Fréttatíminn


Fréttatíminn - 28.02.2014, Page 55

Fréttatíminn - 28.02.2014, Page 55
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn. Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur D Y N A M O R EY K JA V ÍK NÝ OG BE TRI HÖNNUN ! TANNBURSTAR OG TANNKREM FYRIR VIÐKVÆM SVÆÐI gera hrökkkex og setja út í það fullt af fræjum, mjöl og mikið af olíu. Þannig er fólk komið með kolvetni, prótein og fitu. Ég geri oft svona kex og þarf þá jafn- vel bara að hafa grænmeti með. Stundum set ég meira að segja rifnar gulrætur eða súkkíni í göngubrauð, það er kannski ekki jafn skemmtilegt að borða það en það er mjög þægilegt.“ Auk þess að vera með vatn að drekka mælir Kolbrún með því að gera þunnan grænan drykk í blandara um morguninn og taka með í gönguna. „Þetta á að vera mjög þunnt en ekki eins og „bo- ost“. Í raun kemur þetta í staðinn fyrir vatn með kemísku dufti sem fólk kaupir til að bæta steinefn- um í vatn því fólk svitnar og tapar þannig steinefnum.“ Skyndimatur á göngum er ekki ætlaður til þess að narta í alla gönguna heldur þegar fólk þarf á auka orku að halda. „Til dæmis ef fólk er að fara á Hvannadals- hnúk, er búið að ganga lengi og þarf meiri orku. Sumir þurrkaðir ávextir finnst mér of sætir og ég fæ mér frekar goji-ber. Í kakói er líka koffín og þó ég sé ekki hrifin af koffíni þá finnst mörgum gott að fá það. “ Í lengri ferðum þarf að passa upp á að vera með léttan mat sem geymist vel. Hægt er að kaupa þurrmat sem aðeins þarf að blanda vatni við en Kolbrún bendir á að hann inniheldur oft mikið af aukaefnum og sykri. Því sé mikilvægt að lesa vel innihalds- lýsingar, en einfaldast sé að útbúa sjálfur matinn og gefur Kolbrún lesendum Fréttatímans hér til- lögu að dagsplani fyrir lengri ferðir, auk þess að fara yfir hvaða nesti hentar best í dagsferðir. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Nesti í dagsferðir Prótein: Soðið egg, sviðasulta, lifrarpylsa, kindakæfa, fræ, hnetur, harðfiskur, söl og hreint kjöt. Kolvetni: Heilkorna pasta/hollt gott brauð/ flatkökur . Fita: Smjör, tahini (líka prótein), ólífuolía, kindakæfa og sviðasulta. SKyndimatur: Þurrkaðir ávextir, kakónibbur, 70-100% súkkulaði. Hnetur og fræ virka líka. Grænn dryKKur: Sellerí, gúrka, engifer, vatn og sítróna. mjög gott að vera með þunnan grænan til að endurnýja steinefni.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.