Fréttatíminn - 09.05.2014, Blaðsíða 27
í viku. Það segir mér að ég sé í
góðu jafnvægi ef ég er að bjóða
fólki í mat. Mér finnst ég vera
í hugleiðslu þegar ég er að
skera og finnst gaman að vera
með puttana í deiginu, hræra
í sósunni og þjóna fólki þegar
það situr hér og láta því líða vel.
Þetta snýst líka um að halda
fjölskyldunni saman og ég býð
hingað mömmu og bræðrum
mínum. Maður tengist fólkinu
sínu betur með því að borða
saman. Þetta á ekki að vera nein
veisla. Ég vil bara elda mat og fá
fólk til mín. Fólk er að missa svo
mikið tengslin hvert við annað.
Fólk er bara heima í tölvunni og
samskiptin eru í gegn um tölvu.
Mér finnst mikil eðlilegra að
vera með fólki og tengjast því
þannig.“
Heilluð af gömlum körlum
Eftir að Elsa lauk grunnskóla-
prófi ákvað hún að læra hús-
gagnasmíði þar sem henni líkar
best að vinna með höndunum.
„Mig langaði að verða smiður
en svo áttaði ég mig á því að það
yrði erfitt að opna verkstæði þeg-
ar það fór sífellt meira að vera
gert í vélum. Eftir að ég kláraði
húsgagnasmíðina fór ég að læra
tækniteiknun. Ég vann í tíu ár
hér heima hjá verkfræðistofum
en fór svo til Bandaríkjanna þar
sem ég vann við að gera upp
gömul hús. Þetta var svona eins
og að starfa hjá húsafriðunar-
nefnd. Ég er svo hrifin af öllu
gömlu. Sérstaklega gömlum
körlum.“
Ég stoppa Elsu af: Gömlum
körlum? „Já, bara gömlu fólki en
ég er sérstaklega hrifin af göml-
um körlum. Ég get ekki hætt að
stara á þá. Ég horfi líka mikið á
hendur á gömlu fólki. Mér finnst
grátt hár ofsalega fallegt og
hrukkurnar sýna að fólk er búið
að lifa og sjóast. Ég horfi á gamla
karla og ég hef gengið upp að
gömlum mönnum og gefið þeim
koss á kinnina. Það gleður alltaf
gamla karla þegar sæt kona með
stór brjóst gefur þeim koss á
kinnina.“ Hún segir viðbrögðin
alltaf hafa verið góð. „Karlmenn
hafa ekki kvartað yfir því að ég
kyssi þá.“
Elsa segir að það hefði hentað
henni betur að vera til hér á
árum áður því henni finnst gamli
tíminn heillandi. „Margt í gamla
daga finnst mér svo mikið rétt-
ara en í dag. Fólk var kurteisara,
fólk talaði saman og var ekki allt-
af með hausinn á kafi í tölvunni.
Ég veit að jafnrétti kynjanna er
ekki nógu mikið á Ítalíu og á
Spáni en það heillar mig hvernig
mannlífið er þar, fólk er bara úti
á götu að prjóna og spjalla. Það
er miklu meiri nánd.“
Úr mötuneyti í borgarstjórn
Eftir að Elsa kom frá Bandaríkj-
unum fannst henni áherslurnar
hér heima vera helst á dýrar
eldhúsinnréttingar og viðlíka
íburð, ákvað að hætta að starfa
sem tækniteiknari og réð sig
sem kokk á auglýsingastofunni
EnnEmm. „Það var rosalega fínt
og gaman. Þar kynntist ég Jóni
Gnarr en ég hafði þekkt konuna
hans í mörg ár. Þegar hann fékk
þessa dillu að stofna Besta flokk-
inn hringdi hann í mig og spurði
hvort ég vildi vera með. Ég bað
hann um að gefa mér hálftíma en
hringdi í hann aftur eftir fjórar
mínútur og sagðist vera með.
Ég tímdi ekki að segja nei en
vissi í raun ekkert hvað hann var
að biðja mig um. Frá því ég var
barn hef ég hatað pólitík og hef
alltaf tengt hana við jakkafata-
klætt fólk að rífast.
Jón vildi fyrst setja mig í ann-
að sæti en ég bað hann að færa
mig neðar og ég endaði í fjórða
sæti. Ég pældi ekki mikið meira
í þessu og fór með manninum
mínum til Bandaríkjanna þar
sem hann var að fara í rannsókn-
arleyfi. Þau höfðu svo samband
frá Besta flokknum og sögðu
að ég þyrfti að koma aftur, og
útskýrðu fyrir mér hvernig þetta
virkaði allt saman, hvað væru
margir í borgarstjórn og svona.
Ég held að ég hafi bara sagt já
því mér finnst Jón svo skemmti-
legur. Þetta byrjaði allt sem
mikill gjörningur en ég sé ekki
eftir að hafa slegið til.“
Elsa hefur síðan tekið sæti í
borgarráði, forsætisnefnd, um-
hverfis- og skipulagsráði og er
nú forseti borgarstjórnar. „Ég
held að allir hafi gott af því að
taka þátt í stjórnmálum. Maður
fær aðra sýn á lífið og lærir svo
mikið um samfélagið og hvernig
það virkar.“
Besti flokkurinn verður lagður
niður í lok kjörtímabilsins og
en þeir sem voru í flokknum og
bjóða sig aftur fram í borgar-
stjórnarkosningunum gera það
undir merkjum Bjartrar fram-
tíðar. „Helmingurinn af þeim
sem eru í framboði er úr Besta
flokknum og helmingurinn er
nýtt fólk. Mér finnst nauðsynlegt
að fá inn nýtt fólk, fólk eins og
ég var þegar ég kom ný inn og
spurði alls konar spurninga því
ég vissi ekki hvernig þetta virk-
aði. Ég tímdi ekki að segja nei
við því að taka þátt á öðru kjör-
tímabili en ég veit auðvitað ekki
hvort ég verð kosin,“ segir Elsa
en hún er í öðru sæti listans. „Ég
held að það sé ekki hollt fyrir
fólk að vera meira en tvö kjör-
tímabil. Ég hef verið húsgagna-
smiður og kokkur og stjórnmála-
maður en kannski langar mig
seinna að opna dekkjaverkstæði
eða fiskmarkað. Það er allavega
ekki fyrir mig að vera alltaf að
gera það sama.
Ég hef unnið mikið í skipu-
lagsmálum borgarinnar og það
er það sem heillar mig mest.
Skipulagsmálin eru mjög flókin.
Mér finnst mikilvægt að gera
Reykjavík að mannlegri borg og
lyfta öðrum samgöngumátum
en einkabílnum. Við eigum
heldur ekki að vera að byggja
þessa risastóru turna sem mér
finnst ógeðslega ljótir. Lítil fiski-
mannaeyja á ekki að hafa svona
turna. Mér finnst að við eigum
að leggja áherslu á að fólki geti
liðið þannig þegar það labbar um
bæinn að borgin knúsi þig og að
þú sért knúsaður af umhverfinu.
Þannig á borg að vera. Ég held
að það sé gott fyrir fólk sem er
í stjórnmálum að hafa prófað
ýmislegt. Ég hef verið herbergis-
þerna, þrifið klósett, verið á sjó,
rekið veitingastað. Ég hef ekki
verið lögfræðingur og ég hef
ekki verið læknir og ég held að
það hjálpi til að ég hef ekki verið
í skóla að lesa bækur árum sam-
an. En nú veit ég ekki hvað ég
tek mér fyrir hendur næst. Það
kemur í ljós eftir kosningar.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ég hef verið með
skotleyfi í um fimm
ár og finnst rosalega
gaman að bera fram
mat sem ég hef verið
í marga daga, köld og
sveitt, að ná í.
Elsa segir föðurömmu sína hafa verið
afar sterkan karakter en amman ferð-
aðist um Bandaríkin með Hells Angels,
drakk ótæpilega af viskíi og spilaði
póker. Ljósmynd/Hari
viðtal 27 Helgin 9.-11. maí 2014
20–50 %
Afsláttur
Við erum ekki Að hættA
552-8222 / 867-5117
{Skápar}
{Skenkir}
{Myndir}
{Styttur}
{Postulín}
{Silfur}
{Stólar}
{Borð}
30 – 50 % AF
húsgögnum
50 %
AF bókum
20 % AF
smáhlutum
rýmingArsAlA
VegnA PlássleYsis út mAÍ