Fréttatíminn - 16.05.2014, Síða 26
Cheddar ostar
verða varla betri
en þessir
H
ákon Há-
konarson
hefur barist
fyrir því í
fjögur ár að
sviplegt andlát sonarsonar
hans, Kristófers Darra,
hafi fyrirbyggjandi áhrif.
Laugardaginn 15. maí,
fyrir fjórum árum, var hinn
fjögurra ára Kristófer á leið
heim frá vinum sínum sem
hann hafði verið að leika við
aðeins spottakorn frá heim-
ili sínu í Grafarvoginum. Á
leiðinni heim kom hann við
á leikvelli á sameignarlóð í
næstu blokk. Enginn varð
vitni að því þegar kaðall af
rólu vafðist utan um háls
hans með þeim afleiðingum
að hann lést.
Tveir ungir drengir
komu einir að slysstaðnum,
þekktu Kristófer og fóru
strax og sóttu mömmu hans
sem hljóp samstundis út á
leikvöllinn þar sem hún fann
son sinn í rólunni. Lækn-
unum tókst að endurlífga
Kristófer eftir að á Bráða-
móttökuna var komið, en
tveimur sólarhringum síðar
var ljóst að Kristófer myndi
aldrei aftur komast til með-
vitundar. Súrefnisskortur til
heilans hafði valdið of mikl-
um skemmdum. Kristófer
lést á gjörgæsludeild þann
17. maí eftir að öndunarvél,
sem hélt í honum lífinu, var
tekin úr sambandi.
Tækið samkvæmt stöðlum
„Við rannsókn slyssins
sagði lögreglan að tækið
væri löglegt á lóðinni sam-
kvæmt Evrópustöðlum,“
segir Hákon. Ég sagði þá
strax að ef lögreglan ætlaði
ekki að vara almenning við
þessum tækjum, þá gerði ég
það,“ segir Hákon sem fór
í fjölmiðla í kjölfar slyssins
með það að markmiði að
gera fólki grein fyrir þeim
hættum sem kaðlarólur geta
haft í för með sér. „Síðar
kom reyndar í ljós að það
gilda sömu reglur um leik-
tæki á sameignarlóðum og
almenningsleikvöllum og
því var þetta tæki ólöglegt
á sameigninni. Það skiptir
hins vegar ekki höfuðmáli
heldur það að tæki sem
getur valdið slysi sem þessu
skuli vera leyfð í sölu, þó á
einkalóð sé. Tæki sem þetta
eru enn í notkun og enn er
verið að selja þau í nokkrum
verslunum hér á landi,“
bendir Hákon á.
„Ég fékk mjög mikil við-
brögð þegar ég kom fram
í fjölmiðlum á sínum tíma
en markmiðið með því var
að fræða fólk um hættuna
samfara svona leiktækjum,“
segir Hákon. Leiktækið
sem olli dauða Kristófers,
Sonarsonur Hákonar
Hákonarsonar lést
af slysförum fyrir
fjórum árum er
kaðlaróla flæktist um
háls hans á leikvelli.
Síðan hefur Hákon
barist fyrir því að fá
slíkar rólur bannaðar
á Íslandi en hefur
nú svo sannarlega
haft erindi sem erfiði
því að á mánudag
verður málið tekið
fyrir hjá Staðlaráði
Evrópu sem mun
líklega banna
kaðlarólur í álfunni í
kjölfarið.
Tíminn læknar
ekki öll sár
Framhald á næstu opnu
26 viðtal Helgin 16.-18. maí 2014