Fréttatíminn - 28.02.2014, Blaðsíða 10
H eilsuleikskólar Skóla ehf. eru nú fimm talsins og er fyrir-tækið einn af stofnaðilum
Samtaka sjálfstæðra skóla (SSSK)
og aðilar að Samtökum heilsuleik-
sóla. Ólöf Kristín Sívertsen er lýð-
heilsufræðingur og fag stjóri heilsu-
leikskólanna hjá Skólum. „Það var
Unnur Stefánsdóttir, leikskólastjóri í
Heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópa-
vogi, sem hafði frumkvæði að mótun
Heilsustefnu fyrir leikskóla. Mark-
mið stefnunnar er að auka gleði og
vellíðan barnanna með áherslu á nær-
ingu, hreyfingu og sköpun
í leik. Hugmyndafræðin er
sú að ef barn fær holla nær-
ingu og mikla hreyfingu,
þá sprettur fram þörf til að
skapa. Við hjá Heilsuleik-
skólum Skóla störfum eftir
þessari stefnu auk 20 ann-
ara leikskóla,“ segir Ólöf.
Rannsóknir sýna að mat-
aræði og næringarástand
barna hefur áhrif á heilsu
þeirra, þroska, vöxt og al-
hliða líðan. Skólar kapp-
kosta því að auka velferð
barna með góðri næringu og nú hefur
fyrirtækið sett sér sérstaka Næringar-
stefnu. „Við höfum alltaf fylgt Heilsu-
stefnunni og því lagt áherslu á hollt
mataræði en okkur fannst kominn
tími til að ramma almennilega inn það
sem við erum að gera og gera sameig-
inlega matseðla fyrir alla skólana. Svo
við settumst niður, ég sem lýðheilsu-
fræðingur, næringarfræðingurinn
og matráðar allra okkar leikskóla, til
að setja saman heildstæða næringar-
stefnu sem byggir á opinberum ráð-
leggingum um mataræði og næring-
arefni frá embætti landlæknis. Við
gerðum matseðil fyrir 8 vikna tímabil
og er hver dagur og hver vika hugsuð
sem næringarleg heild út frá næring-
arþörf barna, samkvæmt opinberum
ráðleggingum. Við leggjum mikla
áherslu á að elda allt frá grunni, að
ráðlögðum dagskammti vítamína og
steinefna sé náð og á fjölbreytnina
því mismunandi næringarefni koma
úr mismunandi fæðutegundum. Við
gáfum stefnuna formlega út í byrjun
ársins en höfum notast við matseðlana
síðan í september 2013.“
Engin tómatsósa
Eftir að hafa borið saman bækur
sínar komust matráðar leikskólanna
að því að grjónagrautur og slátur er
langvinsælasti rétturinn
meðal barnanna en fast á
eftir kemur soðin ýsa með
kartöflum og smjöri. „Við
tókum tómatsósuna alveg
út af matseðlinum en nær-
ingarfræðingurinn var
harður á því að tómatsósa
passar ekki inn í heilsuleik-
skóla. En auðvitað er ekkert
mál að búa til tómatsósu frá
grunni. Við höfum stundum
tómatsmjör með ýsunni, en
þá blöndum við alvöru tóm-
ötum við smjörið. Smjörið
er mikilvægt því börn þurfa fitu en
þessi tómatsósa sem er keypt úti í búð
er uppfull af sykri. Okkur fannst þetta
stórt skref en það er einungis eitt barn
af 450 sem hefur gert athugasemd við
breytinguna,“ segir Ólöf
Mataruppeldi er mikilvægt
Matartíminn í heilsuleikskólunum eru
notalegar stundir þar sem reynt er að
kenna börnunum að njóta þess að
borða. Reynt er að hafa andrúmsloft-
ið sem rólegast og kennararnir borða
með börnunum. „Við viljum stuðla að
heilbrigðum matarvenjum barnanna
til framtíðar, vera góðar fyrirmyndir.
Matarvenjur mótast strax í barnæsku
og það er mjög mikilvægt að leikskól-
arnir séu meðvitaðir um það. Það er
fólkið sem stendur manni næst sem
eru helstu fyrirmyndir okkar en ekki
einhverjar stjörnur út í heimi,“ segir
Ólöf. Fyrirtækið Skólar ehf. stefna að
því að verða leiðandi í þekkingu og
aðferðafræði heilsueflandi leikskóla-
starfs. Ólöf segir marga skóla vera
nú þegar að gera vel en þó megi alltaf
gera betur. „Allt sem við höfum verið
að gera er opið og matseðlarnir standa
öllum til boða sem vilja nýta sér þá.
Það er bara guðvelkomið og myndi
gera okkur hjá Skólum mjög stolt og
ánægð.“
Opið til
kl. 21
alla daga
í Faxafeni
matseðlar NæriNgarstefNa í leikskólum
Grjónagrautur og slátur vinsælast
Heilsuleikskólar Skóla ehf. starfa
undir einkunnarorðunum „heilbrigð
sál í hraustum líkama“. Þeir hafa nú
mótað sérstaka Næringarstefnu sem
fylgt er eftir í öllum þeirra skólum.
Nýir matseðlar þeirra byggja á
vinsælustu réttum barnanna, lögð
er áhersla á fjölbreytt íslenskt fæði
og að halda magni sykurs, salts og
harðrar fitu í lágmarki.
Frá embætti landlæknis
• Grænmeti og ávextir daglega
• Fiskur tvisvar í viku
• Olía eða mjúk fita í stað harðrar
• Fituminni mjólkurvörur fyrir börn undir 2 ára
• Gróf brauð og annar trefjaríkur kornmatur
• Salt í hófi
• Sykur í lágmarki
• Þorskalýsi eða annar D-vítamíngjafi
• Vatn er besti svaladrykkurinn
Vikumatseðill frá Heilsuleikskólanum
• Gufusoðin ýsa með smjöri kartöflum og rófum
• Ofnbakaður lambalifrarréttur með kartöflumús, brúnni sósu og grænmeti
• Hrært skyr með rjómablandi, ilmandi brauði, áleggi og grænmeti
• Ofnsteiktur þorskur með hýðishrísgrjónum, karrýsósu og hrásalati
• Ofnsteiktir kjúklingaleggir með heilhveitipasta og salati
Ólöf Kristín Sívertsen,
fagstjóri Heilsuleik-
skólanna og lýðheilsu-
fræðingur.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Heilsuleikskólarnir eru:
Heilsuleikskólinn Hamravellir í Hafnarfirði,
Heilsuleikskólinn Háaleiti á Ásbrú í Reykja-
nesbæ, Heilsuleikskólinn Kór í Kópavogi,
Heilsuleikskólinn Krókur í Grindavík og
Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík.
Hér njóta börnin í
Heilsuleikskólanum
Kór matarins en
þar er reynt eftir
fremsta megni að
gera matartímann
að notalegri stund
sem börn og full-
orðnir njóta saman.
10 fréttir Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014