Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.07.1947, Blaðsíða 15

Sveitarstjórnarmál - 01.07.1947, Blaðsíða 15
SVEITARSTJÓRXARMÁL 11 jónsson, Akureyri. Gerði hnnn grein fyr- ir tillögum fulltrúaráðs uin þau mál, en þær voru þessar: Tillögur um breytingar á sveitarstjórnar- löggjöfinni. Landsþing Sambands íslenzkra sveitar- félaga samþykkir að beina þeirri áskorun til Alþingis og ríkisstjórnar, að endur- skoðun sveitarstjórnarlaganna verði hraðað svo, að ný löggjöf um þau mái gæti komið til framkvæmda í ársbyrjun 1949. Landsþingið telur, að löggjöf sú, sem er í gildi mn stjórn sveitarfélaga, sé i mörguin greinum orðin úrelt og samsvari ekki lengur þeim kröfum, sem gerðar eru til sveitarfélaganna nú á timum, enda má svo segja, að engin veruleg breyting hafi orðið á þessari löggjöf um áratugi. Landsþingið vill benda á eftirfarandi alriði, sem það telur miklu máli skipta við væntanlega endurskoðun: 1. Sett verði heildarlöggjöf um stjórn allra sveitarfélaga, þannig að löggjöf kaupstaða alira sé í einum bálki og hreppsfélaga i öðrum. 2. Hreppsfélögum, sem fjölmenn eru, verði veitt heimild til þess að ráða sér framkvæmdastjóra, er taki við störf- um oddvita að meslu leyti, og verði starfssvið slíks manns í stærri kaup- túnum svipað starfssviði bæjarstjóra í kaupstöðum. ö. Borgarstjórar, bæjarstjórar og fram- kvæmdastjórar hreppsfélaga séu ráðn- ir fastri ráðningu á svipaðan liátt og embættismenn og starfsmenn ríkisins, en ráðning þeirra ekki bundin við kjörtimabil sveitarstjórnar, eins og nú er. 4. Sýslunefndir verði lagðar niður sem liður í sveitarstjórnarkerfinu, þar sem þær eru nú þegar orðnar þýðing- arlitlar í þeim efnum og samband þeirra við sveitarfélögin næsta laus- Iegt. í þess stað verði landinu utan höfuðstaðarins skipt i fjórðunga, og komi í hverjum fjórðungi fjórð- ungsþing, sem kosið sé til af öllum sveitarfélögum í fjórðungnum, og sé aðalreglan, að einn fulltrúi komi frá hverju sveitarfélagi til sliks þings, en þó kjósi fjölmennir kaupstaðir og kauptún fleiri fulltrúa eftir nánari reglum þar um í lögum. Fjórðungs- þing kjósi fjórðungsstjórn, en rikis- stjórn skipi sérstakan embættismann fjórðungsstjóra — sem er yfir- maður þessara mála i hyerjum fjórð- ungi og fulltrúi ríkisins i fjórðungs- stjórn. Verkefni fjórðungsstjórnar og fjórðungsþings verði einkum: a. Þau málefni, sem nú eru hjá sýslu- nefndum og ]>ykir ekki henta að fela sveitarstjórnunum, svo sem setning ýmissa reglugerða, fjall- skil, markaskrár o. s. frv. 1). Vfirstjórn framfærslumála í fjórð- ungnum, þ. á m. rekstur elliheim- ila, fávitaheimila og hæla fvrir vandræðafólk, í samráði við Trygg- ingastofnun rikisins. c. Samgöngumál öll innan fjórðungs- ins, og skipti fjórðungsþing öllum fjárframlögum, er Alþingi ákveður til þeirra mála i fjórðungnum. d. Heilbrigðismál. Skipting i læknis- béruð innan fjórðungsins, rekstur fjórðungssjúkrahúss og hvar lvfja- búðir og læknisbústaðir skuli vera o. s. frv., allt i samráði við vfir- stjórn heilbrigðismálanna. e. Hafnarmálefni i fjórðungnum i samráði við yfirstjórn þeirra mála, ]). á m. bygging og skipulag nýrra hafna, vita og annarra mannvirkja vegna samgangna á sjó. f. Skólamál önnur en barnafræðslan, þ. á m. héraðsskólar, gagnfræða- skólar, sérskólar ög námskeið i ýmsum greinum, sem ekki er beinlinis rekið af ríkinu. g. Yfirstjórn fjárhagsmála sveitar- félaganna i fjórðungnum og eftirlit

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.