Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.05.2014, Page 92

Fréttatíminn - 16.05.2014, Page 92
— 12 — 16. maí 2014 Bæði fjöll- um við um hvernig er að vera aldraður innan fjölskyld- unnar og hvernig stuðningi er háttað á milli kynslóða. KYNNING Otovent er náttúruleg meðferð við hellum í eyrum og eyrnabólgu Otovent meðferðin léttir undirþrýsting í miðeyra og getur fyrirbyggt og unnið á eyrnabólgu og vanlíðan. Otovent virkar einnig vel við hellum í eyrum, til dæmis í flugferðum. O tovent er einföld, áhrifarík og viðurkennd meðferð við undirþrýstingi og vökva í mið-eyra. Að sögn Helgu Margrétar Clarke, hjúkrunar- og lýðheilsufræðings, er Otovent með- ferðin fyrst og fremst notuð sem fyrsta stigs og fyrir- byggjandi meðferð við eyrnabólgu hjá bæði börnum og fullorðnum. „Þetta er ódýr og einstaklega einföld meðferð og samanstendur af litlu plastnefstykki og sérhannaðri þrýstingsprófaðri blöðru úr náttúru-latex sem blásin er upp í gegnum aðra nösina í einu. Blöðr- urnar eru hannaðar á þann hátt að réttur þrýstingur næst þegar blaðran er blásin upp og kokhlust opnast. Þar með leiðréttist undirþrýstingur í miðeyra og á sama tíma rennur vökvi í miðeyra, ef svo ber undir, sína eðlilegu leið,“ segir Helga Margrét. Vökvi í miðeyra er eitt af byrjunareinkennum eyrnabólgu og segir Helga Margrét að sýklalyfja- kúrar geti ekki tryggt að kokhlust opnist svo að vökvi geti runnið sína eðlilegu leið. Þess vegna sé brugðið á það ráð að setja rör í eyru, eða réttara sagt í hljóð- himnuna oft og tíðum. „Nú fer ferðavertíðin á fullt hjá Íslendingum og má því benda á að Otovent hefur reynst mjög árangursrík meðferð við hellum í eyrum, til dæmis í og eftir flug og einnig við sund eða köfun.“ Með Otovent pakkningunni kemur lítil, blá askja sem passar fyrir nefstykkið og að minnsta kosti eina blöðru. Otovent er því fyrirferðarlítið og er til dæmis hægt að hafa með sér í ferðalagið án þess að það taki of mikið pláss. Otovent hentar bæði börnum og fullorðnum. Flest börn frá þriggja ára aldri geta notað Otovent sjálf en fyrir yngri börn sem ekki ná að blása blöðruna upp sjálf er hægt að beita innstreymisaðferð. Þá blæs full- orðinn einstaklingur blöðruna upp og setur nefstykk- ið við aðra nös barnsins og loftið er látið streyma inn á meðan barnið kyngir. Ekki eru þekktar neinar aukaverkanir af Otovent meðferðinni og er varan CE merkt. Árangur Otovent hefur verið studdur í ótal rannsóknum sem birtar hafa verið í ritrýndum tímaritum. Otovent fæst í apótekum. Celsus ehf. fer með umboð Otovent á Íslandi. Otovent meðferðin léttir undirþrýsting í miðeyra og getur ennfremur fyrirbyggt og unnið á eyrnabólgu og vanlíðan með því að tryggja að loftflæði og vökvi eigi greiða leið frá miðeyra. Eyrnabólga flug Sund Og köfun Helga Margrét Clarke, hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur, segir Otovent skjótvirka og einfalda lausn við undir- þrýstingi í miðeyra hjá bæði börnum og fullorðnum. Engar aukaverkanir af notkun Otovent eru þekktar og hefur árangur þess verið staðfestur í fjölda rannsókna sem birtar hafa verið í ritrýndum tímaritum. Otovent meðferðin getur dregið úr: • eyrnabólgum • sýklalyfjanotkun • ennis- og kinnholusýkingum • ástungum • röraísetningum E ndurmenntun Háskóla Íslands býður í haust upp á diplómanám í öldrunarfræði í samstarfi við félagsráðgjafardeild HÍ. Sífellt stærra hlutfall Íslendinga nær háum aldri en í fyrra voru rúmlega 11 prósent Íslendinga 67 og eldri. Gangi spár eftir verður hlutfallið orðið rúmlega 20 prósent árið 2060 og því ljóst að þörf fyrir fagmenntaða einstaklinga á sviði öldrunar og þjónustu fyrir aldraða mun vaxa. Öldrunarfræði er þverfagleg fræðigrein sem fjallar um öldrun og síðustu ár einstaklingsins frá mismunandi sjónar- hornum. Dr. Sigurveig H. Sigurðardóttir, dósent við félags- ráðgjafardeild HÍ, er kennslustjóri námsins og segir hún að í náminu verði lögð áhersla á að auka skiln- ing á því sem gerist þegar við eldumst. „Í þessari námsleið viljum við kynna ólík svið öldrunarfræð- innar, helstu áherslur og hvernig öldrunarþjónustan er uppbyggð. Að auki eru sérhæfðari námskeið til dæmis um heilsu, stjórnun málaflokksins, gæði þjónustu og fleira,“ segir hún. Í náminu öðlast nem- endur skilning á öldrunarfræðum og þeim rann- sóknaraðferðum sem beitt er og hvernig þeir geta haft áhrif á viðhorf og þjónustu við aldraða með þekkingu sinni. „Nemendur öðlast aukinn skilning á þeim breytingum sem verða þegar við eldumst og geta betur tekið þátt í umræðu um stefnumótun og skipulag þjónustu.“ Fjallað verður um mikilvægi félagstengsla, þátttöku eldri borgara í samfélaginu og fjölbreytileika. „Bæði fjöllum við um hvernig er að vera aldraður innan fjölskyldunnar og hvernig stuðningi er háttað á milli kynslóða. Þá munum við fjalla um stjórnun, teymisvinnu, skipulag og gæði í öldrunarþjónustu. Einnig munum við kynna hvað er að gerast varðandi þjónustuúrræði annars staðar og hvað hefur reynst vel.“ Námið er ætlað fólki sem lokið hefur BA eða BS gráðu á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda eða ann- arri sambærilegri menntun. Sigurveig segir námið vera hagnýtt fyrir alla sem vinna með eldra fólki, til dæmis hjúkrunarfræðinga, félagsráðgjafa, lækna, presta, sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa. Námið verður uppbyggt þannig að fólk geti stundað námið með vinnu. „Ætlunin er að nám- skeiðin standi í viku í senn og síðan leysa nemendur verkefni. Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel á öðrum námsleiðum.“ Námið hefst í október á þessu ári er í tvö ár. Aukin þörf fyrir fagmenntað fólk boðið verður upp á nýtt diplómanám í öldrunarfræði hjá Endur- menntun Háskóla Íslands í haust. Á næstu árum mun eldra fólki fjölga mikið og að sama skapi eykst þörfin fyrir fagmenntað fólk á sviði öldrunar. Í diplómanámi í öldrunarfræðum hjá Endurmenntun HÍ verður lögð áhersla á að auka skilning á því sem gerist þegar við eldumst. námið er ætlað fólki sem lokið hefur ba eða bS gráðu á sviði heilbrigðis- eða félagvísinda eða annarri sambæri- legri menntun. Ljósmynd/GettyImages/NordicPhotos Sigurveig H. Sigurðardótt- ir, dósent við félagsráð- gjafardeild HÍ, er kennslu- stjóri námsins. Geðklofi byrjar í móðurkviði Vísindamenn hjá Salk Institute í Kaliforníu hafa sýnt fram á að taugafrumur sjúklinga með geðklofa byrja að haga sér einkennilega strax á fyrstu stigum þróunar sinnar, sem þeir segja renna stoðum undir þá kenningu að geðklofi byrji að þróast í móðurkviði. Markmiðið með rannsókninni var að rann- saka fyrstu greinanlegu breytingar í heilanum sem leiða til geðklofa. Niðurstöður rann- sóknarinnar voru birtar í tímaritinu Molecular Psychiatry á dögunum og kemur þar fram að þær geti leitt til þróunar á þekkingu á því hvernig hægt sé að greina og meðhöndla geð- klofa á fyrstu stigum en sjúkdómurinn kemur yfirleitt fram á fullorðinsárum.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.