Fréttatíminn - 16.05.2014, Side 88
— 8 — 16. maí 2014
„Þunglyndi er ekki röskun eða ástand
sem fólk á eða þarf að vera tilbúið að
sætta sig við og lifa með svo árum skipt-
ir. Án þess að gert sé lítið úr vandanum
þá hefur nútíma sálfræði með hugræna
atferlismeðferð í fararbroddi náð ágætis
tökum á meðhöndlun þunglyndis, sér í
lagi þegar um vægan eða miðlungs al-
varlegan vanda er að ræða,“ segir Hel-
ena Jónsdóttir sálfræðingur.
Alvarlegt þunglyndi leggst á um 25
prósent kvenna og 12 prósent karla
einhvern tímann á ævinni. Það þýðir að
miðað við nýjustu tölur um mannfjölda
Um sextíu þúsund Íslendingar
glíma við alvarlegt þunglyndi ein-
hvern tímann á ævinni. Við eigum
heimsmet í notkun geðlyfja og
Sjúkratryggingar Íslands punga út
3,5 milljörðum króna á hverju ári í
niðurgreiðslu á þeim. Sálfræðingar
eru ósáttir við að þjónusta þeirra
sé ekki niðurgreidd af ríkinu. Þung-
lyndi er ein algengasta ástæða
fötlunar og örorku að mati Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar.
tilteknar breytingar á hugarfari og
hegðun ásamt því sem tiltekin líkamleg
einkenni eru líkleg til að gera vart við
sig. Þegar þessi skilyrði eru uppfyllt töl-
um við um klínískt þunglyndi. Það verða
allir leiðir eða daprir, það er eðlilegt.
Það þýðir ekki að við séum þunglynd.“
Er algengt að til ykkar sálfræðinga
leiti fólk sem telji sig vera þunglynt en
er það ekki?
„Já það má segja það. Það kemur til
okkar fólk sem hefur áhyggjur af því að
hafa verið dapurt í nokkurn tíma. Það
hefur kannski ekki náð sér upp úr ein-
hverju sem hefur dregið það niður fyrir
eðlilegar sakir. Kannski er allt gott í
lífinu en samt finnst fólki það ekki líða
eins og því finnst að það eigi að líða. Þá
er fólk kannski farið að sýna einhver
einkenni þunglyndis og farið að hafa
af þeim áhyggjur. En það er nú þannig
að ef við erum döpur í einhvern tíma
og bregðumst við með því að draga
úr virkni okkar af því að við höfum
áhyggjur af líðan okkar, eru auknar
líkur á að við getum þróað með okkur
þunglyndi. Ef við leggjumst í rúmið
og drögum sængina upp fyrir höfuð er
hætta á að ástandið dragist á langinn
og að við verðum döpur eða þunglynd í
enn lengri tíma. Af þeim sökum vil ég
alls ekki draga úr því að fólk leiti sér að-
stoðar, telji það sig sýna einkenni þung-
lyndis. Þegar einkenni eru væg og stutt
á veg komin getur verið mikilvægt að
læra að bregðast við þeim í því skyni
að koma í veg fyrir að vandinn þróist á
alvarlegri veg.“
Er tíðni þunglyndis svipuð hér á landi
og annars staðar?
„Já, rannsóknir sýna að tíðni þung-
lyndis er svipuð hér og annars staðar.
Þunglyndi sem líklegra er til að gera
vart við sig í skammdeginu er að lík-
indum algengara hér á norðurslóðum
heldur en víða annars staðar en það er
þó tiltölulega óalgengt miðað við hvað
það verður dimmt hér yfir vetrartímann.
Vel yfir 90 prósent fólks á ekki í teljandi
vandræðum með skammdegið en aðrir
eiga erfitt með það.“
Þannig að skammdegisþunglynd er
ekki mýta eins og stundum hefur verið
fleygt?
„Nei, það er ekki mýta. Myrkur hefur
áhrif á dægursveiflu líkamans og á það
hvernig líkaminn framleiðir tiltekin efni
sem stýra vöku og svefni og um leið því
hvernig syfja hefur áhrif á virkni okkar
og líðan frá degi til dags. Hætt er við
að syfja dragi nokkuð úr virkni okkar
yfir vetrartímann og fólk getur komist
í vítahring sem það á erfitt með að rífa
sig upp úr.“
Kostar samfélagið mikið
Þunglyndi er ein algengasta ástæða
fötlunar og örorku í heiminum í dag.
Alþjóða heilbrigðisstofnunin (W.H.O.)
hefur sett þunglyndi í fjórða sæti yfir
sjúkdóma sem valda mestri fötlun og
lífskjaraskerðingu. Nú þegar fólk lif-
ir lengur en áður má búast við því að
þunglyndi verði orðin önnur algengasta
ástæða fötlunar og lífskjaraskerðingar í
heiminum árið 2020, eftir því sem fram
kemur í grein Rúnars Helga Andrasonar
og Engilberts Sigurðssonar á Persóna.
is.
„Þunglyndi kostar samfélagið auð-
vitað mikla fjármuni en er þó fyrst og
fremst lífsgæðaskerðing fyrir þann sem
af því þjáist,“ segir Helena. „Ef þung-
lyndi leggst á fólk af þunga missir það
úr vinnu og kemur sér ekki í að sinna
daglegum verkum og nýtur lífsins síð-
ur. Þjóðfélagið verður af vinnukrafti og
það kostar auðvitað að aðstoða viðkom-
andi. Annað hvort með niðurgreiðslu á
þunglyndislyfjum eða örorkubótum og
endurhæfingu.“
Helena segir að þunglyndi sé svo al-
gengur en um leið í mörgum tilfellum
viðráðanlegur vandi að mikinn kraft
ætti að setja í að stemma stigu við því.
„Vandamálið er að þeir sem þjást af
einkennum sem þeir telja að geti átt
við þunglyndi leita flestir í upphafi til
heilsugæslunnar. Þar eru læknarnir
gríðarlega umsetnir og hafa hvorki tök á
né kunnáttu til að meðhöndla þunglyndi
með öðrum leiðum en lyfjum ásamt því
sem þeir geta ekki vísað sjúklingum
sínum í gegnum heilbrigðiskerfið í
þjónustu sálfræðinga en þjónusta sál-
fræðinga er ekki niðurgreidd af ríkinu.
Það er kannski ástæðan fyrir því að við
erum ofarlega á blaði í heiminum yfir
notkun geðlyfja.“
Heimsmet í geðlyfjanotkun
Raunar er það svo að Íslendingar eiga
heimsmet í geðlyfjanotkun og er hún
nær tvöfalt meiri en að meðaltali í
OECD-ríkjum. Á hverju ári eru útgjöld
Sjúkratrygginga Íslands vegna tauga-
og geðlyfja þrír og hálfur milljarður
króna. Í frétt á Stöð 2 í febrúar kom fram
að 38% af útgjöldum Sjúkratrygginga fer
í þennan flokk.
„Ástæðan er ekki að þunglyndi sé svo
mikið algengara hér en annars staðar,
ástæðan snýr að því hvernig kerfið með-
höndlar þennan vanda,“ segir Helena
sem sjálf hefur sérhæft sig í hugrænni
atferlismeðferð við kvíða, þunglyndi og
svefnvanda.
„Í Bretlandi hefur hugræn atferlis-
meðferð verið sett fram sem fyrsti
kostur í meðferð á vægu og miðlungsal-
varlegu þunglyndi af breska heilbrigðis-
kerfinu og þar hefur mikill og góður ár-
angur náðst. Ég vil taka það skýrt fram
að það er ekki við heilsugæslulækna hér
á landi að sakast. Þeir hafa einfaldlega
ekki tök á að meðhöndla þunglyndi með
þeim hætti sem líklegastur er til að skila
árangri, kerfið gerir ekki ráð fyrir ann-
arri þjónustu en lyfjagjöf. Önnur úrræði
eru ekki niðurgreidd.“
Hver tími hjá sálfræðingi kostar iðu-
lega á bilinu 10-13 þúsund krónur svo
það liggur í hlutarins eðli að ekki hafa
allir efni á sálfræðimeðferð. Helena
bendir reyndar á að mörg stéttarfélög
og margir atvinnurekendur séu farin
að styðja vel við starfsmenn sína þegar
kemur að kostnaði við sálfræðimeðferð.
Og hún kveðst gjarnan vilja sjá breyttar
áherslur við meðferð þunglyndis.
„Í klínískum samanburðarrannsókn-
um hefur ítrekað komið í ljós að hug-
ræn atferlismeðferð skilar jafn góðum
árangri eða betri en lyfjameðferð, sér í
lagi ef litið er til langtímaárangurs. Með
meðferðinni er fólki gefin verkfæri til að
takast á við þær hugsanir og þá hegðun
sem er líkleg til að viðhalda vandanum
auk þess sem lögð er áhersla á að fólk
læri að bera kennsl á einkenni þess að
bakslag kunni að vera á næsta leiti og
möguleg viðbrögð við því. Ef þunglynd-
ið tekur sig upp að nýju síðar er fólk
búið að læra þessa tilteknu aðferð og er
betur í stakk búið að koma í veg fyrir að
það lendi í sama vítahring.“
Þunglyndi ein algengasta
ástæða fötlunar og örorku
á Íslandi munu ríflega 40 þúsund konur
þurfa að takast á við alvarlegt þunglyndi
og tæplega 20 þúsund karlar.
Tíðni þunglyndis svipuð hér og
í öðrum löndum
Helena segir að þótt þunglyndi sé al-
gengt meðal Íslendinga sé það of al-
gengt að það orð sé notað yfir eitthvað
sem ekki er þunglyndi. „Þunglyndi er
ofnotað orð í dag. Er ég þunglynd ef ég
er döpur í nokkra daga? Ef mér líður illa
í dag yfir einhverju sem gerðist í gær, er
ég þá þunglynd? Svo er ekki, alla vega
ekki út frá því hvernig við skilgreinum
þunglyndi. Greining á þunglyndi á við
þegar fólk hefur verið dapurt, niður-
dregið eða þunglynt á hverjum degi,
næstum allan daginn, í tvær vikur eða
meira. Og samfara þessu þurfa að sjást
Helena Jónsdóttir sálfræðingur hefur
sérhæft sig í hugrænni atferlismeðferð
við kvíða, þunglyndi og svefnvanda.
40.670
íslenskar konur munu þjást af
alvarlegu þunglyndi einhvern
tímann á ævinni, miðað við
nýjustu tölur Hagstofunnar um
mannfjölda á Íslandi.
19.639
íslenskir karlar munu þjást af
alvarlegu þunglyndi einhvern
tímann á ævinni, miðað við
nýjustu tölur Hagstofunnar um
mannfjölda á Íslandi.
10-13
þúsund krónur kostar hver tími
hjá sálfræðingi á Íslandi.
4
Þunglyndi er í fjórða sæti yfir
sjúkdóma sem valda mestri fötlun
og lífskjaraskerðingu, samkvæmt
Alþjóðaheilbrigðisstofnunni.
3,5
milljarðar króna eru útgjöld
Sjúkratrygginga Íslands vegna
tauga- og geðlyfja á hverju ári.