Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.02.2014, Síða 10

Fréttatíminn - 28.02.2014, Síða 10
H eilsuleikskólar Skóla ehf. eru nú fimm talsins og er fyrir-tækið einn af stofnaðilum Samtaka sjálfstæðra skóla (SSSK) og aðilar að Samtökum heilsuleik- sóla. Ólöf Kristín Sívertsen er lýð- heilsufræðingur og fag stjóri heilsu- leikskólanna hjá Skólum. „Það var Unnur Stefánsdóttir, leikskólastjóri í Heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópa- vogi, sem hafði frumkvæði að mótun Heilsustefnu fyrir leikskóla. Mark- mið stefnunnar er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á nær- ingu, hreyfingu og sköpun í leik. Hugmyndafræðin er sú að ef barn fær holla nær- ingu og mikla hreyfingu, þá sprettur fram þörf til að skapa. Við hjá Heilsuleik- skólum Skóla störfum eftir þessari stefnu auk 20 ann- ara leikskóla,“ segir Ólöf. Rannsóknir sýna að mat- aræði og næringarástand barna hefur áhrif á heilsu þeirra, þroska, vöxt og al- hliða líðan. Skólar kapp- kosta því að auka velferð barna með góðri næringu og nú hefur fyrirtækið sett sér sérstaka Næringar- stefnu. „Við höfum alltaf fylgt Heilsu- stefnunni og því lagt áherslu á hollt mataræði en okkur fannst kominn tími til að ramma almennilega inn það sem við erum að gera og gera sameig- inlega matseðla fyrir alla skólana. Svo við settumst niður, ég sem lýðheilsu- fræðingur, næringarfræðingurinn og matráðar allra okkar leikskóla, til að setja saman heildstæða næringar- stefnu sem byggir á opinberum ráð- leggingum um mataræði og næring- arefni frá embætti landlæknis. Við gerðum matseðil fyrir 8 vikna tímabil og er hver dagur og hver vika hugsuð sem næringarleg heild út frá næring- arþörf barna, samkvæmt opinberum ráðleggingum. Við leggjum mikla áherslu á að elda allt frá grunni, að ráðlögðum dagskammti vítamína og steinefna sé náð og á fjölbreytnina því mismunandi næringarefni koma úr mismunandi fæðutegundum. Við gáfum stefnuna formlega út í byrjun ársins en höfum notast við matseðlana síðan í september 2013.“ Engin tómatsósa Eftir að hafa borið saman bækur sínar komust matráðar leikskólanna að því að grjónagrautur og slátur er langvinsælasti rétturinn meðal barnanna en fast á eftir kemur soðin ýsa með kartöflum og smjöri. „Við tókum tómatsósuna alveg út af matseðlinum en nær- ingarfræðingurinn var harður á því að tómatsósa passar ekki inn í heilsuleik- skóla. En auðvitað er ekkert mál að búa til tómatsósu frá grunni. Við höfum stundum tómatsmjör með ýsunni, en þá blöndum við alvöru tóm- ötum við smjörið. Smjörið er mikilvægt því börn þurfa fitu en þessi tómatsósa sem er keypt úti í búð er uppfull af sykri. Okkur fannst þetta stórt skref en það er einungis eitt barn af 450 sem hefur gert athugasemd við breytinguna,“ segir Ólöf Mataruppeldi er mikilvægt Matartíminn í heilsuleikskólunum eru notalegar stundir þar sem reynt er að kenna börnunum að njóta þess að borða. Reynt er að hafa andrúmsloft- ið sem rólegast og kennararnir borða með börnunum. „Við viljum stuðla að heilbrigðum matarvenjum barnanna til framtíðar, vera góðar fyrirmyndir. Matarvenjur mótast strax í barnæsku og það er mjög mikilvægt að leikskól- arnir séu meðvitaðir um það. Það er fólkið sem stendur manni næst sem eru helstu fyrirmyndir okkar en ekki einhverjar stjörnur út í heimi,“ segir Ólöf. Fyrirtækið Skólar ehf. stefna að því að verða leiðandi í þekkingu og aðferðafræði heilsueflandi leikskóla- starfs. Ólöf segir marga skóla vera nú þegar að gera vel en þó megi alltaf gera betur. „Allt sem við höfum verið að gera er opið og matseðlarnir standa öllum til boða sem vilja nýta sér þá. Það er bara guðvelkomið og myndi gera okkur hjá Skólum mjög stolt og ánægð.“ Opið til kl. 21 alla daga í Faxafeni  matseðlar NæriNgarstefNa í leikskólum Grjónagrautur og slátur vinsælast Heilsuleikskólar Skóla ehf. starfa undir einkunnarorðunum „heilbrigð sál í hraustum líkama“. Þeir hafa nú mótað sérstaka Næringarstefnu sem fylgt er eftir í öllum þeirra skólum. Nýir matseðlar þeirra byggja á vinsælustu réttum barnanna, lögð er áhersla á fjölbreytt íslenskt fæði og að halda magni sykurs, salts og harðrar fitu í lágmarki. Frá embætti landlæknis • Grænmeti og ávextir daglega • Fiskur tvisvar í viku • Olía eða mjúk fita í stað harðrar • Fituminni mjólkurvörur fyrir börn undir 2 ára • Gróf brauð og annar trefjaríkur kornmatur • Salt í hófi • Sykur í lágmarki • Þorskalýsi eða annar D-vítamíngjafi • Vatn er besti svaladrykkurinn Vikumatseðill frá Heilsuleikskólanum • Gufusoðin ýsa með smjöri kartöflum og rófum • Ofnbakaður lambalifrarréttur með kartöflumús, brúnni sósu og grænmeti • Hrært skyr með rjómablandi, ilmandi brauði, áleggi og grænmeti • Ofnsteiktur þorskur með hýðishrísgrjónum, karrýsósu og hrásalati • Ofnsteiktir kjúklingaleggir með heilhveitipasta og salati Ólöf Kristín Sívertsen, fagstjóri Heilsuleik- skólanna og lýðheilsu- fræðingur. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Heilsuleikskólarnir eru: Heilsuleikskólinn Hamravellir í Hafnarfirði, Heilsuleikskólinn Háaleiti á Ásbrú í Reykja- nesbæ, Heilsuleikskólinn Kór í Kópavogi, Heilsuleikskólinn Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík. Hér njóta börnin í Heilsuleikskólanum Kór matarins en þar er reynt eftir fremsta megni að gera matartímann að notalegri stund sem börn og full- orðnir njóta saman. 10 fréttir Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.