Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Side 17

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Side 17
SKIPULAGS- OG BYGGINGARMÁL Starfsfólk Borgarskipulags I febrúar 1992. Á myndinni eru ifremstu röö, taliö frá vinstri, Eygló Eyjólfsdóttir, Helga Bragadóttir, Ingibjörg R. Guölaugsdóttir, ÞorvaldurS. Þorvaldsson, forstööumaður Borgarskipulags, Sólveig Hinriksdóttir og Finnur Kristinsson. í miöröö eru Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Helga Sjöfn Guöjónsdóttir, Margrét Þormar, Hafdís Hafliðadóttir, Guörún Jónsdóttir, Ragnhildur Ingólfsdóttir og Guöný Aöalsteinsdóttir. Aftast eru Yngvi Þór Loftsson, Ólafur Brynjar Halldórsson, ívar Eysteinsson, Bjarni Reynarsson, aöstoöar- forstööumaöur, Björn Valgeirsson og Jón Árni Hatidórsson. Á myndina vantar Jóhönnu S. Guöiaugsdóttur. Ljósm. Ljósmyndastofa Reykjavíkur. Jóhannes Long. semja. Reynslan er því oft sú, að bæði texti og talnagrunnur skipulagsins er orðinn úreltur, þegar skipulagið loksins er gefið út. Aðalskipulag er því minna notað sem stjómtæki en æskilegt væri. Við þetta bætist, að fæst sveitarfélög hafa endurskoðað aðalskipulagsáætlanir sínar á fimm ára fresti, eins og skipulagslög kveða á um. Mörg sveitarfélög hér á landi eru því með tíu ára eða eldri aðalskipulags- áætlanir. Þessi lýsing á einnig við skipulagssögu Reykja- víkur. Aðalskipulag Reykjavíkur 1962-1983 var 300 blaðsíðna greinargerð, sem tók sex ár að vinna og fá síðan afgreitt í skipulagskerfinu. Talnagrunnur skipulagsins frá 1962 var því úreltur, er það var gefið út árið 1967. Ekki tókst að endurskoða það aðalskipulag í heild á gildistíma þess til 1983. Markmið um einfaldari framsetningu Vinna við Aðalskipulag Reykjavíkur (A.R.) 1984-2004 hófst á árinu 1984, og það var gefið út árið 1988. Það var því fjögur ár í vinnslu. Greinar- gerðin er 150 síður, auk þess fylgdu aðalskipulaginu fjögur þemakort. í því aðalskipulagi voru sett eftir- farandi markmið um, hvernig staðið skyldi að end- urskoðun þess: „Hafi litlar breytingar orðið á ácetlunum aðal- skipulagsins frá síðustu endurskoðun, er nœgjanlegt að gera grein fyrir þeim á nýju skipulagskorti. A framhlið kortsins skal sýna landnotkun og gatna- kerfi, en á bakhlið þess verði í texta og skýringar- myndum gerð grein fyrir áœtlunum aðalskipulags- ins og breytingum á landnotkun og gatnakerfi. Endurskoðun aðalskipulagsins mun því verða mun einfaldari en verið hefur, það er útgáfa á nýju skipulagskorti með breytingum á fjögurra ára fresti. “ Tilgangurinn með þessari stefnumörkun var að gera aðalskipulagið að handhægara stjómtæki og að efla tengsl við borgarbúa. Einnig að stytta vinnslu- tíma aðalskipulagsins. Aðalskipulag Reykjavíkur 1990-2010 var unnið í samræmi við þessi markmið, enda eru breytingar frá eldra aðalskipulagi ekki það veigamiklar. Framsetning og efnistök í A.R. 1990-2010 Aðalskipulagið er gefið út á einu korti (stærð Al) með landnotkunarkorti á framhlið og greinargerð á 143

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.