Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Side 39

Sveitarstjórnarmál - 01.06.1992, Side 39
LAUNAMAL Nýir kjarasamningar Launanefnd sveitarfélaga tók að fullu þátt í kjarasamningsgerð með samninganefnd ríkisins og Reykja- víkurborgar vegna samflots stéttar- félaga innan BSRB, sem stóð yfir í marz og apríl. Niðurstaða þessara viðræöna er sú, að ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu til lausnar deilunni hinn 26. apríl. Þar er gert ráð fyrir launahækkun 1. maí 1,7%, 8.000 kr. orlofsuppbót í júní og lág- launabótum til handa þeim, sem hafa minna en 80.000 kr. í heildarlaun. Láglaunabæturnar koma til útborg- unar í júlí 1992 og í febrúar 1993. Samningar framlengjast að öðru leyti óbreyttir til 1. marz 1993. Meö miðl- unartillögunni fylgir yfirlýsing ríkis- stjórnarinnar um efnahagsmál, sem talið er, aö muni kosta ríkissjóö um 800-1.000 millj. kr. Ekki var Ijáð máls á sérmálum einstakra féiaga innan BSRB í kjarasamningsviöræð- unum. Launanefnd sveitarfélaga semur nú við 23 bæjarstarfsmannafélög fyrir hönd 44 sveitarfélaga. Enn eru nokkur sveitarfélög, fyrir utan Reykjavíkurborg, sem ekki hafa veitt nefndinni umboð til að annast samningsgerð fyrir sína hönd, eins og Akranes og allmörg smærri sveitarfélaganna. Mikilvægt er, að þau sveitarfélög, er standa utan launanefndarinnar, foröist að gera nokkuð þaö, er rofið getur samstöðu þeirra mörgu sveitarfélaga, er vinna saman í launanefndinni. Á sama sólarhring og ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillöguna, varö upplýst, að sveitarfélag hafði samið við verkalýðsfélagið á staðnum um kjarabætur, sem voru langt umfram það, sem aðrir atvíhnurekendur treystu sér til aö semja um. Slíkir atburðir gera launanefnd og Sam- bandi íslenzkra sveitarfélaga erfitt fyrir í hagsmunagæzlu þeirra fyrir sveitarfélögin. Tvö bæjarstarfsmannafélög felldu miðlunartillögu ríkissáttasemjara, þ.e. starfsmannafélögin í Neskaup- stað og í Borgarnesi. Gengiö hefur veriö frá samningum við þessi félög og einnig samningum við Starfs- mannafélag Garðabæjar svo og Fé- lag tónlistarskólakennara, sem ekki voru aðilar aö samfloti því, sem miðl- unartillagan náði til. Sömuleiðis var undirritaður samn- ingur við ASÍ i maí sl. vegna starfs- fólks í mötuneytum. Slíkur samningur hefur ekki verið gerður áöur, en var nauðsynlegt að gera, vegna þess að starfsfólkið fluttist frá ríkinu yfir á launaskrá sveitarfélaganna viö gild- istöku verkaskiptalaganna um ára- mótin 1989/1990. Viðræöur standa nú yfir viö Fóstrufélag íslands um gerð nýs kjarasamnings. Samstaða sveitarfélaganna í launamálum er nauðsynleg. Sveitar- félögin verða að sýna ábyrgö og trúverðugleika í kjarasamningsgerð. Staðbundnir samningar, sem eru langt umfram það, sem samið er um almennt á vinnumarkaði, veikja trú- veröugleika viðkomandi sveitarfé- lagsogskemmafyrir heildinni. Þóað slíkir samningar kosti viökomandi sveitarfélag ekki mikið vegna þess, að um fáa starfsmenn sé aö ræða, þá leysa slíkir samningar færri vandamál en þeir skapa. Lúðvík Hjalti Jónsson Að loknum fundi stjórnar launanefndar sveitarfélaga og viðræðunefndar bæjarstarfs- mannafélaga 13. mai. Á fundinum eru, talið frá vinstri, Margrét Björnsdóttir, Nes- kaupstaö, Arna Jakobina Björnsdóttir, Akureyri, Lúðvik Hjalti Jónsson, starfsmaður nefndarinnar, Elín Björg Jónsdóttir, Ölfushreppi, formaöur viöræðunefndarinnar, og Þorgerður Jóhannsdóttir, Vestmannaeyjum. Unnar Stefánsson tók myndirnar. Talsmenn launanefndar sveitarfélaga á fundi með viðræðunefndinni. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Björn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri lista- og menningarsviös Kópavogsbæjar, Björn Jósef Arnviðarson, bæjarfulltrúi á Akureyri og formaður launa- nefndarinnar, og Þórir Sveinsson, fjármálastjóri ísafjarðarbæjar. 165

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.