Fréttatíminn - 16.05.2014, Qupperneq 62
62 matur & vín Helgin 16.-18. maí 2014
vín vikunnar
Romio Montepul-
ciano d’Abruzzo
Gerð: Rauðvín
Þrúga: Montepul-
ciano
Uppruni: Ítalía, 2012
Styrkleiki: 13%
Verð í Vínbúðunum:
kr. 1.799
Romio er vín frá
mið Ítalíu og er ekta
ítalskt hversdagsvín
og vel nýtanlegt til
síns brúks. Það er
ávaxtaríkt og berjað,
létt og ferskt. Taktu
fram pastavélina,
sjóddu niður nokkra
tómata og hakkaðu
vel feitan nautabita
í gómsætt spaghetti
bolognese og þetta
vín steinliggur með.
Altano Douro
Gerð: Rauðvín
Þrúga: Blanda af
Touriga Franca, Tinta
Roriz og Tinta Barroc
Uppruni: Portúgal,
2011
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
kr. 1.998
Það er eitthvað
við portúgölsk vín
þessa dagana og
greinilegt að þeir eru
að teygja sig út fyrir
þægindasvið púrtvína
í Douro dalnum. Þetta
vín er skemmtilega
flókið. Það er létt með
berjabragði en með
skemmtilegum krydd-
tón. Vín með léttari
mat eins og grillaðri
svínalund með kaldri
kryddsósu.
Trivento Tribu Ca-
bernet Sauvignon
Gerð: Rauðvín
Þrúga: Cabernet
Sauvignon
Uppruni: Argentína,
2012
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
kr. 1.699
Þetta vín telst til
léttari Cabernet
Sauvignon tegunda.
Yfirleitt er þessi
þrúga þyngri og
tannínríkari en hér þó
vissulega megi finna
tannínið í þessu víni.
Dökkur ávöxtur og
sýryríkt. Gott með
léttari réttum eins og
góðu salati með létt-
grilluðu hrefnukjöti
toppuðu með grófum
parmesan.
Takk Spánn
Við eigum Spánverjum heilmikið að þakka. Þegar áfengisbannið sem sett var á hér á landi 1915 hafði
varað í 7 ár sögðu Spánverjarnir hingað og ekki lengra og hótuðu að hætta að kaupa af okkur
saltfisk ef við keyptum ekki af þeim rauðvín. Það varð til þess að árið 1922 var létt-
vínið aftur leyft, heilum 13 árum áður en áfengisbanninu var að
aflétt árið 1935 að undanskildum hinum stórhættulega bjór
sem síðan fékk að vera sjaldséð lúxusvara á Íslandi nánast
alla öldina. Hvort þetta sé ástæðan fyrir ást Íslendinga á
spænskum vínum, og þá sér í lagi vínum frá Rioja-héraðinu,
skal ósagt látið en það hefur varla skemmt fyrir að þetta voru
lengi vel helstu léttvínin í boði. Þetta Rioja Reserva vín frá
Cuve framleiðandanum er frábært og á góðu verði miðað við gæði.
Það hefur allt það besta sem Rioja-vín státa af. Lyktar af sveit, milt í
munni, töluvert eikað, bragðmikið og létt í senn. Þetta er alveg ekta
vín með rauðu kjöti og léttari villibráð og það er upplagt að eiga þetta í
hillunni í smá tíma enda mun það bara batna í svona 2-3 ár í viðbót.Cune Rioja Reserva
Gerð: Rauðvín
Þrúga: Tempranillo
Uppruni: Spánn, 2009
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum: kr. 2.999
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Fréttatíminn mælir með
Uppskrift vikunnar
Ferskt pasta er best
Það er algjörlega málið að gera
ferskt pasta. Það þarf heldur ekki að
taka neitt sérstaklega langan tíma
aukalega.
Æfingin skapar meistarann.
Best er að nota matvinnsluvél,
blandara, hrærivél eða töfrasprota
með skál til að blanda 80 grömmum
af hveiti á móti einu eggi og hræra
rólega með hnífnum þar til hveitið
breytist í litlar gular kúlur. Þetta er svo
tekið og hnoðað saman með hönd-
unum þangað til deigið er orðið mjúkt
og slétt. Þá er að geyma það í ísskáp
í minnsta kosti hálftíma. En í raun er
nóg að nota gaffal í pastað. Hrúgaðu
hveiti á borðið og gerðu gíg í hrúguna
og egg þar ofan í. Taktu gaffalinn og
byrjaðu á því að hræra egginu saman.
Notaðu nú guðsgafflana og byrjaðu
að nudda egginu saman við hveitið.
Blandaðu því smátt og smátt saman
við þangað til þú getur farið að hnoða
deigið í höndunum en passaðu að hafa
deigið ekki of blautt. Það á að vera
pínu maus að koma þessu saman.
Pastavélin eða kökukefli
Þá er komið að því að fletja það út
helst með pastavél en ef hún er ekki
til verður kökukeflið að sjá um þetta.
Best er að nota ekki of mikið í einu.
Miða við svona um eitt egg þannig að
ef þú notaðir 2 egg skiptirðu deiginu í
helming, þrjú egg þá í þrennt o.s.frv.
Geymið hina hlutana vel vafða í plast.
Til að rúlla út deiginu í pastagerðarvél
er byrjað að gera pylsu úr deiginu.
Rúllið henni svo eina umferð í gegnum
vélina á stærstu stillingunni. Brjótið
deigið svo í helming og rúllið aftur
í gegn á sömu stillingu. Gerið þetta
tvisvar til þrisvar þangað til deigið
er u.þ.b. jafn breitt og valsarnir í
vélinni. Þá er bara að rúlla deiginu
í gegn og þrengja valsana um einn
á milli. Gott er að setja örþunnt lag
af hveiti á deigið af og til svo það
festist ekki saman og inni í vélinni. Ef
þið viljið slétta og fína kanta þarf að
rúlla pastanu í gegn um öll skrefin
leggja það svo á borð og brjóta það
saman nokkrum sinnum svo þú endir
með ferhyrnt stykki. Snúðu því svo
þannig að hliðarnar fari niður í tækið
og renndu þessu í gegnum allar still-
ingarnar aftur. Þá endar þetta með
rennisléttum köntum. Svo er bara að
skera pastað með beittum hnífi í þær
stærðir sem þú vilt.
Fyrir lasagna eða tagliatelle er betra
að hafa plöturnar ekki of þunnar.
En spagettí og ravíólí er málið að
hafa þetta svo þunnt að hendurnar
sjáist auðveldlega í gegn um deigið.
Ferskt pasta þarf bara að sjóða í um 3
mínútur í léttsöltuðu vatni. Passaðu að
sjóða í stórum potti með miklu vatni
í og hræra aðeins í svo það festist
örugglega ekkert saman.
– fyrst og fre
mst
– fyrst og fre
mst
ódýr!
254 kr.pk.
Verð áður 4
62 kr.pk.
Kelloggs Ko
rnflex, 500
g
45%afsláttur
Hámark4 pakkará mann meðan birgðir endast!
Föstudagspizzan
Pollapizzan
er bökuð úr Kornax brauðhveitinu