Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Side 14
10
SVEITARSTJÓRNARMÁL
sem til var ætlazt, að rnestu á skrifstofu sam-
bandsins, og hafa þau aukizt verulega síðan
sambandsfélögin fóru að gera sér grein fvrir
því hagræði, er því fylgir, að hafa sérstaka
skrifstofu í Reykjavík, sem þau geta snúið
sér til um margs konar fyrirgreiðslu.
Skrifstofan er opin ákveðinn tíma á dag.
Hún hefur með höndum öll bréfaviðskipti
sambandsins, sér um fjármál þess þ. á. m.
innheimtu árgjalda frá sveitarfélögunum,
annast útgáfu tímaritsins Sveitarstjórnarmál
að öllu, prentun, prófarkalestur, dreifingu,
innheimtu áskriftargjalda og útbreiðslu þess,
og er það tafsamara verk en fljótt á litið kann
að virðast.
Þá hefur og skrifstofan unnið að því, að
fá þau sveitarfélög, sem utan við sambandið
eru, til að gerast meðlimir. Hafa í því skyni
nokkrum sinnum verið send bréf til allra
þeirra sveitarfélaga sem enn hafa ekki gerzt
meðlimir og þau hvött til þátttöku.
Framkvæmdarstjórinn fór í þessu sam-
bandi í ferðalag sumarið 1949 og heimsótti
hreppana í Gullbringusýslu- og Ámessýslu.
Átti hann tal við velflesta oddvita á þessum
stöðum, hvort sem þeir voru í sambandinu
eða utan þess. Af fjárhagsástæðum hefur
ekki verið unnt að heimsækja fleiri sýslur en
fyllsta ástæða er til að ætla, að slík ferðalög
gætu verið hin þýðingarmestu.
Á skrifstofuna koma og sveitarstjórnar-
menn, einkum oddvitar, til umræðu um
ýmis þau mál, er þeir óska umsagnar eða
upplýsinga um eða fyrirgreiðslu á. Skrifstof-
an leitast við að koma málum þeirra á fram-
framfæri eftir því, sem ástæður eru tril. Látin
hafa verið í té munnleg álit og leiðbeiningar
um mörg þau viðfangsefni, er sveitarstjómar-
rnenn eiga við að glíma í starfi sínu. Eins
og vænta má eru það fyrst og fremst aðstoð
við útvegun lána og lántökur, útsvars- og
framfærslumál allskonar og fjárhagsmál sem
hjálpa þarf til að greiða frarn úr.
Fyrirspumir um sveitarstjórnarmálefni
hafa margar borizt skriflega og þeim verið
svarað eftir beztu getu. Ef tími hefur verið
naumur, hefur verið spurt símleiðis og því
svarað þegar í stað, eða í símtali síðar eða
með bréfi að nánar athuguðu rnáli.
Skrifstofan hefur og haft með höndum
viðtöl og viðskipti við ýmsar stofnanir í
Reykjavík fyrir oddvita utan af landi. Hún
hefur samið við Reykjavíkurbæ um útsvör,
innt af höndum greiðslur til hans eða krafið
hann um slíkt vegna útsvarsskipta og fram-
færslumála. Séð hefur verið um áfrýjun á
allmörgum úrskurðum til ríkisskattanefndar
og reynt að fylgjast með málum sveitarfélaga
þar.
Við sveitarstjómarkosningarnar í janúar
og nú í júní annaðist skrifstofan prentun og
sendingu kjörgagna fyrir rnjög rnörg sveitar-
félög. Var það tímafrekt og stundum erfitt
að fá prentun, þar sem oft var naumur tími
vegna óhagstæðra póstsamgangna.
í sambandi við kosningar þessar, sendi
skrifstofan út eyðublöð til útfvllingar varð-
andi úrslit kosninganna og fleira, er máli
þótti skipta. Svör bárust greiðlega. Með
þessu móti verður í vörzlu sambandsins
glöggt yfiriit um kosningamar og er í ráði að
sérstök kosningahandbók áþekk þeirri, er fé-
lagsmálaráðun. gaf út 1946, komi út á vegum
sambandsins eða ráðuneytisins nú á næstunni.
Ýmsir oddvitar hafa fengið aðstoð skrif-
stofunnar um innheimtu útsvara og hefur
verið reynt að verða við því svo sem tiltæki-
legt þótti. Á það má þó benda, að slík inn-
heimta er miklum erfiðleikum háð, þar sem
oftast er um litlar upphæðir að ræða, en í
hlut eiga iðulega lítt fúsir greiðendur og
erfitt um að finna heimili þeirra eða vita
um atvinnurekanda, ef hann er þá nokkur,
og iðulega er um deilukröfur að ræða.
Skrifstofan hefur ásamt formanni og stjórn
unnið að framkvæmd þeirra mála, sem lands-