Fréttatíminn - 28.02.2014, Side 6
Í skólanum landsins eru börn sem eiga sér fjölmörg ólík móðurmál – og dæmi
eru um að í einum leikskóla séu töluð tólf tungumál, auk íslenskunnar.
MóðurMál uM 100 tunguMál töluð á Íslandi
Þrettán tungumál töluð í leikskólanum Rofaborg
Um eitt hundrað tungumál eru töluð
á Íslandi, slík er fjölbreytnin. Tungu-
málaforða Íslands er nú leitað í
skólum landsins. Taka má sem dæmi
leikskólann Rofaborg í Reykjavík.
Þar eru töluð tólf tungumál, auk ís-
lenskunnar, það er að segja portú-
galska, pólska, perú, gríska, þýska,
mál frá Sierra Leóne, tagalog frá
Filippseyjum, litháíska, tælenska,
búlgarska, víetnamska og enska.
Menning hér á landi býr því yfir
mikilli fjölbreytni og á hverjum degi
eru í skólanum börn sem eiga sér
fjölmörg ólík móðurmál. UNESCO
leggur ríka áherslu á réttinn til móð-
urmálsins og mikilvægi þess fyrir
einstaklinginn og menningu þjóða.
Vika móðurmálsins hefur staðið
yfir undanfarna viku í framhaldi
af alþjóðadegi móðurmálsins 21.
febrúar. Íslenska UNESCO-nefndin
og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
í erlendum tungumálum ákváðu að
efna til nokkurra viðburða í þess-
ari viku þar sem athygli hefur verið
vakin á starfi fjölmargra aðila sem
tengjast ólíkum móðurmálum, hvatt
til umræðu í skólum um hvernig
hægt sé að koma til móts við nem-
endur sem tala annað móðurmál en
íslensku. Þá er hafin samvinna við
skóla um land allt sem felur í sér
skráningu einstakra bekkja á tungu-
málaforða sínum.
Móðurmálsvikunni lýkur í dag,
föstudaginn 28. febrúar, með mál-
þingi í Norræna húsinu frá klukkan
15 til 17. Þar verður rætt um tungu-
málið frá ýmsum hliðum, sem sam-
eign okkar og auðlind – og ekki síst
hve tungumálaforðinn er dýrmætur.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
F yrsta námskeið LungA skólans, nýstofnaðs íslensks lýðháskóla, hefst eftir tvær vikur. Björt Sigfinnsdóttir
er annar stofnenda skólans og framkvæmda-
stjóri hans. „Við leggjum mikla áherslu á það
að nýta listir og skapandi greinar sem undir-
stöðu í allri okkar kennslufræði og með
áherslu á þróun sjálfsins. Við teljum það
mikilvægan hluta af kennslu að skoða sjálf-
an sig sem einstakling, að innan og utan.
Það munum við gera í gegnum allskonar
persónulega ferla, æfingar og listasmiðjur.
Rökræður og beinar æfingar þar sem við
köfum ofan í þessar stóru spurningar sem
maður heldur venjulega fyrir sjálfan sig, eins
og t.d. hver er ég? Eða hver vil ég vera? Hér
er hægt að gefa sér tíma til að læra að skynja
og uppgötva sig.“
Fyrsta námskeið skólans er mánaðar
prógram þar sem tuttugu nemendur all-
staðar að úr heiminum munu vígja námið
og í leiðinni hjálpa aðstandendum skólans
að þróa áfram aðferðafræðina. „Nemend-
urnir eru að koma allsstaðar að, alla leið
frá Ástralíu. Fólk hefur frétt af skólanum í
gegnum LungA listahátíðina sem er hér
á Seyðisfirði hvert sumar, en hún hefur
fengið mjög góða umfjöllun í erlendum
tímaritum,“ segir Björt. Á námsskránni
þennan reynslumánuð er danssmiðja
með dansaranum Sögu Sigurðardóttur,
hljóðskúlptúrgerð með Curver
Thoroddsen, sviðsmyndagerð með
Berki Jónssyni og vidjóverka gerð
með Hrund Atladóttur. Í ágúst
mun skólinn svo opna dyr sínar fyrir nýjum
nemendum sem hefja fullt nám og skráning
er þegar hafin.
Í stjórn skólans sitja ásamt Björt, Guð-
mundur Oddur Magnússon (Goddur),
Sigrún Halla Unnarsdóttir, Nína Magnús-
dóttir, Dýri Jónsson, Ólafur Stefánsson og
Margrét Pála Ólafsdóttir. Margrét Pála er
stödd á Seyðisfirði ásamt Ólafi Stefánssyni,
fyrrverandi handknattleiksmanni, þar sem
undirbúningur stendur yfir. „Ég hugsa að
þau hafi leitað til mín þar sem ég er mjög
reynd í skólarekstri og mikil áhugakona um
nýjungar og fjölbreytni. Óli Stefáns mun
koma allavega einu sinni á hvert námskeið
því hann er sérfræðingur í því hvernig hægt
er að ná árangri í því sem kallar á þig. Hann
ætlar að tala um hvernig hægt er að fá kjark
til að þora að ná árangri. Sjálf er ég mjög
upptekin af kynjavíddinni, að fá ungmenni
til þess að skilja hvaða takmarkanir þau hafa
búið við vegna staðalímynda kynjanna, bæði
stelpur og strákar. Stelpur eru oft hræddar
við eigin getu á meðan strákar hafa oft ekki
kjark til að líta inn á við og uppgötva sig
þaðan. Strákar hafa oft kjark til að fram-
kvæma nýja hluti en ekki til að skoða tilfinn-
ingar sínar.“
Margréti Pálu hefur lengi dreymt um að
stofna skóla á framhaldsstigi. „Þegar Björt
hafði samband þá hoppaði ég um leið á
vagninn. Þetta er stórkostlegt tækifæri til
að bjóða upp á nýjan valkost fyrir fólk sem
er ekki er að finna sig í hefðbundum fram-
haldsskólum og frábært tilboð fyrir fólk sem
langar að fara meira inn í listgreinar.“ Eitt af
því sem heillar Margréti Pálu helst er þessi
vinkill í náminu sem er ekki í boði annars-
staðar, að læra að þekkja sjálfan sig. „Grunn-
urinn að öllu hér er að fara ekki leið hins
hefðbundna skólakerfis sem er að mörgu
leyti svo takmarkandi. Leiðin sem hér er í
fyrirrúmi, sjálfsþekking, sjálfsuppgötvun og
sjálfsstyrking, finnst mér stórkostleg.
Allt of mörg ungmenni hafa annað-
hvort guggnað í opinberu kerfi eða
þá klárað námið en komið út úr
því án þess að þekkja sjálf sig.
Það er gríðarleg gleði í okkur
hér. Við teljum þetta vera mjög
spennandi valkost fyrri alla
sem vilja uppgötva sig á nýjan
hátt.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Menntun nýr lýðháskóli tekur til starFa á seyðisFirði
Ólafur Stefánsson
kennir í lýðháskóla
Nýstofnaður LungA skólinn er alþjóðleg menntastofnun sem hefur það að markmiði að efla
sjálfið í gegnum listir og sköpun. Skólinn er á Seyðisfirði og sækir innblástur í hina rótgrónu
skandinavísku lýðháskóla.
Stofnendur
skólans segja
Seyðisfjörð vera
tilvalinn stað til
einbeita sér að
námi og læra að
þekkja sjálfan
sig. Nemendur
skólans munu
búa á heimavist
víðsvegar um
kaupstaðinn.
Margrét Pála
Ólafsdóttir og
Ólafur Stefáns-
son sitja í stjórn
skólans
og eru
meðal
kennara.
Reykjavík | akuReyRi | Reykjavík | akuReyRi | Reykjavík | akuReyRi | Reykjavík | akuReyR
Holtagörðum, Reykjavík ✆ 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri ✆ 558 1100
Húsgagnahöllinni, Reykjavík ✆ 558 1100
OPNUNARTÍMI HOlTAgöRðUM:
Virka daga 1000-1800, Laugardaga 1100–1600
áTTU vON
á gesTUM!
sIlO
SVefnSófi
119.900
fullt verð kr.
139.900
Stærð: 228x162 H: 83 cm Dökkgrátt slitsterkt áklæði.
Með rúmfata geymslu í tungu. Svefnsvæði 140x190 cm
Stærð 225x 80 Svefnsvæði 120x190 cm. Með rúmfatageymslu. Grátt og brúnt
slitsterkt áklæði. einnig til án arma DORMAveRð kR. 79.900.
Stærð: 241 x 158 cm H. 71 cm. Dökk- og ljósgrátt slitsterkt áklæði.
Rúmfatageymsla í tungu. Tunga getur verið beggja vegna. Svefnsvæði 140x195 cm
RUBeN
SVefnSófi
119.900
fullt verð kr.
139.900
DAIsy
SVefnSófi
89.900
DoRMA-
VeRð
Stærð 192 x 85 cm. Rautt, fjólublátt og grátt slitsterkt
áklæði. Stærð dýnu 147x197 cm. Rúmfata geymsla.
sIesTA
SVefnSófi
119.900
fullt verð kr.
139.900
6 fréttir Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014