Fréttatíminn - 28.02.2014, Page 16
Ohhh, þessi Elín!
Elín Hirst veit ekkert hvað einelti er.
Stefán Karl Stefánsson, leikari og
stofnandi Regnbogabarna, var
ekki sáttur við umkvartanir Elínar
Hirst um að Vigdís Hauksdóttir
væri lögð í einelti.
Ohhh, þessi skrattakollur!
Djöfullinn var í mér.
Algirdas Vysnauskas kemur með sannfærandi
skýringu á því hvað fékk hann til þess að mölva
flösku fulla af metamfetamínbasa í tollinum í
Leifsstöð.
Ohhh, þessi almenningur!
Ef við tækjum bara þá sem hafa áhuga á aðild
þá eru það hátt í þrjátíu prósent þjóðarinnar. Þá
væru það sextíu þúsund undirskriftir og kæmi
mér ekki á óvart að það kæmu 60 þúsund undir-
skriftir.
Frosti Sigurjónsson, þingmaður framsóknar og
áhugamaður um undirskriftir, býst við því versta
úr undirskriftasöfnun með áskorun um að aðildar-
viðræðum við ESB verði haldið áfram.
Hvað er málið?
Ég segi bara eins og menn segja
á útlensku: „So what?“ Er ekki
afstaða þeirra bara svona
núna?
Brynjar Níelsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, hefur fullan
skilning á sinnaskiptum ráðherra
flokksins þegar þjóðaratkvæða-
greiðsla er annars vegar.
Say it isn´t so
„So what?“ Allt segi ég. „So everything“. Svo allt,
virðulegi forseti.
Píratanum Helga Hrafni Gunnarssyni þótti lítið til
enskuslettu Brynjars koma og svaraði með fleiri
slettum.
Nemar í hárgreiðslu þurfa að læra hornaföll og vektora til að fá að útskrifast
Stærðfræðileg klipping
É g átti áhugavert samtal við Jóhönnu Vigdísi Arnardótt-ur leikkonu í vikunni. Hluti
af því birtist í skemmtilegu viðtali
hér í blaðinu í dag. Við fórum reynd-
ar dálítið út fyrir efni viðtalsins í
spjallinu því báðar erum við Hjalla-
stefnuforeldrar og með sterkar
skoðanir á skólamálum. Í
viðtalinu bendir Jóhanna
Vigdís meðal annars á ann-
marka skólakerfisins þar
sem reynt er að steypa öllum
nemendum í sama mót. Ég
hef tekið viðtöl við fjöldann
allan af foreldrum barna
með sérþarfir. Allt of margir
segja að skólakerfið sé að
bregðast börnum. Skólinn
komi ekki til móts við þarfir
barnanna heldur sé gert ráð
fyrir því að börnin lagi sig
að skólakerfinu.
Við búum í landi þar sem ofur-
áhersla er á bóknám. Við höfum
margoft heyrt þær staðreyndir að
hvergi í heiminum sé meira um
brottfall úr framhaldsskólum en á
Íslandi. Í greinaflokki sem ég skrif-
aði um brottfall í fyrra kom meðal
annars fram að meira brottfall er
meðal þeirra sem aðhyllast verk-
nám. Jóhanna Vigdís hittir naglann
á höfuðið þegar hún bendir á að
börnum sé bent á að fara í verknám
ef þeim henti ekki bóknám – og
svo sé verknámið nánast eingöngu
bóknám!
Það þarf að taka íslenska skóla-
kerfið til gagngerrar endurskoðun-
ar. Þó svo að kennarar njóti ákveðins
frelsis í því hvernig kennsluaðferðir
þeir tileinka sér og skólastjórnendur
geti aðhyllst tiltekna stefnu í skóla-
starfi eru skólar á Íslandi allt of
líkir. Það hentar ekki öllum börnum
að læra með sama hætti. Foreldrar
ættu að geta valið fyrir börnin sín
skóla sem aðhyllist kennsluaðferðir
sem henta börnunum þeirra. Það
getum við upp að vissu marki í fram-
haldsskólunum, sérstaklega hvað
varðar bóknámið.
Ég get nefnt dæmi af ungri konu
sem var að læra hárgreiðslu í Iðn-
skólanum. Hún var búin að vinna á
hárgreiðslustofu í mörg ár sem nemi
og tók bóklega námið í skólanum
samhliða vinnu. Hún er svakalega
flinkur klippari. Henni fannst stærð-
fræðin hins vegar dálítil hindrun
og stakk sameiginleg vinkona
okkar upp á því að ég tæki hana í
einkatíma (ég útskrifaðist af nátt-
úrufræðibraut og voru stærðfræði
og aðrar raungreinar mitt sérsvið í
námi). Það gerði ég með ánægju og
klippti hún mig í staðinn.
Ég þurfti auðvitað að rifja upp
stærðfræðina enda tuttugu ár liðin
frá því ég leit síðast í stærðfræðibók.
Hárgreiðsluneminn þurfti að ná
prófi í tveimur stærðfræðiáföngum,
102 og 122, að því er mig minnir.
Við fórum að minnsta kosti saman
yfir annars- og þriðja stigs jöfnur,
hornaföll, vektora, þáttun og liðun,
jöfnuhneppi og hnit, svo fátt eitt sé
nefnt.
Ég skildi ekki hvernig í ósköpun-
um þáttun jafna, hornaföll og vekt-
orar áttu að gera vinkonu mína að
betri hárgreiðslumanni, né heldur
hvers vegna í ósköpunum yfirvöld
gera það að kröfu að hún tileinki
sér jafn flókin stærðfræðihugtök og
raun ber vitni.
Hún fékk hins vegar enga þjálfun
í prósentureikningi, bókhaldsgerð
eða virðisaukaskattreglum, sem ég
hefði talið mun hagnýtara fyrir hana
því flestir hárgreiðslumenn vinna
sem verktakar og þurfa að skila
virðisaukaskattskýrslum.
Kannski er ég að misskilja þetta
eitthvað. Kannski reikna hár-
greiðslumenn alltaf út hornaföll á
klippingum áður en þeir ráðast til
verks. Þeir eru bara svo þjálfaðir í
því eftir alla stærðfræðina í Iðnskól-
anum að þeir þurfa ekki einu sinni að
bregða penna á blað.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
Barnadagar Íslensk hönnun
100% hágæða bómull26. febrúar - 1. mars
Börnin
fá gen
s
rúmföt
fyrir ban
gsann
2 fyrir 1
af barnafatnaði
Lín Design Laugavegi 176 og Glerártorgi Akureyri www.lindesign.is Sími 533 2220
Vöggusett
70x100
Verð frá: 4.193 kr
Rúmföt
100x140
Verð frá: 5.243 kr
af öllum barnavörum
30%
afsláttur
Send
um fr
ítt
úr vef
verslu
n
www
.linde
sign.i
s
Vikan sem Var
16 viðhorf Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014