Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Side 5
FORUSTUGREIN
Á stjórnarfundi sambandsins, sem haldinn var á
Akranesi 12. júní sl., var sérstaklega fjallað um störf
atvinnumálanefndarinnar og þau áherzluatriði, sem
sveitarfélögin vilja koma á framfæri í störfum
nefndarinnar. Lögð var áherzla á, að þær skyndiað-
gerðir, sem nauðsynlegt væri að grípa til í atvinnu-
leysinu, mótuðust af atvinnustefnu, sem tæki mið af
langtímamarkmiðum. í þessu samhengi er nauðsyn-
legt að fjalla um atvinnustefnu þjóðarinnar í heild
með það að markmiði að draga fram efnahagslega
samkeppnisyfirburði okkar á tilteknum sviðum.
Sú stefnumótun krefst vandaðs undirbúnings og
ákvarðanatöku, er byggir á samstöðu um aðgerðir,
sem eru víðtækari en áður hefir átt sér stað í mótun
og framkvæmd atvinnustefnu hér á landi. Stjóm
sambandsins mun beita sér fyrir frekari skilgreiningu
og þátttöku sveitarfélaganna í því verkefni og er þess
fullviss, að með slíkri stefnumörkun eigi Island mesta
möguleika á að leggja nýjan grunn að öflugri ís-
lenzkri atvinnustefnu og jafnframt stytta sér leið að
betri samkeppnisstöðu í viðskiptasamfélagi þjóð-
anna.
Á þessum tímamótum, þegar erfiðleikar steðja að
í atvinnumálum þjóðarinnar og miklar breytingar
eiga sér stað í alþjóðaviðskiptum, sem geta haft
veruleg áhrif á íslenzkt atvinnulíf, er þörf á nýjum
vinnubrögðum og nýrri hugsun. Islendingar hafa
mörg tækifæri til að byggja upp öflugt atvinnulíf, og
vandamálin, sem við glímum við, eru smámunir einir
miðað við þá erfiðleika, sem flestar þjóðir Evrópu
standa frammi fyrir. Nú er tækifæri til að nýta þá
þekkingu, menntun og hugvit, sem íslenzka þjóðin
býr yfir.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
131