Sveitarstjórnarmál - 01.04.1951, Qupperneq 28
24
SVEITARST J ÓRNARMÁL
sambandsins að beita sér fyrir því, að á
næsta Alþingi verði gerð sú breyting á
lögum nr. 50 frá 1946 um almannatrygg-
ingar, að úr lögunum verði felld þau
ákvæði 109. gr. er mæla fyrir um gjald-
skyldu sveitarsjóða um greiðslu iðgjalda
þeirra einstaklinga, sem hafa svo rýrar
tekjur og eignir að þeirn verði talið fjár-
hagslega um megn að greiða sjálfir ið-
gjöld sín, ef þeir eru ekki á sveitarfram-
færi.“
Samþykkt að vísa tillögunum til alls-
herjarnefndar.
15. Útsvarsmál:
Sigurgrímur Jónsson, oddviti Stokkseyr-
arhrepps flutti fyrir hönd fulltrúaráðs
sambandsins eftirfarandi tillögu og gerði
grein fyrir henni:
„Landsþing Sambands ísl. sveitarfé-
laga skorar á Alþingi að setja ákvæði í
útsvarslögin, er veiti skýlausa heimild
fvrir sveitarfélögin til álagningar útsvars
á fasteignir í eigu aðila búsettra utan
sveitarfélaganna, til að standast a. m. k.
þau útgjöld, sem sveitarfélögin verða að
greiða vegna þeirra í tryggingarsjóð og
til sýsluvegasjóðs, eða af öðmm ástæð-
um.“
Eftir nokkrar umræður var tillögunni
vísað til allsherjarnefndar.
16. Fræðslumál:
Ásmundur B. Olsen, oddviti Patreks-
firði, bar frarn og skýrði svohljóðandi til-
lögu f. h. fulltrúaráðs sambandsins:
„Landsþing Sambands íslenzkra sveit-
arfélaga ályktar að beina þeim tilmælum
til stjómar sambandsins, að hún stuðli
að því að aukin verði fræðsla varðandi
sveitarstjórnamrál almennt, til dæmis
með útvarpserindum um þessi mál.
Ennfremur heimilar þingið stjóminni,
ef fært þykir kostnaðar vegna, að efna
til námskeiða um þessi efni á vegum
sambandsins eða í samstarfi við aðra að-
ila, þar sem áhugamönnum um sveitar-
stjómarmál og starfsmönnum sveitarfé-
laga gefist kostur á að njóta fræðslu um
framkvæmd þessarra mála.
Þá telur þingið heppilegt að sveitar-
stjórnum verði framvegis sendar sér-
prentanir þeirra laga og reglugerða er
sérstaklega snerta hag og rekstur sveitar-
félaga.“
Tillögunni var vísað með samhljóða at-
kvæðum til allsherjamefndar.
17. Samræming fjárhagsáætlana og reikn-
inga sveitarfélaga:
Fomiaður sambandsins, Jónas Guð-
mundsson, lagði fram eftirfarandi til-
lögu, sem \'ar vísað mótatkvæðalaust til
allsherjarnefndar:
„Landsþing Sambands íslenzkra sveit-
arfélaga beinir því til félagsmálaráðu-
neytisins að það stuðli að því, að meira
samræmi verði látið ríkja um form fjár-
hagsáætlana og reikninga sveitarfélag-
anna en nú er, svo að auðveldara sé um
að gera sér grein fyrir efnum og ástæð-
urn viðkomandi sveitarfélaga frá ári til
árs, og til samanburðar við önnur.“
18. Frumvarp til laga um öryrkjahæli að
Arnarholti á Kjalarnesi:
Jónas Guðmundsson, fonn. sambands-
ins, lagði fram frumv. þetta ásamt grein-
argerð. Hafði fn’. og greinargerðin ver-
ið sarnin af stjórn sambandsins og tveim-
ur mönnum, er Reykjavíkurbæ hafði kos-
ið til samstarfs við stjómina um þetta
mál.
Fm. var vísað í einu hljóði til hælis-
nefndar og útbýtt fjölrituðu til þing-
fulltrúa.