Fréttablaðið - 09.10.2004, Síða 26
26
FRÉTTABLAÐIÐ
9. október 2004 LAUCARDACUR
Diskó fyrir hrottalega skæruliða
jSIGLlNGAH - SANDSPYftNA - BH \R rÓNl lS I H.l KUR - OVD
ÖrJíJO
AUMINGJA
IMILUONAMÆRINGARNIR
i þaö er dýrt aö vera riltur
~r
f
Fjórða breiðskífa rappsveitarinnar Quarashi
kemur út á fimmtudag. Platan heitir Guerilla
Disco og á að fá skæruliða um allan heim til að
dansa. Sölvi Blöndal, höfuðpaur Quarashi, seg-
ir sveitina hafa tekið miklum breytingum frá
því að fyrsta plata hennar leit dagsins ljós fyrir
átta árum.
GRUPPIUR
stuðtónlist til að dansa við þótt
þeir séu hrottalegir."
hins smávaxna rappara. „Það
verður að viðurkennast að hann
kemur með margt nýtt inn í sveit-
ina. Hann hefur karakter til að
þróa sveitina í nýjar og óvæntar
áttir,“ segir Sölvi.
Tiny minnir um margt á banda-
ríska rapparann Eminem, með
sína háu og skæru rödd. Sölvi
tekur ekki undir það en segir báða
vera góða rappara en á ólíkan
hátt. „Tiny er góður rappari og
það er gaman að vinna með hon-
um. Hann verður ekki í neinum
vandræðum með að skapa sinn
eigin stíl. Hann er í raun búinn að
því á þessari plötu,“ segir Sölvi.
Meik og ekki meik
Quarashi hefur vakið mikla at-
hygli í Japan og Bandaríkjunum
en Sölvi segist ekki vita hvort
sveitin hafi meikað það eður ei.
„Ef það er til eitthvað konsept
sem heitir að meika það, þá held
ég að við höfum náð miklu lengra
en við höfum þorað að vona.
Meika það eða meika það? Ég tel
fólk vera að meika það ef það
gerir plötu sem það er sátt við og
er heiðarlegt við sjálft sig. Við
höfum verið ótrúlega heppnir og
fengið að gera marga hluti; gefið
út plötur sem hafa selst í hundrað
þúsundum eintaka í Bandaríkjun-
um og Japan, fengið að túra um
heiminn og ég veit ekki hvað og
hvað. Ég er mjög þakklátur fyrir
það. í þessum bransa tekur maður
engu sem gefnu. Ef einhver úti í
heimi hrífst af tónlist eins og var
á Jinx þá erum við mjög þakklátir,
ef ekki vitum við að minnsta kosti
að við gerðum góða plötu.“
Hugsjónin styrkur
Sölvi hefur unnið talsvert við
upptökustjórn fyrir aðrar sveitir,
þar á meðal hina íslensku Day-
sleeper og japönsku sveitina
YKC, Dr. Spock og fleiri. Hann
hefur einnig endurhljóðblandað
lög fyrir hljómsveitir á borð við
Maus og Prodigy.
Spurður segist Sölvi vera til í
að vinna áfram fyrir aðrar sveitir,
svo framarlega sem honum líkar
tónlistin. Hann segist þó aldrei
munu líta á tónlist sem hverja
aðra skyldu. „Hún verður að snú-
ast um gott lag og góða melódíu í
lok dags enda er hún ekkert ann-
að. Við þyrftum að búa í tuttugu
Hljómsveitin Quarashi hefur far-
ið mikinn á síðustu árum. Sveitin
var fyrsta rapphljómsveitin til að
láta að sér kveða að einhverju viti
hér á landi og hefur síðan herjað á
önnur lönd, þar á meðal Bandarík-
in og Japan. Guerilla Disco, fjórða
breiðskífa Quarashi, kemur út á
fimmtudaginn og daginn eftir
mun sveitin hita upp á tónleikum
fyrir Prodigy í Laugardalshöll.
„Eftir hálfs árs „rökræður"
meðlima sveitarinnar varð þetta
niðurstaðan,“ segir Sölvi Blön-
dal, höfuðpaur og trommuleikari
Quarashi, um hinn óvenjulega
titil plötunnar, Guerilla Disco
eða Skæruliðadiskó. „Það er
mjög fjölbreytt tónlist á plöt-
unni, alveg frá því að vera
hrottaleg tónlist til hrottalegrar
stuðtónlistar. Við sáum fyrir okk-
ur að skæruliðar héðan og þaðan
úr heiminum myndu geta dansað
við hana. Þeir þurfa líka að fá
Bitlaáhrif
Quarashi hefur tekið miklum
breytingum frá því fyrsta plata
sveitarinnar, Quarashi, kom út. í
kjölfarið fylgdu Xeneizes og Jinx
og nú skæruliðadiskóið.
„Þetta er ný tónlist fyrir
Quarashi og hún er að vissu leyti
undir seventies-áhrifum; frá
Bítlunum og Boston en samt með
Quarashi-kraftinum. Það eru
margir stflar á plötunni en hún er
samt heilsteyptari en fyrri plöt-
ur,“ segir Sölvi. „Ég, Ómar og
Egill unnum þessa plötu mjög
náið, bæði hvað varðar texta og
tónlist. Það sést kannski best á
lögunum tveimur sem eru komin í
spilun hvað platan er fjölbreytt,"
segir Sölvi og á þá við hið harða
rokklag Payback og lagið Stars
sem jaðrar við að vera ballaða.
„Það sem hefur kannski helst
breyst hjá okkur eru lagasmíð-
arnar. Þegar Quarashi var að
byrja árið 1996 héldum við af stað
án þess að vita hvað við vorum að
fara að gera. Á þessari plötu
leggjum við hins vegar upp með
ákveðna hugmynd fyrir hvert lag,
bæði í texta og tónlist, og viljum
sjá pælinguna verða að veruleika.
Við hentum mörgum lögum sem
pössuðu ekki inn á plötuna. Þetta
var mjög „intense" upptaka og ég
held að það heyrist vel á plötunni
ásamt krafti Quarashi.“
Trommuleikarinn segir að
hann hafi ekki viljað gera fleiri
lög í anda Stick'em up þegar að
gerð Guerilla Disco kom en lagið
hefur verið eitt aðalsmerki sveit-
arinnar. „Flestar hljómsveitir sem
ganga vel eiga ákveðið aðallag.
Forsendan fyrir því að Quarashi
QUARASHI Meðlimir Quarashi eru nú fjórir, þeir Sölvi Blöndal, Egill Ólafur Thorarensen, Ómar örn Hauksson og Steinar Orri Fjeldsted.
Steinar var ekki viðlátinn þegar myndin var tekin.
eigi framhaldslíf er að sveitin
brjótist út úr sínu gamla formi.”
Breytt Quarashi
Höskuldur Ólafsson, oftast kall-
aður Hössi, var frá byrjun aðal-
rappari og söngvari Quarashi.
Hann söng inn á þrjár fyrstu plötur
sveitarinnar en sagði skilið við
hana þegar hann sneri sér að
íslenskunámi við Háskóla íslands.
Sölvi segir það að vissu leyti hafa
verið erfitt að missa Hössa. „Það
hefur alltaf verið vilji allra í sveit-
inni að menn geri það sem gerir þá
glaða. Við höfum alltaf haft það
Ómar Swarez
Ómar Örn Hauksson gekk til
liðs við Quarashi árið 2000 og
á stóran þátt í nýju plötunni.
milljóna landi svo ég gæti farið að
líta á þetta sem hverja aðra
vinnu,“ segir Sölvi, sem hefur þó
náð að lifa ágætlega af tónlistinni.
„Ég held í raun að í íslenskri list
verði fólk að hafa hugsjónina að
vopni. Annað er ekki hægt og að
lokum verður það styrkur manns,
hvort sem maður fer síðan út eða
ekki.”
Plötusamningur í Japan
Platan Guerilla Disco kemur út
sem áður segir á fimmtudaginn.
Daginn eftir hitar Quarashi upp
fyrir Prodigy og svo tekur
Icelandic Airwaves við. Eftir ára-
mót er þó líklegt að sveitin fari út
fyrir landsteinana í tónleikaferða-
lag. „Ég veit ekki alveg hvert við
förum en það kemur bara í ljós.
Við erum búnir með plötuna og nú
verðum við að hvfla hugann og
kynna hana. Ég ætla að segja sem
minnst en ef eitthvað gerist þá 1
átum við það gerast. Það eru bara
vanvitar sem eru með yfirlýsing-
ar við blaðamenn þegar ekkert er
komið í kassann. Svoleiðis fólk
kemur og fer á fimm sekúndum,"
segir Sölvi hlæjandi en er þó fús
til að lýsa verðandi samningi við
Sony-útgáfufyrirtækið í Japan.
„Við erum að leggja lokahönd á
samning við Sony fyrir Guerilla
Disco og það þyrfti loftsteinn að
sökkva Japan ef af honum ætti
ekki að verða. En maður veit samt
aldrei."
Sölvi Blöndal
Hann segir sveitina hafa tekið
miklum breytingum frá þvl
fyrsta platan kom út.
í LEIT AÐ ÞJOÐ
RÁÐUMST Á GARÐ
HANN ER LÆGS
Nýjar áttir
í stað Hössa kom Egill Ólafur
Thorarensen, oftast nefndur Tiny.
Sölvi er afar ánægður með komu
Að sögn Sölva hefur Tiny
karakter til að þróa sveitina I
nýjar og óvæntar áttir.
þema í Quarashi að við erum ekki
að þessu út af peningum eða öðrum
bransa. Höskuldur vildi halda á ný
mið og mennta sig. Það var gert í
fullkominni sátt milli allra og allir
sáttir," segir Sölvi. „Ég og Hössi
sömdum mörg lög saman, sérstak-
lega á Jinx. En svona er gangur
lífsins. Fólk vinnur saman og síðan
fer það í skóla eða að gera eitthvað
annað. Það er samt allt í góðu með
það. Quarashi er sjálfstæð eining
sem hefur eigið líf.“
Spurður hvort Höskuldur snúi
aftur i sveitina sagði Sölvi: „Það
var mjög gaman að vinna með
Hössa en sá tími er liðinn. Quaras-
hi er farin í aðra átt.“
kristjan@frettabladid.is
Tiny
, HVAR ERU ÞEIR NÚ?
M3UKIMAÐURINN
bka>
-Helgl er kominn
með pfu ó rúntlnn!