Sveitarstjórnarmál - 01.07.1947, Page 16
12
SVEITARSTJÓRNARMÁL
með þeim, sem nú er falið eftirlits-
manni sveitarstjórnarmálefna.
h. Skipulag raforkustöðva í fjórð-
ungnum og sambandið milli þeirra,
]>. á m. skipting fjórðungsins i raf-
orkusvæði i samráði við Raf-
magnseftirlit ríkisins.
Hér liafa verið taldir nokkrir hinna
helztu málafloiíka, en miklu yrðu þeir
fleiri í framkvæmd.
• 'I'il þess að standa straum af útgjölduin
sínum þvrftu fjórðungssjóðirnir allmikl-
ar tekjur, og vrði að ákveða þær í lögum
um tekjur sveitarfélaga eða sveitar-
stjórnarlögunmn. Yrði þar að sjálfsögðu
álöguréttur á sveitarfélag svipað því, sem
sýslusjóðir hafa nú, en auk þess aðrar
tekjur, sem með lögum vrðu til þeirra
lagðar.
Að lokinni framsögu var tillögunum
visað til sveitarstjórnarlaganefndar, og
verður þeirra getið siðar.
I). Skipan löggæzlumála. Framsögu-
inaður Þorleifur Jónsson, Hafnarfirði.
Lagði hann eindregið til, að nokkur
hreyting vrði á gerð um skipan þá, sem
nú er á löggæzlumálunum. Einkum taldi
hann rétt, að sá, sem fyrirskipunarrétt-
inn hefði, greiddi einnig laun löggæzlu-
mannanna. Svo hljóðandi tillögu fulltrúa-
ráðs um skipun milliþinganefndar í
þessu máli var visað til löggæzlumála-
nefndar:
Tillaga stjórnar og fulltrúaráðs um
löggæzlumál.
Landsþingið samþykkir, að kosin verði
nú á þinginu þriggja manna riefnd, er
taki til rækilegrar athugunar alla skipun
löggæzlu i landinu, og skili hún áliti sinu
i frumvarpsformi til stjórnar samhands-
ins fyrir septemherlok 1947.
E. Vandræðamannahæli. Framsögu-
niaður var Ólafur B. Björnsson, Akra-
nesi. Gerði hann glögga grein fyrir þörf-
inni á því, að sliku hæli yrði komið upp.
Tillögu fulltrúaráðs, er hér fer á eftir,
um skipun milliþinganefndar í máli
þessu var vísað tii allsherjarnefndar:
Tillaga til fulltrúaráðs um undirbúning
að stofnun hælis fyrir „vandræðafólk“.
Landsþingið ályktar að kjósa þriggja
manna milliþinganefnd til þess að athuga
og gera tillögur um eftirfarandi vanda-
mál:
1. Safna skýrslum hvaðanæva af landinu
uin það fólk, sem einu nafni er nefnt
„vandræðafólk".
2. Að koma fram með rökstutt álit og
tillögur um, á hvern hátt, livar og
hvernig verði komið upp góðum
heimilum fyrir þá aumingja, sem hér
koma lil greina.
Aliti sinu og tillögum skili nefndin til
stjórnar sambandsins og fulltrúaráðs svo
fljótl sem unnl er.
F. Ýmsar tillögur frá stjórn og full-
trúaráði.
a. Erindrekstur og útbreiðsla. Fram-
sögumaður var Karl Kristjánsson, Húsa-
vik. Taldi hann nauðsyn til hera, að öll
sveitarfélög landsins yrðu innan sam-
bandsins, og mundi erindreki á vegum
]iess stuðla að því, að árangur næðist
fyrr en ella.
h. Samkomutími þings og fulltrúaráðs.
Framsögumaður var Karl Kristjánsson,
Húsavík. Gerði hann grein fvrir þörfinni
á þeim hreytingum, sem fulltrúaráð Iegg-
ur til, að gerðar verði í þeim hlutum.
c. Samstarf sveitarfélaga í menningar-
málum. Framsögumaður var Ólafur B.
Björnsson, Akranesi, er gerði ýtarlega
grein fvrir þörlinni á slíku samslarfi.
d. Skemmtanaskattur. Framsögumaður
Ólafur B. Björnsson, Akranesi. Mælti
hann eindregið með þvi, að sveilarfélög-
in fái i sinn hlut nokkuð af skemmtana-
skattinum, þau sem liafa fleiri ibúa en 15
hundruð.
Þeim fjórum tillögum, sem nú liafa
verið taldar, var ölluni vísað til alls-
herjarnefndar, og verður þeirra allra get-
ið síðar.