Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.07.1947, Blaðsíða 21

Sveitarstjórnarmál - 01.07.1947, Blaðsíða 21
SVEITARSTJ ÓRNARMAL 17 Hanriesson, ísafirði. Um tillögurnar urðu allmiklar umræður, og komu fram all- margar breytingartillögur. Að lokum var samþykkt svo hljóðandi lillaga með 15 atkv. gegn 14: „Landsþingið felur stjórninni að at- huga rækilega málið um tekjuöflun sveit- arfélaganna og endurskoðun útsvarslag- anna í ljósi þeirra tillagna, breytingartil- lagna og umræðna, sem fram fóru uin þetta mál á þinginu. Að þeirri rækilegu athugun lokinni verði málið lagt fyrir fulltrúaráð, sem taki uin það frekari á- kvarðanir.“ Tillögumaður var Ólafur B. Björnsson, Akranesi. 19. Allsherjarnefnd skilaði áliti um til- lögu varðandi innheimtu opinberra gjalda. Tillagan var samþykkt, og var hún þannig: „Landsþingið felur stjórn sinni að vinna að því nú þegar við ríkisstjórn og Alþingi, að setl verði sérstök lög mn sam- eiginlega innheimtu opinberra gjalda, er dragi úr þeirri margskiplingu, sem nú er á þeirri innheimtu.“ 20. Sama nefnd skilaði álili um til- lögu varðandi meðlagsgreiðslur vegna setuliðsbarna. Samþykkt var svo bljóð- andi tillaga: „Nú eru mikil brögð að því, að ekki séu greidd barnsmeðlög vegna erlendra selu- liðsmanna. Skorar landsþingið því á ríkisstjórn og Alþingi að vaka vel yfir hagsmunum ríkisins og sveitarfélaganna i þessu cfni, með þvi að fullsemja um þessi mál við viðkomandi riki.“ 21. Sama nefnd skilaði áliti um tillögu varðandi samræmingu á launakjörum fastra starfsmanna sveitarfélaganna. Samþykkt var svo hljóðandi lillaga: „Landsþingið samþykkir að fela sam- bandsstjórn og fulltrúaráði að hlutast til um það við þær bæjar- og sveitarstjórnir innan sambandsins, sem fast starfsfólk liafa í þjónustu sinni, að þær hefji sin á milli samvinnu um samræmingu á launa- kjörum, hlunnindum og öllum aðbúnaði þessa fólks.“ 22. Enn skilaði sama nefnd áliti um lil- lögu varðandi lán til skólabvgginga. Sam- þykkt var svo hljóðandi tillaga: „Með hinni nýju fræðslulöggjöf eru sveitarfélögunum lagðar miklar fjár- hagsbyrðar á herðar, með byggingu og búnaði hinna ýmsu skóla, t. d. gagnfræða- skóla. Telur landsþingið óhugsandi, að sveit- arfélögin fái komið þessu i framkvæmd svo sem þörf krefur og lögin gera ráð lyrir, og skorar á stjórn sambandsins að undirbúa tillögu um fyrirgreiðslu ríkis- ins um fjáröflun sveitarfélaganna í þessu skyni.“ 23. Þá skilaði og sama nefnd áliti um tillögur varðandi gjaldeyris- og innfhun- ingsleyfi fyrir rafmagnstæki. Svo bljóð- andi tillaga A’ar samþykkt: „Á síðustu árum hafa rafveitukerfi landsins þanizt út og það vakið miklar vonir manna á mörgum sviðum. Upp á síðkastið varpar það miklum skugga á þessar vonir, hve gjaldeyrir er numinn við nögl til kaupa á nauðsynlegum tælcj- um. Skorar landsþingið því á gjaldeyris- yfirvöidin að bæta hér úr bráðri nauð- syn og veita þeim liæjar- og sveitarfélög- um, sem til þess hafa ríka þörf, nægjan- legan gjaldeyri fyrir nauðsynleguslu tækjum lil almennra heimilisnota." 24. Enn skilaði allsherjarnefnd áliti uin tillögu varðandi einkarétt hafnarsjóða á skipaafgreiðslu. í því máli bar nefndin fram svo lrijóðandi tillögu, sem var sam- þykkt: „Tveir fulltrúar úr Vestmannaeyjum óska þess, að sambandið beiti sér fyrir lagasetningu um einkarétt einstakra hafnasjóða til að annast skipaafgreiðslu. Þar sem hér er um að ræða algert ný- mæli í lagasetningu, og tillagan, sem að- eins er tvær linur, segir ekkert um nauð- syn viðkomandi né viðhorf eða rökstuðn- ing fyrir slíku nýmæli, telur landsþingið ekki hægt að sinna jiessu máli án frek-

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.