Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.12.1942, Síða 22

Sveitarstjórnarmál - 01.12.1942, Síða 22
41 SVEITARSTJÓRNARMÁL land allt, og héldi hún fundi sainkvæmt nánari ákvörðunum. Sambandið kæmi I'ram sem málsvari sveitarfélaganna gagn- vart Alþingi og fleiri aðiliun. Þingið ræddi og semdi frumvörp um sín mál- efni. Einnig yrði reynt að leysa hin mörgu vandamál, sem snerta fræðslu, framfærslu, atvinnulíf, fjárhag, ræktun, raforku o. m. fl. Sambandið ynni að auknu samstarfi um innheimtur og útsvarsálagningu, það sa.mræmdi fundarsköp og nefndarskip- anir sveitarstjórna og hinar ýmsu reglu- gerðir fyrirtækja þeirra. Sambandið gæfi lit málgagn til fróð- leiks og skemmtunar, og eru „Sveitar- stjórnarmál“ vísirinn að því. Árlega yrði gefin út handbók fyrir oddvita og bæjar- stjóra. Sambandið gæti haldið námskeið, jafnvel sett á stofn skóla, þar sem kennt yrði: mælskulist, fundarstjórn og með- ferð sveitarstjórnarmála. Unnið yrði að þvi, að núverandi „góðæri“ kæmi ölluin svéitarfélögum á réttan kjöl fjárhagslega, gerði þau með öllu skuldlaus og vel stæð. Verkefni Samhandsins eru ótæmandi, og hirði ég ekki að ræða fleiri hér. Virðist mér Samband sveitarfélaganna, með full- trúaþingi, ætti að geta orðið sterkara til að gæta hagsnnma sveitarfélaganna en l'rjáls samtök sveitarstjórnarmanna, er gjarnan mætti stofna líka. Kostnað allan hæru sveitarfélögin sameiginlega, og ættu fjárhagsvandræði ekki að standa því lyrir þrifum. Stofnþing ætti að kalla saman þegar á þessu sumri, því full þörf er að hefjast lianda hið fyrsta í þessum mikilsverðu en oft vanræktu málum. Ættu hæjarstjor- arnir í kaupstöðum landsins, ásamt eftir- litsmanni sveitarstjórnarmálefna, að ann- ast um undirbúning allan og samanköllun stofnþingsins. Aths. — Höfundur greinar þessarar er bæjar- fulltrúi í Neskaupstað, og þótt smávcgis óná- kvæmni gæti í einstökum atriðum, sem öll skipta iitlu máli, taldi ritstjóri „Sveitarstjórnannála" ekki rétt að synja greininni um rúm, þar sem hún er þörf hugvekja, sem viða kemur við, og hcr vott um glöggan skilning þessa unga bæjar- fulltrúa á gildi svcitarmálefna og þýðingu þeirra fyrir einstaklingana og þjóðfélagið, og auk þess er bcnt hér á þá lcið, sem viða hefur verið farin annars staðar, að svcitarfélögin hefðu með sér samband til þess að efla hagsmuna- og menn- ingarmál sín. Ritstj. Sogsvirkjunin er ekki útsvarsskyld. Hinn 19. október s. 1. var kveðinn upp dómur i hæstarétti í niáli, sem Grímsnes- hreppur höfðaði gegn Reykjavíkurbæ út af útsvari, sem 1941 var lagt á rafstöð Reykjavíkurbæjar við Sogsfossana. Út- svarið var að upphæð 2 000 krónur, og taldi Reykjavík sér ekki skvlt að greiða það, og Iögtaks þá krafizt. Grímsnes- hreppur hyggði útsvarsálagninguna á því, að Reykjavík ætti verðmiklar eignir i hreppnum, auk sjálfrar stöðvarinnar og vatnsréttindanna i Soginu, og að Reykja- vík reki í hreppnum stórt atvinnufyrir- tæki, er skili miklum arði fram yfir rekstrarútgjöld. Enn fremur að Gríms- neshreppur verði, vegna eigna Reykja- víkur í hreppnum, að greiða allháa upp- hæð árlega í sýslusjóð Árnessýslu. Taldi Grímsneshreppui' það því beint fjárhags- legt tjón fyrir sig, að þetta mannvirki væri reist þar og starfrækt, ef það skyldi verða undanþegið hæfilegu útsvari í sveitarsjóð. Uin málið gekk úrskurður i héraði i júnímánuði s. 1., og var hann á þá leið, að lögtakið skyldi ekki fara fram. Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóm- arans. Segir svo í niðurstöðum hæsta- réttar: „Þar sem fallast má á það með hér- aðsdómaranum, að rafmagnsstöð sú, cr í máli þessu greinir, sé reist og rekin til þess að fullnægja ahnenningsþörf á raf- magni, en ekki í atvinnuskyni, þá þykir mega staðfesta hinn áfrýjaða úrskurð.“

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.