Fréttatíminn - 16.05.2014, Side 36
B ygging gas- jarðgerðarstöðv-ar er stærsta verkefnið sem SORPA hefur ráðist í frá
því fyrirtækið var stofnað fyrir 20
árum. Gróft kostnaðarmat hljóðar
upp á um 2,7 milljarða króna fjár-
festingu, sem er svipað og það kost-
aði á sínum tíma að reisa móttöku-
stöð SORPU í Gufunesi og að opna
urðunarstaðinn í Álfsnesi þegar það
hefur verið framreiknað til dags-
ins í dag,“ segir Björn H. Halldórs-
son, framkvæmdastjóri SORPU.
Eigendur SORPU, sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu, samþykktu
endanlega í október 2013 að ráðast
í byggingu gas- og jarðgerðarstöðv-
ar í Álfsnesi og er gert ráð fyrir að
framkvæmdir hefjist fyrri hluta árs
2015 og að stöðin verði tekin í notk-
un um mitt ár 2016.
Björn segir að með gas- og jarð-
gerðarstöðinni gjörbreytist öll með-
höndlun á þeim úrgangi sem íbúar
á höfuðborgarsvæðinu setja frá sér
í sorptunnur heimilanna. Í stað
þess að urða um 30 þúsund tonn af
heimilisúrgangi á ári, eins og nú er
gert, munu um 70% þessa magns
fara í nýju stöðina þar sem það
verður endurunnið og því breytt í
metangas og jarðvegsbæti. Þau 30%
sem flokkast frá fara hins vegar í
frekari vinnslu.
Öllum markmiðum náð
Björn segir að rekja megi aðdrag-
andann að byggingu gas- og jarð-
gerðarstöðvarinnar til ársins 2003
en þá voru sett ný lög sem takmörk-
uðu heimildir urðunarstaða til urð-
unar lífræns úrgangs. Í kjölfarið
voru sett markmið í landsáætlun
Umhverfisstofnunar um að draga
markvisst úr urðun á lífrænum
heimilisúrgangi. Árið 2009 átti
samkvæmt þeim að vera búið að
minnka urðunina niður í 75% af því
sem til féll af lífrænum úrgangi árið
1995 og árið 2013 átti urðun á líf-
rænum heimilisúrgangi vera komin
niður í 50% af sama magni. Næsti
áfangi er árið 2020 en þá er gert ráð
fyrir að einungis megi urða 35% af
því sem urðað var 1995.
„Okkur tókst að mæta þessum
kröfum bæði árið 2009 og 2013.
Það hjálpaði okkur vissulega árið
2009 að magn úrgangs minnkaði
mikið í efnahagshruninu og í fyrra
hafði blátunnuvæðingin mikil áhrif
en með því að flokka pappír frá
venjulegu heimilisúrgangi minnk-
aði magn lífræns úrgangs í heimil-
istunnunni úr því að vera um 25%
niður í um 8%.“
Björn bætir því við að með til-
komu gas- og jarðgerðarstöðvarinn-
ar árið 2016 verði búið að ná tökum
á öllum lífrænum heimilisúrgangi
á höfuðborgarsvæðinu og því búið
að ná settum markmiðum og gott
betur.
Skapa verðmæti
En breytingin á meðferð heimilis-
úrgangs felst ekki bara í að hætta
urðun. Með henni er líka verið að
skapa verðmæti úr því hráefni sem
er í sorpinu. Með gas- og jarðgerð-
arstöðinni mun framleiðsla SORPU
á bifreiðaeldsneyti úr metani tvö-
faldast og mun nægja til að knýja
6.000 til 8.000 fólksbifreiðar árlega
og að auki verða til um 12.000 tonn
af jarðvegsbætandi efnum sem nýst
geta til landgræðslu.
En hverju breytir nýja stöðin
fyrir heimilin, verða gerðar auknar
kröfur um flokkun? Björn segir að
tilkoma stöðvarinnar muni breyta
litlu fyrir heimilin á svæðinu, í það
minnsta til að byrja með. Það hafi
verið keppikefli SORPU að hafa
ferlið eins einfalt og auðskiljanlegt
fyrir íbúana og frekast er unnt. „Við
munum þó biðja fólk um að flokka
heldur meira en almennt hefur ver-
ið gert. Til dæmis þarf að flokka allt
gler frá öðrum heimilisúrgangi og
sama gildir til dæmis um farsíma,
batterí, önnur spilliefni og lyf. Þetta
eru vissulega sömu reglur og gilda
í dag en við munum þurfa að ganga
stífar eftir því að þær verði virtar,“
segir Björn.
Vantar ásættanlegan farveg
fyrir plast frá heimilum
Hann bætir því við að það sé einn-
ig til skoðunar að gefa fólki kost á
að safna öllu plasti og setja í sér-
poka í heimilissorptunnuna. Þá
yrði plastið f lokkað frá sorpinu
með vélum móttökustöðvarinnar í
Gufunesi eins og gert er í dag með
alla málma sem þangað berast með
heimilissorpinu. „Vandamálið með
plastið er hins vegar að það hefur
ekki fundist ásættanlegur farveg-
ur fyrir blandaðan plastúrgang frá
heimilum. Í dag falla til um 6 ólíkar
tegundir af plasti í heimilissorpinu
en það er ekki nema hluti af því
sem hentar til endurvinnslu og þá
verður að vera búið að flokka annað
plast frá. Það er enginn markaður
fyrir óflokkað plast og það fylgir
talsverður aukakostnaður að farga
því. Við teljum óraunhæft að ætlast
til þess að heimilin flokki plastið í
mismunandi tegundir og því höf-
um við ekki lagt áherslu á sérstaka
plastsöfnun hingað til,“ segir Björn.
Hann bætir því hins vegar við að
SORPA muni hér eftir sem hingað
til sjá um að það plast sem hefur
verið safnað saman og komið með
til þeirra fari í endurvinnslu til út-
landa með tilheyrandi kostnaði. „Í
þessu sambandi má einnig geta
þess að plastið sem er urðað í dag
veldur ekki neinum skaða á urð-
unarstaðnum. Það er hins vegar
til vandræða þegar það fýkur um
úti í náttúrunni. Þeir eru til sem
segja að með því að urða plast verði
til ákveðin hringrás. Plastið er jú
búið til úr jarðefnaeldsneyti og
með því að urða það í staðinn fyr-
ir að brenna því má segja að efnið
sé komið aftur til baka á sinn stað.
Ég er ekki að segja að þetta sé mín
skoðun en það eru vissulega nokk-
uð til í þessu,“ segir Björn H. Hall-
dórsson að lokum.
Stærsta verkefni SORPU frá upphafi
– Segir Björn H. Halldórsson, forstjóri SORPU, um nýju gas-og jarðgerðarstöðina.
Björn H. Halldórsson
setur metan á einn af
bílum SORPU. Þegar gas-
og jarðgerðarstöðin hefur
starfsemi árið 2016 mun
framleiðsla á bifreiðaelds-
neyti úr metani tvöfaldast
og nægja til að knýja 6.000
til 8.000 fólksbifreiðar
árlega.
„Við munum biðja fólk um að flokka heldur meira en almennt hefur verið gert. Til
dæmis þarf að flokka allt gler frá öðrum heimilisúrgangi og sama gildir til dæmis
um lyf, batterí og önnur spilliefni,“ segir Björn. Með blátunnuvæðingu SORPU, þegar
byrjað var að flokka pappír frá venjulegu heimilisúrgangi, minnkaði magn lífræns
úrgangs í heimilistunnunni úr því að vera um 25% niður í um 8%.
KYNNING
36 grænn lífsstíll Helgin 16.-18. maí 2014