Fréttatíminn - 28.02.2014, Side 74
Daily Star
Daily Telegraph
B
ra
nd
en
bu
rg
551 1200 | HVERFISGATA 19 | LEIKHUSID.IS | MIDASALA@LEIKHUSID.IS
É g bara skil ekki Íslendinga,“ segir Mína sem er frá Georgíu en hefur búið á Íslandi í 9 ár. Það er alltaf
verið að tala um skuldir heimilanna en
svo gerir fólk ekkert í sínum málum
sjálft. Af hverju erum við alltaf að bíða
eftir að ríkisstjórnin geri eitthvað. Farðu
bara og seldu allt dótið úr geymslunni.“
Hún segist sakna flóamarkaðanna frá
Evrópu og þá sérstaklega markaðs-
stemningarinnar sem þeim fylgir. „Mér
finnst svo skemmtilegt þetta samband
sem myndast milli fólks á mörkuðum,
allir að spá og spekúlera og tala saman
um sögu hlutanna.“
Þorgeir segir Mínu vera algjöran sér-
fræðing í skandinavískri hönnun. „Við
fluttum í hús sem er byggt 1974 og fund-
um fljótlega út að ekkert sem við áttum
passaði í húsið. Eina leiðin til þess að fá
hluti sem pössuðu við húsið var að fara á
markaði og leita að „retro“ hlutum. Mína
bjó lengi í Úkraínu þar sem markaðir eru
algengir, en hún hafði hinsvegar aldrei
heyrt um Bing og Gröndal, Holmegaard,
eða Ittala. Í dag er hún orðin sérfræðing-
ur í öllum þessum vörum.“
Íslendingar feimnir
Það var hópur áhugamanna um bætt
mannlíf í Vesturbænum og á Seltjarnar-
nesi sem fékk þá hugmynd að koma á fót
flóamarkaði í samstarfi við bæjaryfirvöld
á Seltjarnarnesi. Fyrsti markaðurinn var
haldinn í nóvember en nú verður alltaf
markaður fyrsta laugardag hvers mánað-
ar. Stefnt er að því að listamenn fái einnig
að kynna verk sín á markaðsdögum.
„Það tekur smá tíma að vinna þessu
sess. Það er eins og Íslendingar séu
ennþá svolítið feimnir að koma á flóa-
markaði, skoða og upplifa stemminguna
sem þeim fylgir. Hér eru hlutir sem ekki
eru framleiddir lengur og eru orðnir
klassískir. Einnig gerir fólk mjög oft góð
kaup í allskonar hlutum eins og barna-
fötum, bókum, ljósum, raftækjum og öllu
milli himins og jarðar,“ segir Þorgeir.
Listin að prútta
Það er ýmislegt sem gott er að hafa í
huga þegar kemur að því að prútta. Það
er auðvitað nauðsynlegt að setja upp
pókerandlitið og muna að þykjast vera
gjörsamlega áhugalaus í byrjun. Þegar
þú finnur lampann sem þig hefur alltaf
dreymt um verður þú að láta sem hann
sé drasl sem þú gætir mögulega keypt á
500 kall. Þú byrjar alltaf lágt en prúttar
þig svo upp, afslappaður og áhugalaus.
Einnig er nauðsynlegt að vera vinalegur
og helst soldið sjarmerandi því enginn
vill selja áhugalausum fýlupúka erfða-
góssið. Ef seljandi setur upp fáránlega
hátt verð er best að setja upp áhyggjusvip
og gera sig tilbúin til að ganga í burtu,
en mjög hægt og frekar hikandi, gefa
seljanda þannig tækifæri til að lækka
verðið. Ef allt gengur eftir er vel við hæfi
að innsigla kaupin og gleðina með brosi
og jafnvel handabandi.
Flóamarkaðurinn er með facebook
síðu og svo er hægt að hringja í Þor-
geir og Mínu til að panta pláss í síma
6158085.
Evrópsk markaðs-
stemning á Eiðistorgi
Flóamarkaður Fyrsta laugardag hvers mánaðar
Hjónin
Þorgeir
Jóhannsson
og Minaya
Multykh eru
áhugafólk
um flóa-
markaði og
sjá um allt
skipulag nýs
flóamarkaðar
á Eiðistorgi.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Minaya, sem er frá Georgíu, mælir með því að Íslendingar hreinsi úr geymslunum til að bæta hag heimilanna.
Daði Halldórsson (Elmar Gilbertsson tenór) og
Ragnheiður Brynjólfsdóttir (Þóra Einarsdóttir)
í óperunni Ragnheiði sem frumsýnd verður á
laugardagskvöld. Mynd/Gísli Egill Hrafnsson
ópera Íslenska óperan ragnheiður Frumsýnd um helgina
Erlendir menningarvitar spenntir fyrir íslenskri óperu
Erlend óperutímarit hafa sýnt uppfærslunni
mikinn áhuga sem og erlendir óperustjór-
ar,“ segir Steinunn Þórhallsdóttir, kynn-
ingarstjóri Íslensku óperunnar.
Íslenska óperan Ragnheiður verður frum-
sýnd í Eldborgarsal Hörpu á laugardags-
kvöld. Mikill spenningur er fyrir frum-
sýningunni hér á landi en athygli vekur að
erlent óperufólk sýnir henni líka áhuga. Það
er kannski ekki skrýtið því ekki er algengt
að frumsýnd sé ný íslensk ópera. Þetta er
aukinheldur fyrsta íslenska óperan sem Ís-
lenska óperan setur upp í Eldborg, og fyrsta
óperan sem popparinn Gunnar Þórðarson
semur. Hátt í eitt hundrað listamenn taka
þátt í uppfærslunni, og einungis eru ráð-
gerðar fjóra sýningar í mars.
Steinunn segir að óperustjórar og tón-
listargagnrýnendur frá Svíþjóð hafi boðað
komu sína. „Óperugagnrýnandi frá hinu
virta breska tímariti Opera Now verður við-
staddur og mun fjalla um frumsýninguna í
tímaritinu, einnig er gagnrýnandi frá hinu
útbreidda þýska tímariti Opernwelt á leið til
landsins gagngert til að heyra og sjá þessa
alíslensku óperuuppfæslu. Enn fleiri hafa
sýnt uppfærslunni og verkinu sjálfu áhuga.
Okkar tilfinning er að saga Ragnheiðar,
Brynjólfs, Daða og allra í Skálholti gæti átt
sér fallegt framhaldslíf víðar, og að þetta
ævintýri sé rétt að byrja.“
Óperan fjallar um Ragnheiði Brynjólfs-
dóttur, biskupsdóttur í Skálholti á 17. öld,
ástarsamband hennar við lærimeistara sinn
Daða Halldórsson og fordæmingu föður
hennar, Brynjólfs biskups Sveinssonar, á því
sambandi.
Þóra Einarsdóttir sópran syngur titilhlut-
verk biskupsdótturinnar ungu, hlutverk
Ragnheiðar Brynjólfsdóttur, Viðar Gunn-
arsson syngur hlutverk Brynjólfs Skálholts-
biskups og í fyrsta sinn á sviði Íslensku
óperunnar er tenórinn Elmar Gilbertsson,
sem fer með hlutverk Daða Halldórssonar,
kennara og ástmanns Ragnheiðar.
Jesús er páskabjór Borgar í ár. Hann fer í sölu á miðvikudag í næstu viku.
Bjór Þriðja BjórhátÍðin á kex
Omnom og Borg
taka höndum saman
Hin íslenska bjórhátíð er nú
haldin í þriðja sinn á Kex Hos-
teli. Hátíðin er haldin í tilefni af
bjórdeginum 1. mars en í ár eru
25 ár liðin frá því bjórinn var
leyfður hér á landi eftir 74 ára
sölubann. Bæði íslensk og erlend
brugghús taka þátt í hátíðahöld-
unum sem hófust á miðvikudag
og lýkur á morgun, laugardag.
Bruggarar frá Borg, Ölgerðinni,
Einstök, Vífilfelli, Steðja, Ölvis-
holti og Kalda kynna starfsemi
sína á Kex. Erlendu bruggar-
arnir koma frá örbrugghúsum í
Danmörku (To Øl, Mikkeller) og
Bandaríkjunum (Logsdon Farm-
house Ales, Rogue Ales, Bo-
neyard Beer, Gigantic Brewing
Co) og sérhæfa sig í framleiðslu
á hágæða bjór af ýmsum toga.
Í næstu viku sendir Borg
brugghús frá sér páskabjórinn
Jesús. Eitt sem gerir Jesús sér-
stakan er samstarf við hand-
verkssúkkulaðigerðina Omnom
á Seltjarnarnesi sem sérristar
kakóbaunir í bjórinn fyrir
Borgarmenn sem þeir nota sem
létt krydd. Að sögn Óla Rúnars
Jónssonar hjá Borg mega gestir
á bjórhátíðinni á Kexi í dag,
föstudag, eiga von á góðu. Þar
munu nefnilega fulltrúar frá Om-
nom og Borg vera og kynna fyrir
áhugasömum pörunarmöguleika
súkkulaðis og bjórs. Sannarlega
forvitnilegt.
74 dægurmál Helgin 28. febrúar - 2. mars 2014