Fréttatíminn - 28.02.2014, Blaðsíða 42
Aron og BAle mætAst í WAles
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Wales í vináttulandsleik á miðvikudaginn í næstu
viku, 5. mars. Íslensku drengirnir takast þar á við einn kunnasta knattspyrnumann heims, Gareth
Bale. Athygli vekur að Aron Einar Gunnarsson verður eini leikmaðurinn á vellinum sem leikur
með velska liðinu Cardiff. SkjárSport sýnir beint frá leiknum í opinni dagskrá.
A ron Einar Gunnarsson mun leiða íslenska landsliðið í vináttuleik gegn Wales á mið-vikudaginn. Leikurinn fer fram á heimavelli
Cardiff City sem tekur 27 þúsund áhorfendur.
Búa sig undir undankeppni EM
Stærsta stjarna velska liðsins er Gareth Bale og
mun hann leika gegn Íslendingum. Bale er
sjóðheitur eftir að hafa skorað tvö
mörk í Meistaradeildinni með
Real Madrid í vikunni. Ekki
liggur enn fyrir hvernig ís-
lenska liðið verður skipað
en landsliðsþjálfararnir
Lars Lägerback og Heim-
ir Hallgrímsson kynna
það á blaðamanna-
fundi í dag, föstudag.
Íslenska landslið-
ið missti sem kunn-
ugt er af sæti á HM
í Brasilíu í sumar
þegar það tapaði
f yr ir K róötum.
Liðið getur því
byrjað að einbeita
sér að undirbúningi
fyrir undankeppni
EM 2016 í Frakklandi.
Þessi leikur er því kær-
kominn til að ná úr sér tap-
inu í haust.
Í vikunni var dregið í riðla fyrir
undankeppni EM. Ísland er í A-riðli
með Hollandi, Tékklandi, Tyrklandi,
Lettlandi og Kasakstan. Fyrstu leikirnir
fara fram 7.–9. september í ár.
Stórstjarnan Bale
Það er engin smástjarna sem fer fyrir þeim
velsku. Gareth Bale var á allra vörum í sum-
ar þegar Real Madrid keypti hann frá Totten-
ham Hotspur í Englandi. Bale var keyptur til
Tottenham sem efnilegur vinstri bakvörður
árið 2007 en þegar hann var seldur þaðan var
hann búinn að breytast í skeinuhættan kant-
mann eða framherja sem skoraði 21 mark á sínu
síðasta tímabili. Bale kom úr knattspyrnuakadem-
íu Southampton sem hefur skilað mörgum fram-
bærilegum leikmönnum síðustu ár. Hann hefur
ekki fest sig í sessi í liði Real Madrid enda átt við
smávægileg meiðsli að stríða en nú virðist hann
vera að finna fjöl sína. Tvö mörk og stoðsending
í 6-1 sigri á Schalke í Meistaradeildinni í vikunni
renna stoðum undir það. Um síðustu helgi
setti hann svo einn þrumufleyg í
spænsku deildinni.
Auk Bale ætti að gleðja ein-
hverja að Joe Allen, leik-
maður Liverpool, mætir
Íslendingum en því mið-
ur er Aaron Ramsay,
leikmaður Arsenal,
fjarri góðu gamni.
Nokkr ir leik-
menn Swan-
sea City eru
í liðinu, sá
sterkasti
líklega
varnar-
maður-
inn Ashley
Williams, en
enginn leikmaður
Cardiff City var valinn að þessu
sinni. Aron Einar Gunnarsson,
fyrirliði íslenska liðsins, verður
því eini leikmaðurinn á vellinum
sem leikur á heimavelli.
Mikil stemning í samfé-
laginu
SkjárSport sýnir beint frá leikn-
um á miðvikudaginn en leikur-
inn hefst klukkan 19.45.
Pálmi Guðmundsson dag-
skrárstjóri er afar spenntur
fyrir leiknum. „Við erum mjög
ánægð að hafa tryggt okkur út-
sendingarréttinn að leiknum.
Karlalandsliðið okkar í fótbolta
hefur aldrei í sögunni staðið sig
eins vel og mikil stemning er fyrir
því í samfélaginu,“ segir Pálmi.
SkjárSport er í opinni dagskrá á
rás 30 á myndlyklum Símans og rás
28 á myndlyklum Vodafone – og sýnir
bæði þýska og hollenska boltann í op-
inni dagskrá um helgina.
Aron Einar Gunnarsson
Lið: Cardiff City.
Aldur: 24 ára.
Hæð: 1.78 m.
Númer: 17.
Landsleikir/mörk: 40/0.
Staða: Miðjumaður.
Gareth Bale
Lið: Real Madrid.
Aldur: 24 ára.
Hæð: 1.83 m.
Númer: 11.
Landsleikir/mörk: 43/11
Staða: Vængmaður/framherji.
Unnið í samstarfi við
42 fótbolti Helgin 28. febrúar - 2. mars 2013
Fitul’til og
pr—teinr’k . . .
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA