Fréttatíminn - 28.02.2014, Side 78
LIFANDI LÍFSSTÍLL // 3. ÁRGANGUR // 1. TÖLUBLAÐ // FEBRÚAR 2014 2
Kaffitár er stoltur samstarfsaðili Lifandi Markaðar sem valdi
expressó Marabá kaffið frá Kaffitár til að bjóða gestum sínum.
Marabá er með góðri fyllingu og krydduðu eftirbragði
– flottur endir á góðum veitingum.
KAFFITÁR
ÁN
KRÓKALEIÐA
Lifandi vinnu-
staður í 10 ár
Kæru lesendur
LIFANDI markaður á 10 ára afmæli í ár. Stofnendur
fyrirtækisins voru sannkallaðir frumkvöðlar á sínu sviði.
Með tilkomu verslunar og veitingastaðar á einum og sama
stað var fræjum sáð í hjörtu fjölmargra landsmanna sem
voru eða urðu meðvitaðir um áhrif lífsstíls og mataræðis
á heilsu og lífsgæði. Með tímanum var einnig boðið upp á
fræðslu og námskeið sem hafa notið mikilla vinsælda.
Á tímamótum eins og nú fannst okkur tilvalið að forsíðuna
myndi prýða starfsmaður sem hefur verið hjá fyrirtækinu
frá upphafi. Það er Sigríður Vala Þórarinsdóttir, eða Sigga
Vala, verslunarstjóri í Borgartúni. Í augum margra
viðskiptavina er hún andlit fyrirtæksins. Í viðtali í blaðinu
segir Sigga Vala meðal annars: „Það er svo gaman að sjá allt
fólkið sem kemur aftur og aftur, ár eftir ár. Ég elska að taka á
móti fólki og vinn við það sem mér finnst skemmtilegast.“
Viðskiptavinir okkar hafa stundum haft það á orði að það
sjái og finni hversu vel starfsfólkinu hér líður og að það smi-
ti úr frá sér. Hér hafa orðið til ýmis sambönd og tengsl, svo
sem vina-, viðskipta- og ástarsambönd. Marta Eiríksdóttir
og Jóhann Ágústsson felldu hugi saman hér sem starfsmenn
og segja okkur frá því í einlægu viðtali. Þau halda því fram
að hjá Lifandi markaði séu kjöraðstæður til að mynda tengsl
því umhverfið sé heilbrigt og fólk hafi þau sameiginlegu
markmið að lifa heilbrigðu lífi og njóta stundarinnar.
Einnig verður í þessu tölublaði lögð áhersla á snyrtivörurnar
okkar hjá Lifandi markaði. Við leggjum áherslu á að nota
eins lífrænar snyrtivörur og völ er á. Við teljum að mikil-
vægt sé að auka meðvitund um skaðsemi óæskilegra efna
sem eru algeng í snyrtivörum og höfum hvatt viðskiptavini
okkar til að lesa innihaldslýsingar á umbúðum. Til að sýna
fram á gæði lífrænu snyrtivaranna sem við seljum fengum
við að farða einn viðskiptavina okkar, Maríu Ósk Friðberts-
dóttur, og að sitja fyrir á „fyrir og eftir“ myndum.
Í verslunum okkar í Fákafeni, Borgartúni og Hæðarsmára
eru starfsmenn með sérþekkingu og reynslu í að ráðleggja
viðskiptavinum okkar í öllu sem ykkur þyrstir í að vita um
lífrænan lífsstíl. Verið hjartanlega velkomin!
Arndís Thorarensen, framkvæmdastjóri.
1. Haf-ró
Slakandi steinefnablanda með
náttúrulegu magnesíumi, B6 og C
vítamín.
2. Magnesíum
Náttúruleg slökun sem styrkir
líkaman gegn streitu og bætir
svefn.
3. Asphalia
Bygg- og hveitigrasblanda sem
hefur reynst einstök við
svefnerfiðleikum.
4. Avena Sativa
Hafrar hafa lengi verið notaðir
til að róa taugakerfið, draga út
streitu og pirringi.
5. Kamillute
Kamillan hefur væg róandi áhrif
og er einstaklega gott að drekka
bolla fyrir svefninn.
6. Lavender ilmolía
Olían hefur róandi og slakandi
áhrif. Einn dropi á koddan fyrir
svefn hjálpar fólki að komast í ró.
Veisluþjónusta er nýung hjá Lifandi markaði
og er tilvalið fyrir fundi, veislur og alls kyns
mannamót. „Við erum aðallega að tala um
hollustu. Fólk er kannski orðið leitt á því sem
algengt er að boðið sé upp á í veislum og vill
meiri hollustu. Ég er þegar farinn að fá fyrir-
spurnir,“ segir Böðvar Sigurvin Björnsson,
yfirmatreiðslumaður hjá Lifandi markaði.
Einnig er boðið upp á þeytinga og girnilega
safa fyrir fundi og slíkt. „Fólk situr kannski á
fundi í fjóra tíma og fær Græna þrumu eftir
tvo tíma. Þú getur rétt ímyndað þér hversu góð
áhrif það hefur á líðan og hressleika þeirra sem
sitja slíkan fund,“ segir Böðvar og hvetur fólk
til að leita tilboða hjá sér í síma 770-2112 eða í
netfangið bodvar@lifandimarkadur.is.
Nýung hjá Lifandi markaði:
Hressandi þeytingar
og hollar veitingar
Streita eða svefnleysi! Hvað er til ráða?
Ábyrgðarmaður:
Arndís Thorarensen
Ritstjórn:
Olga Björt Þórðardóttir
Hönnun og umbrot:
Víkurfréttir
Ljósmyndir:
Haraldur Jónasson
og Ljósmyndasöfn
Veislu-
þjónusta