Fréttatíminn - 11.04.2014, Side 48
Bernhard ehf • Vatnagörðum 24 - 26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is
Umboðsaðilar: Reykjanesbæ, Bernhard, sími 421 7800 • Akranesi, Bílver, sími 431 1985 Akureyri, Höldur, sími 461 6020 • Vestmannaeyjum, Bragginn, sími 481 1535
www.peugeot.is
PEUGEOT 308
Þú finnur okkur á
facebook.com/PeugeotIceland
BÍLL ÁRSINS Í EVRÓPU
PEUGEOT
PEUGEOT 308
kostar frá kr. 3.360.000
Eldsneytiseyðsla í blönduðum akstri frá 3,6L/100km
CO2 útblástur frá 93g
Í ár ákváðu þær að nota líf-
ræna súkkulaðið frá Himneskt,
það hefur Fairtrade vottun og
samviskan því einstaklega góð.
Sín fyrstu form keypti Solla í
Pipar og salt, þau fást þar enn.
Fyrir yngstu fjölskyldumeð-
limina, sem ekki eru byrjaðir
að borða sælgæti, er gaman
að setja leikföng eða rúsínur
í falleg pappírsegg. Fyrir þá
sem vilja dökkt egg mælir Solla
með 71% súkkulaði, en það
kemur líka vel út að blanda
saman mjólkursúkkulaði og
dökku til þess að fá millidökk
súkkulaðiegg fyrir krakkana.
Aðferð:
Byrjið á því að bræða súkkul-
aðið rólega yfir vatnsbaði við
vægan hita. Mikilvægt er að
passa að hita varlega, bara rétt
nóg til að súkkulaðið bráðni,
en hitni ekki um of. Þeir sem
eiga hitamæli geta notað hann
og miða þá við 42°C, en Solla
hefur reyndar ekki nennt að
stressa sig á því.
Takið páskaeggjaform og látið
nokkrar skeiðar af súkkulaðinu
í formið, hallið forminu fram og
til baka þannig að súkkulaðið
renni um formið og þeki það.
Setjið bökunarpappír á plötu
og snúið formunum á hvolf
á plötuna og látið súkkul-
aðið storkna. Þetta tekur um 5
mínútur, en þið getið flýtt fyrir
með því að setja formin inn í
frysti/kæli. Endurtakið 2 til 5
sinnum – fer allt eftir því hve
vel ykkur tekst til við að þekja
formin og hve þykk súkkulaði-
skelin er orðin.
Þegar skeljarnar eru tilbúnar
er um að gera að setja máls-
hátt og fleira spennandi inn í
eggið. (Sollu og dætrum finnst
sem dæmi gott að setja hnetur
og rúsínur, passar svo vel
með súkkulaðinu). Egginu er
lokað með því að nota fljótandi
súkkulaði sem lím, því er smurt
á kantinn á annarri skelinni og
síðan er eggið límt saman. Þar
næst setjið þið smá súkkulað-
ilím á fótinn og límið eggið á
hann. Til að laga kantana setjið
þið súkkulaði í sprautupoka og
sprautið því allan hringinn. Svo
má skreyta með sælgæti eða
pallíettum og öllu þar á milli.
Að lokum er unginn festur á og
eggið er tilbúið.
Einföld súkkulaðiuppskrift fyrir
þá sem vilja búa til súkkulaðið
sjálfir
½ dl kaldpressuð kókosolía
½ dl kakósmjör
1 dl 100% hreint kakóduft
½ dl kókospálmasykur eða
önnur sæta (eða „sykurlaus“
sæta)
smá sjávarsalt og nokkur korn
cayenne-pipar ef vill
- Til að kókosolían verði
fljótandi: látið heitt vatn
renna á kókosolíukrukkuna
eða setjið krukkuna í skál
með um 50°C vatni.
- Til að kakósmjörið verði
fljótandi: setjið pokann í um
40°C heitt vatn eða bræðið
yfir vatnsbaði.
Blandið öllu saman í skál, nú
eruð þið komin með fljótandi
súkkulaði og getið fylgt
leiðbeiningunum að ofan til að
útbúa páskaegg.
Heimagert um páskana
Himnesk páskaegg Sollu
Solla í Gló hefur lengi haft þann sið að föndra súkkulaðiegg með dætrum sínum fyrir páskana.
Það finnst þeim voða hugguleg samverustund og ekki skemmir fyrir að fá að ráða innihaldi
eggjanna alveg sjálfar. Þær nota alltaf lífrænt súkkulaði, eða búa til sitt eigið úr góðu lífrænu
hráefni. Svo skemmta þær sér konunglega við að finna góða málshætti (stundum heimagerða) til
að lauma inn í eggin.
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
4.690 kr.
ERTU BÚIN/NN AÐ
TÝNA BÍLLYKLUNUM?
HARRÝ OG HEIMIR
GETA FUNDIÐ ÞÁ
hringdu frítt í síma:
800 1120
48 páskar Helgin 11.-13. apríl 2014