Fréttatíminn - 28.02.2014, Side 80
LIFANDI LÍFSSTÍLL // 3. ÁRGANGUR // 1. TÖLUBLAÐ // FEBRÚAR 2014 4
Margir viðskiptavinir Lifandi
markaðar kannast við Sigríði Völu
Þórarinsdóttur, eða Siggu Völu.
Hún hefur starfað hjá fyrirtækinu frá
upphafi og þekkir það betur en flestir
aðrir. Þegar Sigga Vala hóf störf hét
fyrirtækið Maður lifandi. Furir þremur
árum sameinaðist fyrirtækið verslun-
inni Yggdrasil og fékk heitið Lifandi
markaður.
Voru frumkvöðlar
Við spurðum Siggu Völu hvað
henni finnst markverðast í starfinu
og starfseminni á þessum 10 árum.
„Það er búið að vera skemmtilegt að
taka þátt í þessari starfsemi. Við erum
frumkvöðlar á Íslandi og það hefur
komið viðskiptavinum okkar á óvart.“
Einnig finnst Siggu Völu skemmtilegt að
sjá sama fólkið sem kemur aftur og aftur,
ár eftir ár. „Viðskiptavinurinn er að sækja
í eitthvað hollt, gott og flott. Maturinn er
svo hollur að maður fær þessa góðu til-
finningu um að vera södd á heilbrigðan
hátt,“ segir hún brosandi.
Sístækkandi hópur
hugsar um heilsuna
Lifandi markaður hefur alltaf haft þessa
sérstöðu sem verslun og veitingastaður á
sama stað. „Svo getur fólk sótt sér heilsu-
vörur, snyrtivörur og hreinlætisvörur. Allt
til heimilisis. Getur treyst á að allt sé fyrsta
flokks. Vörurnar hérna náðu vinsældum
mjög fljótt og raðir af fólki náðu út á götu,
hádegi eftir hádegi.“
Sigga Vala rifjar upp að fólk á öllum aldri
hafið komið til þeirra, fyrst til að skoða
og kynna sér það sem var í boði. Hjördís
Ásberg, sem stofnaði Maður lifandi á
sínum tíma, rak einnig heildsöluna Bio
vörur. „Hún flutti inn í miklu meira
magni til þess að geta boðið upp á lífrænt
og einnig til að geta boðið upp á heitan
mat. Þannig var hægt að opna verslunina
og markaðurinn stækkaði í kjölfarið,“
segir Sigga Vala og bætir við að margar
aðrar verslanir hafi opnað sérvörudeildir
síðar og það sé af hinu góða. „Hópur-
inn stækkar og fólk finnur sér sinn
stað. Ég hugsa alltaf á þá leið að eftir því
sem fleiri opna því sterkari verðum við.
Fólkið og markaðurinn hugsa í auknum
mæli um heilsu og heilbrigði. Það skiptir
okkur öll máli.“
Börnin læra lífsstílinn
af foreldrum
Birtingarmynd þróuninnar sem einnig
hefur átt sér stað í hugsunarhætti um
heilsu og lífsstíl er að mæður koma inn
með ung börn sín og kaupa lífrænan
barnamat. „Svo stækka börnin og
venjast því að nota það sem mömm-
urnar kaupa. Lífsstíll síast þannig
snemma inn,“ segir Sigga Vala.
Einnig hafi fyrirtækið verið framsækið
og ötult í að bjóða upp á fjölda fjöl-
breyttra námskeiða. „Við höfum með
hundruð námskeiða sem jafnvel enginn
annar hefur verið með. Allt það nýjasta
sem gerst hefur í heilbrigði og heilsu
hefur oft byrjað í okkar húsakynnum.“
Að verða fimmtug og
ekkert grátt hár
Sigga Vala hefur ætíð hugsað um vel
sjálfa sig og eigin heilsu. Hún notar
vörurnar mikið sjálf sem seldar eru í
Lifandi markaði. „Ég held að ég hafi
aukið inntöku á olíum á þessum árum;
e-vítamínum, hörfræjaolíu og hamp-
olíu. Ég er að verða fimmtug og er
ekki með eitt grátt hár. Veit ekki hvers
vegna en ég yrði ekki hissa á því að það
væri vegna olíanna og annarra bæti-
efna.“ Fyrir henni er sama tilfinningin
að koma í vinnuna í dag eins og fyrir
10 árum, alltaf jafn gefandi og gaman.
„Ég vinn einfaldlega við það sem mér
finnst skemmtilegast. Fyrir mig er það
afskaplega mikilvægt. Ég elska að vera
innan um fólk og slíkt hefur alltaf fylgt
mér.“
Mikilvæg skref til betra lífs
Henni finnst sérstaklega gefandi að
sjá allt fólkið sem kemur til að sækja
sér heilbrigði og segist vona að hún
geti á einhvern hátt aðstoðað við það
og látið viðskiptavinum líða þannig
að þeir lifi heilbrigðu lífi. „Bara að
taka þessi mikilvægu skref til betra
lífs. Margir mikla fyrir sér kostnaðinn
við að skipta yfir í lífrænt og hollt en
átta sig á því þegar þeir eru komnir af
stað hversu betri líðanin verður. Eitt
epli á dag kemur heilsunni í lag – að
sjálfsögðu lífrænt.“ Sigga Vala vonar
að markaðurinn geti stækkað enn
meir, fyrirtækið líka, viðskiptavinum
fjölgi svo að hægt verið að efla svona
starfsemi áfram. „Lífrænt er ekki dýrt
þegar litið er heildrænt á málin.“
Sóttu um vinnu
eftir að hafa kíkt við
Þá segir Sigga Vala viðskiptavinina
finna að starfsfólki líður vel hér og það
smiti út frá sér. „Það hefur fólk komið
til okkar og sótt um vinnu eftir að
hafa komið hingað inn og fundið góða
andrúmsloftið sem hér ríkir. Andinn
hér innan dyra nær að mínu mati út
fyrir dyrnar.“ Einnig komi fólk oft sem
kynnt hefur sér og aflað sér upplýsinga
víða um hollustu erlendis. Það gerir þá
kröfu um að eitthvað fáist hjá Lifandi
markaði næst þegar það kemur. „Við
erum alltaf með puttann á púlsinum
til að geta boðið viðskiptavinum upp
á það breiða úrval sem er í boði er
sem tengist heilbrigðum lífsstíl. Allt
frá bætiefnum, kryddi og snyrtivörum
til hráefnis fyrir matargerð.“ Hún
nefnir í því sambandi túrmerik (rót af
engiferætt) sem kom upp í umræðu-
na fyrir skömmu. „Við gerðum allt til
að koma því í búðirnar og það seldist
upp um leið. Þá hafði það ekki fengist
í verslunum eins og okkar.“ Spurð að
lokum um minnisstæð tískufyrirbrigði
í heilsu á undanförnum tíu árum er
Sigga Vala ekki lengi að svara: „Spelt,
vínsteinslyftiduft, hörfræjaolía,
agave sýróp, eplaedik, rósakrem frá Dr.
Hauschka, hveitigras og Epson salt.“
Alltaf jafn gefandi
og gaman í vinnunni