Sveitarstjórnarmál - 01.07.1947, Síða 29
SVEITARSTJÓRNARMÁL
25
1945 til júlí 194(). Verðlagsuppbótin greið-
ist mánaðarlega eftir á.
Hinn 1. jan. 1947 breytist þetta enn
þannig, að barnalífeyrir, ákveðinn í lög-
um um alþýðutryggingar, kemui' í stað-
inn fvrir meðalmeðlögin. Er þetta mikla
deilmnál j)á loks að likindum komið í
höfn.
Störf fulltrúaráðs.
Samkvæmt lögum sambandsins l)er að
halda fulltrúaráðsfund einu sinni á ári
hið minnsta.
Stjórnin ræddi um það s.l. haust að
kveðja saman fulltrúaráðsfund þá, en
það kom hrátt í ljós, að fulltrúarnir vel
flestir, sem við var rætt, töldu rétt að
fresta fulltrúaráðsfundi fram vfir kosn-
ingar í janúar, því að menn yrðu bundnir
við undirbúning þeirra. Stjórnin afréð
því að fresta fundinum, þar til allar sveit-
arstjórnarkosningar væru um garð gengn-
ar, og kalla fulllriiaráðið ekki saman fyrr
en fáuin dögum fvrir þingið, svo að full-
trúarnir gælu gert eina ferðina.
Kom þá fulltrúaráðið sainan 9. okl. og
átli starf saman lil 12. þ. m. Á bls. 14 í
Stofnþingstíðindunum má sjá, hverjir
þar eiga sæti sem aðalmenn og varamenn.
Af þeim mættu þessir:
Jón Axel Pétursson,
Ólafur B. Björnsson,
Björn Birnir,
Magnús Þ. Öfjörð,
Gisli Jónsson,
Þorleifur Jónsson,
Helgi Hannesson,
Kristján Bjartmars,
Björn Guðmundsson,
Erlingur Friðjónsson,
Karl Kristjánsson,
Halldór Guðlaugsson.
Úr Auslfirðingafjórðungi mætti eng-
inn.
Auk þess mættu allir stjórnarmeðlimir,
nema Helgi Hermann Eiríksson, sein er
i sjúkraluisi. Flestir þeirra, sem ekki
mættu, tilkynntu forföll.
Um starf fulltrúaráðsins að þessu sinni
þarf ekki að fjölyrða. Það fjallaði um
þau mál, sem stjórnin lagði fyrir það, og
ræddi ýmis önnur, sem öll koma nú fyrir
þetta þing. Stjórnin og fulltrúaráðið
munu vera á einu máli um það, að
heppilegasta fyrirkomulagið á fundum
fulltrúaráðsins sé að halda fundinn i
oletóbermánuði það árið, sem þing er ekki
haldið, en næstu dagana fvrir ])ingið það
ár, sem þing er háð. Samkomutíma þings-
ins telui' fulltrúaráðið og stjórnin h'eppi-
legastan á tímabilinu frá miðjum júní
til miðs júlímánaðar.
Að lokum vil ég svo segja þetta:
Stjörnin hefur lilið á sig sem eins kon-
ar bráðabirgðastjórn. Hún var aðeins
kjörin til eins árs og vissi, að ýmsar brevt-
ingar mundu verða bæði á skipun hrepps-
nefnda og bæjarstjórna á árinu, sem hún
átti að fara með stjórnina. Hún taldi því
ekki rétt að leggja út í nein stórræði né
láta vfirleitt mikið til sín taka' þetta eina
ár, sein hún átli með völdin að fara.
Nú er hennar starfi lokið, og vil ég
hér með færa samstarfsmönnum mínum
í stjórninni þella fyrsta ár sambandsins
þakkir fyrir samstarfið. sem mér hefur
þött liið ánægjulegasta.
Kaupendur
Sveitarstjórnarmála eru beðnir afsök-
unar á þeim mikla drætti, sem orðið hefur
á útkomu þessa heftis, sem nú kemur um
]>að bil ári síðar en ætlað var. Höfuð-
ástæðan er sú, að Ríkisprentsmiðjan Gul-
enberg, sem alla líð hefur prenlað ritið,
liefur allan þennan tíma verið svo önnum
hlaðin, að hún hefur orðið að láta Jiau
verk, er við komu Alþingi og ríkisstjórn,
ganga fyrir ölluin öðrum. Hins vegar
hefur ekki tekizt að fá rilið prentað ann-
ars staðar ]>ar lil nú, að prentsiniðja Ólafs
B. Björnssonar á Akranesi hefur lofað að
taka það að sér, og mun hún eftirleiðis
prenta ritið. Næsta hefti ætli að geta
koinið út í bklóbermánuði n. k., og úr því
á að mega búast við reglulegri útkomu
þess.