Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Page 23
SKIPULAGS- OG BYGGINGARMÁL
Hugmynd aö útliti brúaryfir Elliöaárósa. Brúin yröi hluti Ósabrautar, sem tengdi Sæbraut og Höföabakka yfir ósana.
en uppbygging þjónustukjama í Borgarholti II hefst
líklega fyrir aldamót.
Framtíðarsýn
I aðalskipulaginu er verið að móta aðaldrættina í
framtíð höfuðborgarinnar næstu árin, og er tillaga
um nýtt hafnarsvæði í Eiðsvík í því sambandi mjög
þýðingarmikil. Höfnin í Eiðsvík gæti hugsanlega
orðið umskipunarhöfn fyrir vöruflutninga yfir Atl-
antshafið. Eins er mikilvægt að eiga góða hafnarað-
stöðu, ef verður af vatnsútflutningi í stórum stfl frá
nýjum vatnslindum í Vatnsendakrika í Heiðmörk.
Þá má geta þess, að Sundabraut, sem er vegteng-
ing yfir Kleppsvík út í Geldinganes yfir Leiruvog,
Álfsnes og Kollafjörð og allt upp á Kjalames, verður
í framtíðinni ný aðkomuleið að höfuðborgarsvæðinu
frá Vestur- og Norðurlandi. Þessi nýja stofnbraut og
framhald hennar til suðurs, þ.e. Sæbraut og Reykja-
nesbraut, munu í framtíðini móta nýjan norður-
suður vaxtarás á höfuðborgarsvæðinu.
Þannig nætti nefna mörg dæmi um mikilvæga
þætti, sem em í fyrsta skipti teknir fyrir í Aðal-
skipulagi Reykjavíkur.
Lokaorð
Með útgáfu á A.R. 1990-2010 teljum við, sem
unnum að aðalskipulaginu, að þau markmið, sem sett
voru í A.R. 1984-2004 um einfalda og skýra fram-
setningu aðalskipulags, hafi náðst. Það er einnig
mikilvægt, að kjörnir borgarfulltrúar fái strax eftir
hverjar kosningar tækifæri til að endurskoða Aðal-
skipulag Reykjavíkur til að setja fram ný stefnumið
og áherzlur um framtíð höfuðborgarinnar.
Þetta aðalskipulag, A.R. 1990-2010, verður end-
urskoðað eftir borgarstjórnarkosningar 1994, þ.e.
eftir tvö ár. Á seinustu mánuðum hafa komið fram
atriði, sem e.t.v. munu breyta A.R. 1990-2010 og
tekin verða fyrir í A.R. 1994-2014. Fyrir borg, sem
vex jafn hratt og Reykjavík, er mikilvægt, að aðal-
skipulagið sé í stöðugri endurskoðun. Til þess að
það sé mögulegt, þarf að einfalda hið formlega að-
alskipulag og koma ítarefni í fylgiskjöl. Þetta er í
fullu samræmi við þróun í gerð aðalskipulagsáætl-
ana í nágrannalöndum okkar. Þau tvö ár, sem líða
milli þess, að unnið er að endurskoðun aðalskipu-
lagsins, verða notuð til rannsókna á þeim helztu
þáttum, sem aðalskipulagið grundvallast á.
149