konar hollustu. Nú þegar eru vörur framleidd-
ar af okkur seldar í verslunum okkar. Einnig bjóðum við
fyrirtækjum og hópum upp á að nýta sér fundarsali hér frítt
ef keyptar eru af okkur veitingar. Þetta hefur hlotið góðan
hljómgrunn, sérstaklega vegna þægindanna sem því fylgja.
Í viðtali í blaðinu segir Böðvar Sigurvin Björnsson, yfirmat-
reiðslumaður Lifandi markaðar, meðal annars frá því að hann
vilji þróa alla þjónustu og finna lausnir í takt við væntingar
viðskiptavina. Ýmsar ólíkar ástæður geta legið að baki því að
við viljum breyta um lífsstíl og mataræði.
Ósk okkar er sú að allir geti notið þess að koma til okkar í
Borgartún, Fákafen og Hæðarsmára og fengið veitingar og
aðra framleiðslu okkar sem þeim líður best af. Það sama á við
um veitingar sem við sendum á fundi, í veislur og til fyrir-
tækja og stofnana. Við finnum svo greinilega fyrir aukinni
eftirspurn eftir mat og drykkjum sem vitað er að skila orku og
vellíðan allan daginn.
Velkomin í Lifandi markað!
Ábyrgðarmaður:
Arndís Thorarensen
Ritstjórn:
Olga Björt Þórðardóttir
Anna Birna Ragnarsdóttir
Ljósmyndir:
Haraldur Jónasson
og Ljósmyndasöfn
Förðun:
Marta Eiríksdóttir
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
NÝJAR
UMBÚÐIR
SAMA GÓÐA
KAFFIÐ
kaffitár ÁN KRÓKALEIÐA kaffitár ÁN KRÓKALEIÐA kaffitár ÁN KRÓKALEIÐA
ka
ffit
áR
ÁN
KR
ÓK
AL
EIÐ
A
k
af
fit
ár
ÁN
KR
ÓKA
LEIÐA
Hreinsum út
fyrir sumarið
Vörur Lifandi markaðar njóta
síaukinna vinsælda. Úrvalið er
fjölbreytt, hvort sem um er að
ræða millimál, meðlæti eða bara
eitthvað ferskt til að grípa í eitt
og sér. Við kappkostum að hafa
hráefni það ferskasta og besta
sem völ er á. Markmið okkar
eru ávallt þau að viðskiptavinum
okkar líði vel og fái orku af því
sem við bjóðum upp á.
Linda Pétursdóttir og
Margrét Leifsdóttir verða
með hreinsunarnámskeið
á vegum fyrirtækis Lindu,
Simple Well Being, hjá Lif-
andi markaði 21. og 22.
maí. Á námskeiðinu eru
meðal annars gefin góð
ráð varðandi hvers konar
matur geri okkur gott, er
vatnslosandi, hreinsandi og
gefur orku. Viðskiptavin-
ir Lifandi markaðar geta
treyst því að finna þær vör-
ur í verslunum okkar.
Fjölbreytt úrval
af girnilegri
hollustu
Vinsælt
námskeið
Nánari upplýsingar má finna
á www.lifandimarkadur.is
Hér eru nokkrar af okkar
vinsælustu vörum.