Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Page 29
ATVINNUMAL
fjarri, að hún komi þeim ekki við.
Skipulag og rekstur alls skólakerf-
isins kann að ráða úrslitum um
það, hvernig okkur helzt á fólki í
framtíðinni. Reykjavík á þar sömu
hagsmuna að gæta og önnur
sveitarfélög í landinu.
Nú fer í hönd sá tími, þegar
skólanemendur skella aftur bók-
unum í bili og flykkjast út á vinnu-
markaðinn. Fram að þessu hefur
víðast tekizt að útvega skólafólkinu
sumarstörf, ekki sízt fyrir milli-
göngu sveitarfélaganna, sem oft
hafa þurft að taka á sig umtals-
verðan kostnaðarauka, til þess að
það gæti tekizt. Enn verður að
vona, að þetta takist, þrátt fyrir
þær blikur, sem nú eru á lofti.
Skólafólkið nýtur að jafnaði ekki
atvinnuleysisbóta, og á þeim for-
sendum hefur verið talið eðlilegt,
að það nyti forgangs I tímabundn-
um sumarstörfum. Hinu er ekki að
leyna, að reynist núverandi ástand
á almennum vinnumarkaði
langvarandi, hljóta forsendurnar
varðandi forgang skólafólksins að
breytast.
Einkavæðing?
Umræða urn aukna einkavæð-
ingu, bæði hjá ríki og sveitarfélög-
um, hefur farið vaxandi að undan-
förnu. Það er skoðun margra, að
sveitarfélögin eigi ekki að vera
beinn þátttakandi I atvinnurekstr-
inum, nema slíkt sé talið bráð-
nauðsynlegt.
Það er skoðun mín, að sveitar-
félögin eiga að stuðla að öflugu og
vaxandi atvinnulífi með óbeinum
aðgerðum, eins og ég kom að í
upphafi máls míns. En auk þess,
sem ég gat um þar, geta sveitar-
félög með ýmsum hætti stuðlað að
og stutt við nýjungar í atvinnulífinu.
Má I því sambandi benda á
stuðning við þróunarverkefni á
ýmsum sviðum. Má þar t.d. nefna
ýmiss konar tækniiðnað, sem
stöðugt kemur inn I æ fleiri þætti
atvinnulífsins. í þessu sambandi
vil ég geta um eitt af mörgum
dæmum, þar sem Reykjavíkur-
borg hefur haft afskipti af á und-
anförnum árum án þess að vera
beinn þátttakandi í rekstrinum.
Fyrir nokkrum árum leitaði Hita-
veita Reykjavíkur tilboða í þróun og
uppsetningu stýrikerfis fyrir hita-
veituna. Sérstaklega var kannað,
hvort innlend fyrirtæki gætu gert
tilboð í þetta verk og útboðsgögn
gerð með það I huga. Eitt innlent
fyrirtæki bauð í verkið og 10 erlend
stórfyrirtæki. Innlenda fyrirtækið
bauð sambærilegt verð við erlend
fyrirtæki. Erlendu fyrirtækin höfðu
hins vegar miklu meiri reynslu en
innlenda fyrirtækið, sem hafði
nánast enga reynslu á þessu
sviði.
Borgarstjórn Reykjavíkur' ákvað
að taka innlenda tilboðinu. Með því
var tekin allmikil áhætta vegna
reynsluleysis innlenda fyrirtækisins
miðað við þau erlendu. En I þessu
sambandi er rétt að hafa í huga, að
ef við ekki þorum að taka áhættu
á þessu sviði, þá gera útlendingar
það ekki fyrir okkur, og þekkingin
og reynslan verður hjá útlending-
um, en ekki okkur. Opinberir aðilar
hafa sérstakar skyldur í þessum
efnum og verða að þora að taka
nokkra áhættu. Verkefni þetta tókst
mjög vel hjá þessu innlenda fyrir-
tæki og varð til þess að efla veru-
lega innlenda tækniþekkingu á
þessu sviði.
Meginrökin, sem færð hafa verið
fyrir kostum þess að koma einka-
væðingu við á sem flestum sviðum
atvinnulífsins, eru, að það leiði til
aukins frelsis og valddreifingar og
hagkvæmari reksturs fyrirtækja.
Hvati að frumkvæöi og nýjungum
RISATJÖLD TIL LEIGU
Loksins er hægt að leigja risatjöld fyrir hvers konar útisamkomur.
Við leigjum út glæsileg samkomutjöld af ýmsum stærðum frá 200-800
fermetra eftir þörfum hvers og eins.
Vanir starfsmenn aðstoða við að reisa tjöfdin asvipstundu, hvar sem er á
landinu, og þau geta staðið á hvort heldur sem er grasi, möl eða malbiki.
Pantið tímanlega í síma 91-625030.
KOIAPORTIÐ
MrfR KaÐStORr
155