Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Page 15
FRÉTTIR FRÁ SVEITARSTJÓRNUM
að okkur íslendingum takist einhvem tíma að ræða fag-
urfræði og byggingarlist á upplýstan hátt og fordóma-
laust, en ef það er einhver huggun, þá erum við ekki eina
þjóðin, sem á í erfiðleikum á því sviði.
Þessi forleikur var e.t.v. orsök þess, hve þéttur sá
kjami varð, sem að byggingu ráðhússins stóð. Þar var
hver hlekkur jafn mikilvægur. Markús Öm Antonsson
tók við stöðu borgarstjóra af Davíð Oddssyni síðasta
sumar og fékk ráðhúsið í sína umsjá. Hann hefur fylgt
verkinu ötullega eftir á leiðarenda. Verkefnisstjómin
hlaut erfitt hlutskipti. Þar mættust fulltrúar bjartsýni,
varkámi, stjórnkænsku og einstakrar starfsgleði. Þeir
þurftu oft á ofurmannlegu jafnaðargeði að halda til að
mæta því, sem á dundi. Aðalverktaki hússins, Istak hf.,
var e.t.v. stærsta lóðið á þær vogarskálar. Ráðamenn fs-
taks hf. sýndu frá upphafi víðsýni og hæfni í samstarfi
og heyktust ekki á að leysa skrýtnustu viðfangsefni.
Viðkvæðið var yfirleitt „það er allt hægt“. Með Istaki hf.
hefur starfað fjöldi undirverktaka, sumir hverjir sann-
kallaðir listamenn. Fyrir hönd hönnuða, ráðgjafa og eft-
irlits þakka ég þessum mönnum einstakt samstarf. Það
er erfítt að geta
þeirra einstaklinga,
sem mestan veg og
vanda hafa haft af
byggingunni. Ég
treysti því og vona,
að þeir viti það bezt
sjálfir, og ég veit, að
þeir eru ekki þær
manngerðir, sem
kæra sig um lof eða
hól. Við arkitekt-
arnir eigum okkur
uppáhaldsmenn úr
þessum hópi og
verðum ævinlega
þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast
þeim sjálfum, verk-
um þeirra og fram-
kvæmdagleði.
Oft hefur reynt á
þolrifin í þessum
hópi, og undir slíku
álagi reynir fyrst á,
hvem mann hver og
einn hefur að
geyma. Sumir
bognuðu og sáu allt
svart, en aðrir sigldu
í gegn af fádæma
öryggi og mann-
dómi. E.t.v. hugs-
uðu þeir eins og
Steinn Steinarr, þegar hann orti:
Víst er þetta löng og erfið leið
og lífið stutt og margt, sem út af ber.
En tigið gegnum tál og hvers kyns neyð
skín takmarkið og bíður eftir þér.
Ekki má heldur gleyma þeim, sem þurft hafa að þola
þær áhyggjur, sem menn hafa ekki mátt sýna í vinn-
unni, og það eru nánustu aðstandendur. Þeir hafa allir
verið í hlutastarfi við Ráðhús Reykjavíkur, sem þeim er
hér með sérstaklega þakkað.
Þeir, sem valizt hafa í þann hóp, sem skapaði og reisti
ráðhúsið, em fæstir þeirrar gerðar að gagnrýna og vanda
um fyrir öðmm. Flestir ástunda fyrst og fremst vönduð
vinnubrögð og sýna í verki það, sem þeir trúa á. Þeirra
trú og þeirra mannkostir em svo sannarlega ofnir í þetta
mannvirki. Sumir þeirra eru hér um bil orðnir hluti af
húsinu. Ef sá starfsandi, sem rikt hefur við byggingu
ráðhússins, ræður áfram ríkjum við stjóm þessarar.
borgar, á hún sér fagra framtíðarsýn.
Islenzkt handverk
Þökkum hönnuðum og öðrum samstarfsaðilum
ánœgjulegt samstarf
REINf
O
Smiðjuvegi 16, 200 KÓPAVOGUR Sími 91-71333 Fax 670553
141