Sveitarstjórnarmál - 01.07.1947, Blaðsíða 40
36
SVEITARSTJÓRNARMÁL
starfsemi. Var ætlunin, að 3—4 húsa-
meistarar eða byggingarfróðir menn væru
þar starfandi. Ynnu á teiknistofu skipu-
lagsins að vetrinum að uppdráttagerð
húsa og endurskoðun skipulagsins, en
væru allt sumarið á ferðalagi milli hinna
skipulagsskyldu staða og þar um kyrrt
nægilegan tíma, sem mest væri fvrir þá
þörl'. Verkefni þeirra væri einkum það
að aðstoða hyggingarnefndir við að mæla
fyrir húsalóðum, þar sem byggja skyldi
þann og þann limann, ákveða húsalínur,
lagfæra á uppdrætti það, sem lagfæringa
virtist þörf. því að stundum getur komið
fyrir, að of bókstafleg framkvæmd
skipulagsuppdrátta getur haft óheppileg-
ar afleiðingar i för með sér, sem mætti
þó breyta með hægu móti, ef i tíma er
tekið. /-
Leiðbeiningin væri einnig í því fólgin
að athuga byggingarumsóknir með bygg-
ingarnefndum, og jafnvel leiðbeina um
húsagerðina sjálfa, teikna hús fyrir ein-
staklinga, þar sem því væri við komið, og
viða er vissulega þörf í ríkum mæli, þar
sem alls ekki næst lil kunnáttumanna.
Ætlun mín var sú, að hinir 50—60
skipulagsskyldu staðir stæðu sjálfir að
verulegu leyti undir kostnaði, sem þessu
yrði samfara, en það vrði aldrei mikill
haggi á hvern einstakan gjaldanda, og
gæli að sjálfsögðu verið greitt með bygg-
ingarleyfisgjöldum eitthvað hækkuðum,
þannig að hvggjendur sjálfir stæðu
strauni af þessum kostnaði, a. m. k. að
einhverju leyti, sem sanngjarnt mætti
teljast.
líg tel hér um að ræða svo mikið og
nauðsynlegt mál fvrir vel flesta skipu-
lagsskylda staði, að ég leita fulltingis
yðar á þessum vettvangi til þess að styðja
málið, svo sem talið væri heppilegast af
fundinum, enda þótt mér sé ljóst, að fé-
lagsmálaráðhérrann sé málinu hlynntur
og hafi lofað því sínum stuðningi, svo
sem frekast væri unnt. Enn er þó heðið
álits skipulagsnefndar, sem væntanlega
ætti að geta komið áður en varir.
Annað mál, sem ég hef á döfinni og
mun næstu daga senda ráðuneytinu sem
tillögur, varðar byggingarfulltrúastörl'in
úti um land og undirbúningsmenntun til
þeirra starfa. — í stultu máli eru tillögur
mínar þessar:
A hverjum einum skipulagsskyldum
stað sé starfandi hyggingarfulltrúi sam-
kvæmt hyggingarsamþvkkt, er sé fram-
kvæmdastjóri byggingarnefndar og sjái
um, að ákvæðum saiiiþykktarinnar sé
fylgl og hyggt sé eftir lögfestu skipu-
lagi.
Fyrir alla hvggingarfulltrúa sé komið
upp námskeiði í Reykjavík, er teiknistofa
skipulagsins gangist fyrir í samráði við
sveitarstjórnir.
A námskeiðinu séu kennd undirstöðu-
atriði þeirra helztu starfa, er byggingar-
fulltrúana varða í framkvæmd bygging-
armálanna, en helztu atriðin þessi:
1. Kennsla í einfaldri flatarmælingu,
svo sem að mæla fvrir götum, húsum og
lóðum.
2. Að ganga frá lóðarsamningum.
3. Eftirlit með frágangi járnbentrar
steinsteypu og slyrkleikakröfum í sam-
handi við venjulegar byggingarfram-
kvæmdir.
Námskeið þetta þyrfti ekki að taka
langan thna, og boðað með þeim fyrir-
vara, að allir skipulagsskyldir staðir gælu
og yrðu raunar að senda þangað fulltrúa
sína.
Hef ég þegar fengið vilvrði góðra kunn-
áttumanna um að taka að sér kennsl-
una, þar á meðal byggingarfulltrúann i
Reykjavík, sem er manna kunnugastur
allri afgreiðslu byggingarmála í sambandi
við hvggingarnefndir, enda haft á hendi
umfangsmesta starfið i þeim máluin hér
á landi.
Eg vænti þess fastlega, að þessi ný-
breytni megi verða til verulegs gagns víð-
asl um landið og þáttur i þvi að samræma
og samstilla byggingarmálin á hinum
ýmsu stöðum.
Þriðja og siðasta aðalmálið, sem teilcni-
stofa skipulagsins hefur haft á prjónun-
mn undanfarin ár í sambandi við fram-